Eining - 01.08.1963, Side 5
EINI NG
5
SUMARMÁL
Ritstjórn blaðsiðunnar:
Guömundur hcrarinsson
og Einar Hannesson.
Svipmyndir frá Norðurlandamóti
ungtemplara í Kolding 1963
St.Nicolai-kirkjan í miðri Kolding er
þéttsetin fólki frá öllum Norðurlönd-
um. Hljóð eftirvænting fyllir hugina,
og veldur þægilegri spennu innan þess-
ara 700 ára gömlu veggja.
Þjóðsöngvar Norðurlandanna allra
eru leiknir hver af öðrum. Og nú opn-
ast aðaldyrnar skyndilega og inn eftir
gólfinu líða tveir fánar. Allir rísa úr
sætum. Þetta eru mótsfáninn rauður
og gylltur og hvítur fáni Islenzkra
ungtemplara borinn af íslendingi, Jó-
hanni Ámundasyni Nielsen frá Reykja-
vík.
Kannske hafa ísland og Danmörk
ekki verið betur tengd í hugum fjöld-
ans en einmitt þarna í vitund fólksins
suður undir landamærum Þýzkalands,.
og það er sameiginleg barátta æskunn-
ar fyrir afnámi þessa böls og
þeirrar hættu, sem áfengisnautnin er,
sem tengir þjóðirnar saman, æskulýð-
urinn gengur fylktu liði inn í helgi-
dóm framtíðar og fortíðar, minninga
og vona sér til heilla.
Við borð í húsi KFUM í Kolding
situr hópur af ungu fólki. Þar eru
fyrst og fremst fulltrúar allra Norð-
urlanda, en sá, sem stjómar er frá
Belgíu, varaformaður hins nýstofnaða
heimssambands æskunnar gegn áfeng-
isbölinu. Þarna eru margir þjóðafull-
trúar komnir, t. d. ungur Tyrki frá
Istambul, ungur Negri frá Kenya, auk
Evrópubúa, því að Tyrkland er það
naumast. Það er fyrst rætt um sumar-
búðastarf í Frakklandi, þá Sviss og
Grikklandi. Þessi litla starfsemi, en
stóra hugsjón er að leggja undir sig
heiminn. Alls staðar er æskan að vakna
gegn hættunni, sem er stundum styrj-
öldum verri.
Allir ræða í bróðemi um ástandið
hver hjá sér undir einkunnarorðunum:
„Þekking skapar skilning.“ Margt ber
á góma, en að einu marki er stefnt:
Hvað ber að gera til að bægja hættun-
um frá, en móta öryggi og kjark í vit-
und unga fólksins. —
Allir klappa fyrir þeirri ákvörðun,
að næsta mót Norrænna ungtemplara
verði á íslandi í júlí 1966. Fögnuður
og tilhlökkun virðist ljóma af hverju
andliti. Sumir hrópa: Vi sparer i tre
ár, sá kommer det. Óskandi að við get-
um tekið sem bezt á móti þeim, svo að
ísland verði þá land sagna og sólar.
Gæti nokkuð fremur en slík ,mót
gjört grunninn traustan undir fram-
tíðarhöll friðar og frelsis öllu mann-
kyni til handa. Þau eru á við þúsund
vopnabúr.
Árelíus Níelsson
* >f *
800 d
C 2)cmm örku.
Fjórtánda mót Norræna ungtempl-
arasambandsins var haldið í Kolding
í Danmörku dagana 6. til 11. júlí s. 1.
Þing samtakanna var haldið á sama
tíma. Fulltrúar íslenzkra ungtemplara
á þinginu voru séra Árelíus Nielsson,
Kristinn Vilhjálmsson og Gunnar
Þorláksson. Mótið sóttu af hálfu ÍUT
Svipmynd frá Kolding.
— Sune Persson, vinur
okkar, rœðir við þel-
dökkan ungtemplara frá
Afríku. Stúlkurnar frá
Noregi, Danmörku og
Svíþjóð fylgjast með.
Stjórn Norrœna ungtemplarasambandsins.
Sume Persson, ritari, Henry Sörman, formað-
ur og Arvid Johnsen, gjaldkeri.
8 félagar, en alls tóku þátt í mótinu
800 þátttakendur frá Norðurlöndun-
um fimm.
Danmerkurfarar ÍUT létu mjög vel
af ferðalaginu, er þeir komu heim. Það
hefði verið bæði fróðlegt og skemmti-
legt. Undirbúningur og framkvæmd
þess hefði tekizt vel.
Á þingi samtakanna voru samþykkt-
ar breytingar á lögum þeirra. Verður
framvegis þriggja manna stjórn í stað
framkvæmdastjómar. Sú stjóm ásamt
einum fulltrúa frá hverju sambandi
myndar ráð samtakanna, sem áðurhét
stjóm. Þá er gert ráð fyrir að fram-
vegis verði færri fulltrúar á þingum
en áður.
NÆSTA MÓT Á ÍSLANDI 1966.
Ákveðið er að halda næsta mót á
íslandi árið 1966, en á því ári verða
Framhald á 15. bls.
tempíarcunóti
uncýlemp