Eining - 01.08.1967, Side 10

Eining - 01.08.1967, Side 10
10 EINING HALLDÓR PÁLSSON FRÁ NESI. Fœddur 19. des. 1887 Ef ég ætti að nefna skóla, sem telja mætti áhrifamestan íslenzkra mennta- stofnana, þá mundi ég hiklaust nefna skóla Torfa í Ólafsdal. Þaðan hef ég kynnzt mörgum nem- endum, og öllum langt ofan við meðal- mennskuna að manngildi, dáð og mennt- un. Þar á ég ekki fyrst og fremst við þá þekkingu og lærdóm, sem af bókum er numið, heldur þá mennt, sem lýst er í ljóðlínum Steph. G. Steph. er hann segir: „Þitt er menntað afl og önd eigir þú fram að bjóða: Hvassan skilning, haga hönd, hjartað sanna og góða.“ Þar var Halldór Pálsson góður full- trúi skóla síns, félagslyndur, fórnfús og heilsteyptur hugsjónamaður með opinn hug og samúðarríka sál. Hann var fæddur að Víðilæk í Skrið- dal í Suður-Múlasýslu 19. des. 1887. En fluttist þaðan á barnsaldri með for- eldrum sínum, Páli Þorsteinssyni og Elínborgu Stefánsdóttur að Tungu í Fáskrúðsfirði. En þar ólst hann upp í stórum hópi systkina og fóstursystkina, sem flest eru á lífi og bera þessum myndargarði bernskunnar fagurt vitni með manndómi sínum og göfgi, hvert sem þau ber á bárum örlaga. Um tvítugsaldur fór Halldór um Is- land þvert til búnaðarnáms í Ólafsdal. En að því námi loknu stundaði hann kennslustörf á vetrum en bústörf og jarðabætur á sumrum allt að áratugi. Þá kvæntist hann árið 1916 hinni ágætustu konu, Hólmfríði Björnsdóttur frá Dölum í Fáskrúðsfirði. Hún hefur verið honum hin ástríkasta húsfreyja í meira en hálfa öld, og skapað heimili þeirra þann blæ gestrisni og góðvildar, sem flestir mundu kjósa. Höfðingslund hennar, hófsemi og skapfesta er erfð frá mennt forfeðra í margar kynslóðir. Halldór var félagslyndur maður og félagslega þroskaður. Honum voru því falin forystustörf í sveit sinni og sókn. En þau hjón reistu bú í Nesi í Loð- mundarfirði og bjuggu þar síðan um aldarfjórðungsskeið. Var heimili þeirra rómað að myndarskap og fyrir búnað- arframkvæmdir. Börn þeirra Hólmfríðar og Halldórs — Dáinn 13. júní 1967. Halldór Pálsson. eru þrjú, Auður, sem er gift sr. Jóni ísfeld, ákaflega þekktum og vinsælum presti og rithöfundi, þá er Leifur, sem er frummótasmiður, kvæntur og býr í Kópavogi og heima hjá foreldrum eða á sama heimili er Björn, sem er gull- smiður. Öll hafa börnin erft kosti for- eldranna á ýmsan hátt og notið góðs uppeldis. Mesta hugðarefni Halldórs í tóm- stundum, síðan hann flutti hingað til borgarinnar 1941, hefur verið söfnun frásagna um íslenzk fárviðri og skaða- veður. Þar hefur hann verið gjörhugull og nýtinn að safna og er nú verið að gefa út þetta safn hans, sem er bæði mikið og merkilegt. Það er samúð hans og meðlíðan með þeim, sem barizt hafa á yztu þröm mannlegrar tilveru í stórhríðum og skammdegismyrkrinu, sem orðið hefur frumvaki og aflgjafi þessarar tóm- stundaiðju. Hún segir þó bæði frá sigr- um og ósigrum. Annars var Halldór gæddur þeim góða eiginleika að kunna að fagna því fagra. Þess vegna unni hann söng og sögu, sólskini og gróanda og leitaðist sífellt við að fegra umhverfi sitt og skila því betra en hann tók við því. Hann var innilega trúrækinn og sótti kirkju sína af vakandi áhuga og velvild, frjálshuga og heill. Bindindismálum fylgdi hann heils- hugar og starfaði í hópi þeirra, sem þar standa bezt á verði um hamingju æskunnar og þjóðarinnar gagnvartþeim vágesti, sem nautnasýkin er. í öllu sýndi hann heilindi, drengskap og trúmennsku og lagði fram alla krafta sína til heilla þeim málum og því fólki, sem hann taldi sig geta orðið að liði. En það var hugsjón hans, að hver einn dagur mætti hrífa hann lengra fram á leið. En einmitt þetta er aðalsmerki sannr- ar menntunar, einkenni skólamanna frá Ólafsdal. Heill þeim skóla, sem þannig mótar lærisveina sína. Heill þeim mönnum, sem þannig lifa og starfa. Við biðjum ástvinum Halldórs allrar huggunar og blessunar á framtíðarveg- um, en anda hans gleði og æsku á eilífðarbrautum. Á. N. Mannfjölgun og matvœli Árið 1966 fjölgaði íbúum jarðar um 70 millj ónir og á næstu 30 árum á þeim að fjölga úr þremur milljörðum í sex milljarða, með sama. áframhaldi. Mikið þarf í alla þá munna. Gunnar Mýrdal, prófessor, telur, að tvöfalda verði mat- arframleiðslu heimsins til ársins 1980 og þrefalda hana fram til ársins 2000. Margt getur gerst á þessu tímabili, sem ekki verður séð fyrirfram. Atóm- vopnastyrjöld milli tveggja heimshluta myndi fækka mannkyninu að miklum mun, en gerum ráð fyrir að henni verði afstýrt og þá munu þjóðirnar stíga tvö mikilvæg spor: annað það, að takmarka mjög mannfjölgunina, en hitt að hag- nýta jarðar- og sjávargróður margfalt á við það sem nú er. Menn munu ráða yfir nægri þekkingu, mest veltur þá á menningar- og siðferðisþroskanum. 4<-k -jC -K-X Leiðrétting Eins og lesendur blaðsins munu hafa veitt athygli, var slæmur galli á 8. bls. síð- asta tölublaðs. Einhvern veginn hefur það viljað til, þegar verið var að ganga frá blaðinu í prentvélinni, að upphafsdálkur greinarinnar, sem auðvitað átti að vera til vinstri handar, lendir til hægri. Verður því framhald fyrri dálksins til vinstri, öfugt við það sem venjulegt er. Þeir sem halda blaðinu saman, ættu að merkja við þetta.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.