Eining - 01.08.1967, Page 11

Eining - 01.08.1967, Page 11
EINING 11 Sigurður Kristjánsson í Leirhöfn Alltaf fjölgar þeim góðu viðskipta- mönnum þessa blaðs og liðsmönnum málefnis bindindismanna, sem við höf- um orðið að sjá á bak síðastliðin 20 ár- in. Einn þeirra var Sigurður Kristjáns- son í Leirhöfn. Nýlega var ég að blaða í Árbók Þing- eyinga 1962 og sá þá að fyrsta greinin í ritinu er um hina merku Leirhafnar- fjölskyldu. Greinina hefur skráð séra Páll Þorleifsson. Hún minnti mig sér- staklega á Sigurð Kristjánsson. Um margra ára skeið hafði hann verið að senda blaðinu Einingu peningagjafir. Aldrei fylgdu þeim neinar orðsendingar og ekki minnist ég þess að fundum okk- ar hafi borið saman. Nú er hann héðan genginn. Auðvitað er slík framkoma sem hans okkur, sem njótum hennar, mikils virði og mjög uppörfandi, því að peningagjöfum til blaðsins hefur áreið- anlega fylgt góðhugur. Séra Páll Þorleifsson rekur í grein sinni nokkuð ætt Sigurðar og segir svo m.a. orða: ,,Að sumu leyti mun Sigurður vera stórbrotnastur þeirra bræðra og ýmsir telja hann gáfaðastan. Eitt er víst, að á mörgu kann hann skil. Óskólagenginn, en þó fjölmenntaður, alinn í einangrun, hugsar þó sem heimsborgari. Hann tek- ur ekki mikið til máls á mannfundum, en allra manna skemmtilegastur í við- ræðu. Þar nýtur mælska hans sín bezt. Óvíða er komið að tómum kofa hjá hon- um, hvort sem rætt er um stjórnmál, trúmál eða söguleg efni. Hann er vel hagmæltur, en vill sem minnst láta á því bera. Öðrum þræði er hann haldinn óróa veiðimannsins, hinum fastur við torfu. Löngu fyrir dögun er hann gjarnan rokinn út með byssu um öxl. Kafar snjó, klífur fjöll, skimar. Hraun og gjótur eru kannaðar, slóða leitað um óravíð- áttur sléttunnar, heimkynnis, sem mel- rakkinn hefur sérstaklega heigað sér. Sigurður er mikilvirkur smiður og hefur staðið fyrir nokkrum byggingum út í frá. Hann letur sízt til stórræða og sér oftast útveg þótt öðrum sýnist lítt fært.“ Séra Páll Þorleifsson skrifar einnig skemmtilega um bróður Sigurðar, Helga, um framtak hans og dugnað við búskap- inn, iðnaðarfyrirtæki og „fjölmörg trúnaðarstörf bæði fyrir sveit og sýslu,“ — og um alla þessa ágætu fjölskyldu yfirleitt. Helgi og kona hans, Andrea P. Jónsdóttir, hafa eignazt sjö börn, segir séra Páll, „öll hin mannvænlegustu." Sonur þeirra, Jóhann, hafði þá tekið við búskapnum, er séra Páll skrifaði grein sína, og hafði þá aukið ræktunina gífur- lega, túnið í Leirhöfn orðið 90 dagslátt- ur og Jóhann sennilega fjárflestur allra bænda á landinu. „Hefur á fóðrum í vet- ur,“ segir séra Páll„ „um 780 fjár.“ Ritgerð sína endar klerkurinn á þessa leið: „Á Leirhafnartorfu eru nú búsettir rúmlega fimmtíu manns, langsamlega flestir afkomendur Kristjáns Þorgríms- sonar, sem kom þarna og settist að fyr- ir tæpum níutíu árum. Heimilin eru átta og standa kringum Leirhafnar- vatn. Það væri öðruvísi um að litast nú út um sveitir landsins ef annað eins land- nám hefði víða átt sér stað sem þarna. Að baki þessa ævintýris stendur fyrst og fremst tryggð við heimahaga, stór- hugur og áræði að leggja í miklar fram- kvæmdir og skapandi máttur, sem hvar- vetna sér nýjar leiðir til afkomu.“ Þökk sé séra Páli Þorleifssyni fyrir að kynna að nokkru þessa stóru fjöl- skyldu, sem er glæsileg fyrirmynd í þjóðhollustu, dugnaði og framtakssemi. Sigurður Kristjánsson átti það skilið að ég minntist hans nokkrum orðum hér í blaðinu, og meira hefði það mátt vera. Pétur Sigurðsson. Hvor sigrar í tóbaks- stríðinu? Verður það þekking, vísindi og skyn- semi eða peningagræðgi og nautna- hneigð ? HÆTTIÐ REYKINGUM heit- ir smágrein í norska blaðinu Folket. Hún segir frá því að landsfundurlækna- félagsins norska hafi verið snemma í júlí sl. Þar var fullkominn einhugur um samþykkt víðtækrar tillögu gegn tó- baksreykingum, sem krabbameinsnefnd læknafélagsins bar fram. Hið eina sem að gagni kemur gegn þessari heilsu- spillandi siðvenju, segir heilsuvernd þjóðarinnar, er að hætta öllum reyking- um. Eigi samþykktin að koma til fram- kvæmda, verði læknarnir að hætta að reykja, annars staðar en þá heima hjá sér. Starfsfólk í sjúkrahúsum megiekki reykja þar, kennarar ekki við starf sitt í skólum og í sjónvarpi megi menn ekki koma fram með sígarettu né reykpípu. Á almennum farartækjum og í biðstof- um skal séð um að fólk þurfi ekki að anda að sér lofti menguðu tóbaksreyk. Þá eru foreldrar hvattir til að athuga sinn gang rækilega, hvort þeir ættu ekki að vernda með góðu fordæmi börn og unglinga fyrir hættunni. Læknafé- lagið geti ekki vænst þess að verða sigursælt í baráttunni gegn tóbaksreyk- ingunum, nema það geri mikla kröfu til félaga sinna, segir í tillögu krabba- meinsnefndar félagsins, er læknaþingið samþykkti. Þannig tók þessi merka samkunda á reykingaósiðnum. Gleðilegt er það, að læknavísindin leggjast yfirleitt gegn reykingum. Þeim er ljóst hve skaðlegar þær eru, en auk þess ættu allir að geta skilið, hve ónauðsynleg og fráleit venja þessi er. Fégirndarpúkinn og tízkuvit- leysan sameinuð er ægivald, sem erfitt er að sigra. Að því ber þó að stefna. -x-k -X kk 450 farþegar í einni flugu Þær heita nú reyndar flugvélar, en ekki flugur. Bandaríkjamenn eru nú að hefja smíði flugvélar, sem á að geta flutt 450 farþega yfir Atlantshafið á tæpum átta klukkustundum. Milli væng- broddana er 60 metra lengd og 18 metr- ar frá botni flugvélarinnar upp í stýris- húsið, 16 brosandi flugfreyjur eiga að stjana við farþegana, öll þjónusta á að ganga eins og í sögu. Á annað hundrað hafa pantað farmiða, þótt farartækið sé enn ekki nema uppdrátturinn, en hún á að verða ferðbúin árið 1970. Auðvitað verða Rússar að reynast trúir sínu stærilæti og hyggja því á gerð einnar flugvélar, sem flutt getur 700 farþega í einu. Mennirnir eru stórhuga og mikið liggur þeim á. Fljótar ferðir fá þeir um jörðina og stundum inn í eilífðina.Verð- ur svo hraðinn þar minni eða meiri? -K -K -)< A -K Perlurœkt Dansk Goodtemplar greinir frá því að Japanir rækti perlur. Perluuppskera þeirra varð 300 milljónir perla árin 1965 og ’66. í landinu eru 3500 perluræktunarbændur. Hraustar ostrur eru settar í búr undir saltvatni. Þegar þær eru þriggja ára, gera kunnáttumenn ofurlitla skurðaðgerð á þeim og smeygja inn undir roðið ofurlítilli skelfisksögn. Eftir þrjár vikur er ostran jafngóð. Á næstu árum myndast svo ný- ræktunarperla nútímakunnáttunnar.

x

Eining

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.