Eining - 01.02.1963, Síða 1
Mikill dagur bindindisimaniia
í Hollandi
Hefðu hin ýmsu bindindisfélög í
Hollandi kunnað ljóð Matthíasar. Joch-
umssonar, hefðu þau vafalaust tekið
sér í munn þessar setningar skáldsins:
Hvað má höndin ein og ein?
Allir leggi saman.
Bæði sænsk og norsk bindindisblöð
skýra frá stórum degi í sögu bindind-
isfélaganna í Hollandi. Þau komust
að þeirri niðurstöðu á árinu sem leið,
að þau væru hvert út af fyrir sig, van-
megnug til að geta velt þungum steini
og komu sér saman um að sameinast.
Slíkt er alltaf skemmtilegur viðburður
í sögu manna.
Tólf hundruð manna komu til fund-
ar 15. desember s.l. og afréðu einhuga
sameininguna. Fyrrverandi innanríkis-
ráðherra, Willem Drees, stjórnaði þess-
ari ráðstefnu og gerði það skemmti-
lega, segir þar. Þar sameinuðust 15.000
bindindismanna. Þegar þessu var lok-
ið, varð hinni nýju liðssveit ljóst,
hve gagnlegt það myndi vera, að ger-
ast aðili í alþjóðlegum samtökum bind-
indismanna, og þá var næsta sporið
stígið. Sótt var um upptöku í Stór-
stúku Hollands. Góðtemplarareglan í
Hollandi fékk því myndarlega jólagjöf
— 15.000 liðsmenn á einu bretti. —
Allt þetta gerðist auðvitað ekki hugs-
unarlaust og undirbúningslaust. Árum
Framhald á 2. bls.
Þetta er ekki samkeppnis uppboð á
kroppslegum fríðlcik, en þó mun sumum ís-
lenzku stúdentunum, sem voru með í 50
manna förinni til Mackinac-eyjar í Banda-
ríkjunum sumarið 1957, hafa litist allvel á
hinar hroshýru og snyrtilegu austurlenzdcu
snótir. Til hins alþjóðlega þings MRA-
manna kom þá 100 manna sveit ungmenna
frá Japan, fulltrúar 4,300,000 æskumanna
þar í landi. Myndin er af þessum fulltrúa-
hópi.