Eining - 01.08.1967, Side 13

Eining - 01.08.1967, Side 13
EINING 13 Þetta málverk af Vestmannaeyjahöfn mála'ði Freymóður listmálari Jólianns- son sumarið 1966. Það hangir í afgreiðslusal Sparisjóðsins og er gjöf lians til Eyjafólks til minningar um farsæl viðskipti og örugg um aldarfjórðungs- skeið, þar sem ekki hefur enn tapazt ein króna af lánum sjóðsins til Eyjabúa. Málverkið er stórglæsilegt. um mörgu hetjum á erfiðum árum þjóð- arinnar. Fækkar velgengnin slíkum mæðrum? Vonandi ekki. Einar Sigurfinnsson hefur víst verið bindindismaður alla sína ævi og síðan laust eftir aldamótin síðustu, hefur hann verið í bindindisfélögum eða stúk- um, yfir 60 ár, en tekið þátt í margvís- legum félagsstörfum. Um ungmennafé- lagshreyfinguna segir hann: „Hún hef- ur bæði fyrr og síðar bjargað barnaláni fjölmargra foreldra og þannig unnið þjóðfélaginu íslenzka ómetanlegt gagn.“ I ritinu er góð mynd af Einari og sonum hans, af þeim er einn þeirra þekktastur, Sigurbjörn, okkar ágæti biskup. Margt er frásagnarvert í þessu ævi- ágripi. Einar Sigurfinnsson minnist á kreppuárin um og fyrir 1930: „Margir urðu alls staðar frá að hverfa, fengu enga vinnu eftir langa leit. Vonsviknir rölta þeir að verkamannaskýlinu, daprir í bragði. Setja sig þar niður og hvíla, sumir þreytulegri að sjá, en þó að þeir hefðu þrælað allan daginn í togaralest- inni. Heima er bjargarlítil kona og börn, sem skortir flest það, sem til þæginda telst, já, líka brýnustu nauðsynjar." Margur maðurinn mætti nú minnast þessara ára og gleðjast yfir góðum kjör- um sínum. Sólveig Pálsdóttir, IjósmóSir, heitir ein greinin í Bliki. Fróðleg er hún einnig og furðuleg saga. Þar eru m.a. þessi orð: „Fyrir fáum árum sýndi Ragnar Ás- geirsson, ráðunautur, Byggðasafni Vest- mannaeyja þá góðvild að gefa því mynd- ina hérna á blaðsíðunni til hægri. Mynd- in er af ömmu hans, Sólveigu Pálsdótt- ur, ljósmóður, sem var ein hin merkasta kona, er hér hefur búið og starfað." Þessi kona vann aðdáunarvert starf á tímum mikilla erfiðleika. 1 frásögninni segir: „Á þessum tímum var líf Eyjabúa átakanlega ömurlegt. Fátæktin var ó- skapleg, eftir að einokunarverzlunin hafði mergsogið Eyjabúa og búalið um tveggja alda skeið. Húsakynni Eyja- fólks voru fádæma léleg og sóðaskapur og önnur ómenning á háu stigi. Fá- fræði og þekkingarleysi almennt ríkj- andi á flestum sviðum.“ Við þetta bættist svo ginklofasjúk- dómurinn, sem herjaði þar árumsaman. „Um það bil 7 börn af hverjum 10, sem fæddust í Eyjum þá, veiktust af gin- klofa (krampa) á fyrstu 5—12 dögum ævinnar og létust öll." Þegar Sólveig Pálsdóttir kom til Dan- merkur til náms í ljósmæðrastörfum, varð hún ekki lítið undrandi, er hún fékk að vita, að „engin stúlka gat öðlast leyfi til náms í þessari fæðingarstofnun, nema hún hefði fyrst alið barn sjálf, — sjálf fætt af sér barn.“ Þarna urðu þó valdhafarnir að slaka til, en frásögn þessi minnir á einstöku moðhausa, sem stundum halda því fram, að menn geti ekki rætt og ritað um bindindi og áfengismál, hafi þeir ekki þambað áfengi sjálfir. Eftir drengilega sókn, en næstum fjögurra ára „vangaveltur" dönsku stjórnarvaldanna, fékkst leyfi til að koma upp fæðingarstofnun í Eyjum. Um skeið starfaði svo danskur læknir við þessa stofnun og undir handleiðslu hans höfðu 23 konur fætt, þar af höfðu 7 mæður „ekki getað mjólkað börnum sínum eða gefió þeim brjóst, sökum þess að vartan var fallin inn. Orsakir: Of þröngur klæðnaður um brjóstin.“ Oft hefur fatatízkan verið gæfuleg eða hitt þó heldur. Öfgarnar margvís- legar og fáránlegar. Danski læknirinn og íslenzka ljós- móðirin unnu að rannsókn á ginklofa- veikinni. I frásögn Bliks segir svo: „Allur þvottur var „breiddur á blæ“ í Eyjum á þessum tíma eða þurrkaður á steingörðum, sem mold fauk yfir í þurrastormum. Hér leyndist bölvaldur- inn. Sóttkveikjan lifði í jarðveginum og komst úr honum í naflabindið, þar sem Framhald á 14. bls. 1 Landlyst, húsið sem Sólveig Pálsdóttir og eiginmaður liennar, Matthias Markússon, reistu. Fæðingarstofnunin, sem reist var á sínum tlma, var við vesturenda hússins. Þetta mun vera elzta mynd, sem til er af húsinu.

x

Eining

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.