Eining - 01.11.1963, Side 4
EINING
Séra ^J\riitinn JJlcjái
aniion:
Norræna bindmdisþingíð
II.
Sunnudagsmorguninn 4. ágúst rann
upp bjartur og fagur í Karlstad. Marg-
ir munu hafa kosið að mega njóta veð-
urblíðunnar úti í fagurri náttúrunni
þenna sólríka morgun, og sjálfsagt ekki
sízt við íslendingarnir, sem átt höfðum
svo sólarlítið sumar heima á Fróni, en
til þess gafst ekki tóm að sinni. Aðal-
störf þingsins voru að hefjast og daginn
skyldi taka snemma. Fundur var settur
kl. 9 og voru þá kosnir embættismenn
þingsins. Forseti var kjörinn Daniel
Wiklund, en varaforsetar einn frá
hverju hinna Norðurlandanna. Sami
háttur var á hafður með kjör ritara.
Verkefni þessa fyrsta dags þingsins
var: Æskan og áfengiö.
Fyrsti og aðalræðumaður dagsins var
Kettil Bruun, dósent frá Helsingfors,
og ræddi hann um rannsóknir á áfeng-
isneyzlu unglinga. Var þetta umfangs-
mesta rannsókn, sem gerð var á Norð-
urlöndunum síðustu árin varðandi á-
fengismálin. Það var norræna nefndin
um áfengismálin, sem frumkvæði átti
að rannsókninni, en á Norðurlöndunum
fjórum eru nú starfandi vísindastofn-
anir, sem fást við slíkar rannsóknir. í
Finnlandi og Svíþjóð hafa þessar
stofnanir starfað um árabil og njóta
hvarvetna mikils álits. Á síðustu árum
hafa svo Norðmenn og Danir hafizt
handa í þessum efnum, en þar er þó
starfsemin enn á byrjunarstigi. Þessar
vísindastofnanir Norðurlandanna fjög-
urra hafa með sér samvinnu, og er nor-
ræna nefndin um áfengisvandamálin
tengiliður á milli þeirra.
Rannsókn sú, sem hér er um að ræða,
var gerð með viðtölum við unglinga um
áfengisneyzlu þeirra. Var hún fram-
kvæmd á sama tíma í höfuðborgum land-
anna allra, Helsingfors, Stokkhólmi,
Osló og Kaupmannahöfn, undir stjórn
finnska dósentsins Kettil Bruun.
Rannsóknin tók aðeins til pilta á
aldrinum 14, 16 og 18 ára, sem höfðu
verið búsettir í viðkomandi höfuðborg
a. m. k. 10 ár undanfarið.
Spurningarnar voru á öllum stöðun-
um þær sömu, en spurt var m. a. um
eftirfarandi: Raunverulega áfengis-
notkun, heimilisástæður, ýmislegt varð-
andi félagslífið, hvernig áfengisins var
aflað, hvort viðkomanda væru kunn
gildandi ákvæði um takmarkanir á rétti
þeirra til áfengiskaupa (t. d. aldurs-
takmark o. fl.), ennfremur um áfengis-
neyzlu foreldranna. Þá var og um það
spurt, hvað þeir hefðu drukkið: öl, veik
vín eða sterka drykki.
Flestir piltanna höfðu neytt áfengis
eða 97% þeirra, sem spurðir voru í
Osló, næstir komu Finnar 94%, þá
Danir 89% og Svíar 87%. En þessar
tölur segja þó ekki allan sannleikann
um áfnegisneyzlu þessara unglinga. Að-
eins nokkur hluti þeirra var farinn að
neyta áfengis að nokkru ráði, hinir
voru fleiri, sem sjaldan neyttu þess, t.
d. einu sinni í viku eða enn sjaldnar. 1
Osló og Stokkhólmi drekkur fimmti
hver átján ára piltur oftar en einu sinni
í viku og sjaldnar í lægri aldurs-flokk-
unum. Kaupmannahöfn sker sig úr að
því leyti, að þar er drykkjutíðni mest í
öllum aldursflokkum, en Helsingfors
hefur að því leyti sérstöðu, að drykkju-
tíðni er þar minnst. Margir höfðu neytt
áfengra drykkja á heimilum sínum, en
þegar kemur fram á 18 ára aldurinn
fara þeir að snúa sér í vaxandi mæli að
sterkari drykkjum og þá jafnframt
fara á bak við foreldra sína.
Þeir piltar, sem farnir voru að neyta
áfengis eitthvað að ráði, og enda líka
margir hinna, héldu því ákveðið fram,
að jafnaldrar þeirra drykkju eins mik-
ið eða meira en þeir sjálfir. Kom sú
mannlega tilhneiging skýrt fram í við-
tölum þessum, að segja ekki allan sann-
leikann um hvað þeir gera, en vilja miða
við það, sem gert er ráð fyrir hjá öðr-
um.
Ráðgert er að halda þessum rannsókn-
um áfram, og sérstaklega fylgjast með
14 ára drengjunum, sem nú voru rann-
sakaðir.
Erindi dósentsins vakti athygli og var
vel þakkað. Umræður um það stóðu síð-
an fram undir hádegi og voru á marg-
an hátt lærdómsríkar.
Danskur læknir, dr. Ehlers, sem
stundar lækningar áfengissjúklinga,
sagði, að unglingarnir byrjuðu yfirleitt
á því að drekka öl, en margir færu síð-
an að drekka vín og sterkari drvkki, af
því að það þætti fínna. Áfengistízkan
hefur fljótt áhrif á unglingana. Öl-
drykkjan væri mest meðal verkamanna
og iðnaðarmanna. Læknirinn skýrði frá
því, að sjúklingur, sem hann hafði undir
liöndum, hefði haldið því fram, að hann
drykki álíka og aðrir, en sjálfur drakk
hann um 40 ölflöskur á dag.
Aðrir fyrirlesarar þenna dag ræddu
um þetta vandamál, æskan og áfengið,
frá öðrum hliðum, svo sem um hvað
samfélagið geti gert, þátt menningar-
félaga, hvort starfshættir bindindis-
hreyfingarinnar væru í samræmi við
áhuga og þörf nútímaæskunnar, tóm-
stundastörf æskunnar o. fl. Mjög hæfir
menn og gagnkunnugir vandamálum
æskunnar komu hér fram og gerðu allir
verkefni sínu góð skil. Þessi fundar-
dagur hafði verið lærdómsríkur, enda
vel til hans vandað.
Sparaðar 149ooo9ooo
Bindindismenn á Norðurlöndum
spara sér um 14 milljónir norskra
króna árlega í tryggingamálum segir
Folket eftir Gunnar Nelker, forstjóra
sænska tryggingafélagsins Ansvars.
Alls greiða þeir árlega 105 millj. kr. í
tryggingagj öld. 77 milljónir af þessu
eru í sambandi við tryggingafélög
bindindismanna, en hefðu þeir ekki
notið þar þessara hlunninda, hefði
tryggingakostnaður þeirra almennt orð-
ið um 119 milljónir, sagði forstjórinn
í erindi, sem hann flutti á norræna bind-
indisþinginu í Karlstað.
Á Norðurlöndum hafa 283 þúsundir
manna tryggt í félögum bindindis-
manna. Hér má svo gera ráð fyrir, segir
forstjórinn, að við bætist um 400 þús-
undir, sem tryggja hjá öðrum félögum,
en fá þar einnig sín hlunnindi sökum
bindindis og reglusemi. Trygginga-
starfsemi bindindismanna, það er
þeirra eigin félaga, fer mjög vaxandi
og má gera ráð fyrir, segir þar, að við
bætist 30,000 tryggjendur árlega. Efgn-
ir þessara tryggingafélaga eru nú, sagði
Gunnar Nelker, um 100 milljónir (ekki
getið hvort eru sænskar eða norskar).
Tala þeirra sem tryggja í þessum félög-
um eru 245,000 í Svíþjóð, 28,000 í Nor-
egi, 7000 í Danmörku, 2000 í Finnlandi
og 1000 í íslandi. Félög þessi eru yngst
á Norðurlöndum í Islandi, Finnlandi og
Danmörku.
-K ->C -K
LEIBRÉTTING
Prentarar tala um prentvillupúka. Hann er
stundum furðu hrekkjóttur. 1 minningargrein-
inni um Benedikt S. Bjarklind í síðasta tbl. Ein-
ingar hefur það atvikast svo, eftir að búið var
að ganga frá síðustu Ieiðréttingiun prófarkar-
innar, að niður hefur fallið ein lína, en auka
lína komið í hennar stað. Þetta er neðarlega í
fyrsta dálki annarri blaðsíðu. Málsgrreinin á að
vera á þessa leið:
„Hann sat mörg þing templara og annarra
bindindismanna erlendis sem fulltrúi Islands og
var orðiim vel þekktur og mikils metinn meðal
bindindismanna á Norðurlöndum.“ I>eir, sem
halda blaðinu saman, ættu að strika út aðkomu-
línuna, en skrifa hina á jaðar blaðsins.