Jafnaðarmaðurinn - 27.01.1928, Síða 3
JAFNAÐARMAÐURINN
3
an, er veiði stunduðu á Horna-
firði
Færi svo, að verksmiðjan gæti
ekki fengið keyptan fiskiúrgang á
Hornafirði. er sennilegt að hún
verði að hætta störfum og hafa
þá norðfiskir útgerðarmenn illa
látið glepja sjer sýn, ef þeir verða
til þess að kollsteypa þessu fyrir-
tæki, sem hreinsað hefir alt slor
og fiskiúrgang burt úr bænum og
þannig stórum aukið þrifnað hjer
í kauptúninu.
Verst af öllu er það þó, ef
forstjórinn hefir ástæðu til að
líta á þetta glapræði útgerðar-
manna sem brigðmæli við sig,
og er því ekki annað sýnna, ef
þetta reynist satt, að verksmiðjan
fái ekki að sitja fyrir kaupmönn
um sem hæstbjóðandi, en að út-
gerðarmenn veJði að setjast aft-
ur og fara hvergi á Hornafjörð.
Annars er merkilegt hve kúg-
unarandinn ætlar lengi að loða
við útgerðina á Hornafirði og
Skálum og væri ástæða til að
rekia þá sögu nánar. Verður það
ef til vill einhverntíma gert hjer í
blaðinu, ef ástæða þykir til. Hafa
flestir sjálfsagt búist við því, að
á Hornafirðl væri öllum slíkum
tilraunum lokið, er jafn ágætur
maður og Ól. Sv. er tekinn þar
við búforráðum og er því ilt til
þess að vita ef þetta reyndist rjett,
en það mun sýna sig bráðlega.
Reyktóbak.
Garrick Mixture
Capstan —
Glasgow —
Waverley —
^ichmond —
n/c.
Capstan
St. Bruno Flake
Mjólkurverðið.
Allstaðar að berast þær frjettir,
að mjólkin sje að lækka í verði
sem óðast. Hjer á Norðfirði er
miólkin ennþá seld á 50 aura
potturinn og mun það vera með
hæsta varði hjer á landi. Á Ak
ureyri er mjólkurverðið nú 30—
35 aura potturinn og í Reykjavík
jjar sem mjólk altaf hefir verið
dýr, er hún 44 aurar potturinn
Á ísafirði var mjólkin 50 og 55
aura fyrir nýárið en var ákveðið
að hún lækkaði um áramótin
hve mikið er blaðinu ókunnugt
Mjólkin er sú fæðutegund, sem
fátæku heimilin mega síst án vera
og því verður aö krefjast þess
af mjólkurframleiðendum, að þeir
keppist við að selja mjólkina sem
lægstu verði, þyrfti hún að verða
hjer jafnódýr og á Akureyri eða
ódýrari. þó þarf varla að vænta
Feinr- Shag
Mix
Golden Bell
Gordon Mixture
Engelsk Flag
Islandsk --
Bills Best
Central Union
MossRoseenskt&danskt Saylor Boy
og allar aðrar þektustu reyktóbakstegundir
leimsins eru ávalt fyrirliggjandi í heildsölu hjá
Tóbaksverslun Islands, h.f.,
Reykjavík
jess, að svo verði meöan fram-
leiðsla og sala mjólkur er skipu-
agslaus. Hjer mun allur þorri
verkamanna og sjómanna aðal-
ega nota dósamjólk sökum þess,
hve mjólkin er dýr og hve örð-
ugt er að fá hana. Hlýtur öllum
að skiljast hve afaróheppilegt það
er, þar sem niðursoðna mjólkin
er bæði dýrari og ódrýgri en hin,
ef miðað er við nothæfi beggja,
að allur almenningur skuli ekki
eiga þess kost að kaupa nýmjólk-
ina. Þyrftu kúaeigendur að stofna
með sjer mjólkursölufjelagog selja
í fjelagi mjóikina. Mundi sú aðferð
miklu heppilegri en sú, sem nú
tíðkast, að hver selji sína mjólk
fyrir sig. En hvort sem kúaeig
endur hafa framtakssemi í sér til
þess eða ekki, þá þarf mjólkur-
verðið að lækka og það sem
allro fyrst.
Spanskflugan.
Gamanleikur. í þrem þáttum
eftir Franz Arnold og Ernst Bach.
Undanfarnar vikur hefir leik-
flokkur stúkunnar „Nýja öldin“
og Verklýðsfjelags Norðfjarðar
sýnt gamanleikinn „Spanskflug
an“. Hefir leikur þessi ekki fyr
verið sýndur hjer eystra, en fyr-
ir norðan og sunnan hefir hann
áður verið leikinn.
Er leikurinn hinn hnyttilegasti
og sprenghlægilegur með köflum.
Leikendurnir fara vonum betur
með hlutverk sín og. gerfin eru
flest ágæt.
Fjögur kvöld hefir leikurinn
verið sýndur og oftast hefir ver-
ið húsfyllir. — Verður vafalaust
leikið nokkrum sinnum enn.
Hlægilegri leikur en Spanskflug-
an“ mun ekki hafa verið sýndur
hjer áður. Eiga þeir menn sann
arlega þakkir skyldar, sem verja
fje og tíma til þess að æfa og
útbúa skemtilega sjónleiki, sem
stytta má vetrarkvöldin við, og
ætti alþýða að sýna, að hún
skildi þá viðleitni, með því að
sækja leikina.
Að vísu mun fjárhagur ýmsra
þröngur nú, en vart mun nokkur
geta kosið sjer betri kvöldskemt-
un og ódýrari en skemtilegan
gamanleik. það er hressandi; að
fá sjer hláturkast, og þegar tilefn
ið er jafn græskulaust og það
sem Spanskflugan veitir, ætli
enginn, sem getur, að láta undir
höfuð leggjast að veita sjer það
Engum efa er það bundið, að
allsæmilegir leikkraftar munu vera
til hjer í bænum, leikkraftar, sem
lyft gætu stærra taki en Spansk-
flugan er. En vegna húsnæðis
vandræða er ókleift að sýna hjer
Bestu
sælgætisvðrurnar,
hverju nafni sem nefnast, fáið þjer frá
James Killer & Sons, Dundee
(deild úr heimsfirmanu Crosse & Blackwell, London).
Snúið yður til
Tóbaksverslunar Islands, hf.
Einkasalar á íslandi.
eiki, sem veruleg list er í og
sem varanlegt gildi liafa.
Húsrúm það — Bíóhúsið —
serr, við er notast til allra skemt-
ana hjer, er algerlega óhæft til
þess að bjóða fólki inn í, bæði
sökum raka, ónógrar loftræsting-
ar og annara missmíða hvað
hreinlæti og aðbúnað snertir.
Baklausir bekkir í leikhúsi til-
heyra fremur liðnum öldum en
þeirri þæginda-öld, sem vjer lif-
um á.
Mun nú og svo komið, að
mikill meirihluti bæjarbúa sjer, að
ekki verður lengur beðið með
byggingu samkomuhúss og verð-
ur að hefjast handa þegar á
næsta sumri, því það er sýnt, að
rekstur samkomuhúss í höndum
einstaklinga verður hjer aldrei
annað en ómynd ein. Það virð-
ist nú reynt til þrautar.
Leikflokkurinn mun hafa í
hyggju að sýna annan gamanleik
að þessum loknum. Og verði
hann jafn skemtilegur og Spansk-
flugan, verður leikendum ekki
kent um að þeir bafi ekki gert
sitt til að varpa gleðigeisla inn í
vetrarmyrkrið, sem stundum er
svo dimt hjerna fyrir austan. *
Byggingasamþykt
fyrir Neskauptún öðlaðist gildi
1. þ. m., samkvæmt tilkynningu
frá Atvinnumálaráðuneytinu.
Verða því þeir, sem hjer eftir
gjöra mannvirki, hús eða annaö,
að leita til þess samþykkis bygg-
ingarnefndar. Verður með þessu
vonandi lokið þeirri óöld í bygg-
ingarmálum, sem verið hefir
hjer síðan bærinn byrjaöi að
byggjast, og tími er kominn til
að afljetti. Skipulagsuppdráttur
kauptúnsins mun verða fullgerð
ur í vor, en vart kemur hann til
framkvæmda fyr en ári síðar.
Hnífsdalsmðlið.
í „Tímanum“ 17. des. erglögg
skýrsla um hið landkunna Hnífs-
dalsmál. Er það að mestu út-
dráttur úr rjettarbókunum og því
heilbrigðasta skýring málsins, sem
hægt er að fá. Auk þess eru í
blaðinu um 40 rithanda sýnishorn
af nöfnum á hinum fölsuðu seðl-
um og nöfnum manna teknum í
rjetti. Dómur er enn eigi fallinn
í málinu. Hafa hinirfölsuðu seðl-
ar og handskriftir hinna grunuðu
verið send til ensku lögreglunnar
— Scotland Yard — til frekari
rannsóknar. Mun beðið með dóm-
inn þar til skýrsla kemur þaðan.
Sennilega una íhaldsblöðin illa
svo gaumgæfilegri rannsókn máls,
sem þessi er orðin, og er ekki
ólíklegt að þau rísi enn upp til
varnar svikunum og ósómanum.
Er nú svo kornið að þau munu
hafa meiri skömm af framkomu
sinni í þessu máli en af þeim
mun skafin verða, meöan íhalds-
flokkurinn svonefndi hangirálífi.
úr þeirn órjettij sýslunefndin gerir
það ekki og getur það heldur ekki,
Önnur aðalröksemd þingsins var
það. að á Akranesi sjeu fieiri íbú-
ar en á Norðfirði, og því megi bú-
ast við sömu kröfu þaðan. Það er
rjett, að á Akranesi eru álíka marg-
ir íbúar og á Noröfirði. en sá stór-
kostlegi munur er á þeim tveim
stöðum, að á Akranes eru engar
siglingar, en á Norðfjörð munu nú
mestar siglingar hjer austanlands.
Þaö er munurinn.
Væru engar siglingar til Norð-
fjarðar, þyrfti hjer engan lögreglu-
stjóra. Allir tollar væru þá innheimt-
ir á þeim stað innlendum, sem var-
an kæmi frá, og um tollsvik eða
smyglun yrði ekki aö ræða. Bæjar-
málunum mætti þá koma fyrir með
því, að ráða fastan bœjarráösmann
vissra ára bil, og væri þá málum
svo vel skipað sem þyrfti. En þetta
er ekki liægt hjer. Þó hreppsnefnd
ráði bæjarráðsmann og gjaldi full
laun, lagast ekkert lögreglueftirlitið
við það. Undanfarin tvö ár hefir
hreppurinn haldið uppi lögreglueft-
irliti, launað sjerstakan lögregluþjón.
Því gæti hann hætt og tekið þau
laun til að greiða bæjarráðsmanni,
sern hefði á hendi framkvæmdir
allra mála sveitarinnar, undir eftir-
liti hreppsnefndarinnar.
En með því er aðeins helmingur
þess unninn, sem nauðsyn er að fá.
Og felli þingið frumvarpið enn,
verður lögregluþjónsstarfið vafalaust
lagt niöur og bæjarráðsmaður ráð-
inn. Mun þá sveitarstjórnin senni-
lega ekki leggja fje lengur til þess,
aö gera það sem ríkinu ber, aö
annast löggætsluna. En vonandi
kemur ekki til þess.
Vonandi er þetta þing það betur
skipað en undanfarin þing liafa ver-
ið, að það sjái, að ranglæti er
framið gagnvart þessu sveitarfjelagi.
Ranglæti, sem aö verulegri sök get-
ur komiö, ef ekki er úr því bætt,
áður en það er um seinan.
Á Norðurlandi eru fjórar siglinga-
hafnir — tvær þeirra stórar — Siglu-
fjörður og Akureyrí — en tvær
smáar, Sauðárkrókur og Húsavík.
— I öllum þessum bæjum eru lög-
reglustjórar búsettir, og einn á Norð-
urlandi auk þeirra (sýslum. Húnav.s.).
A Austurlandi ern fimm siglinga-
hafnir — engar að vísu eins stórar
og Akureyri og Siglufjörður — en
allar með stærri útflutningshöfnum
á landinu, en þar eru aðeins tveir
lögreglustjórar. Á meðan kauptúnin
eru lítil, geta hreppstjórar annast
umboðsstörfin, en er þau stækka,
verður það ókleift. Starfinn er svo
iila launaður, að enginn getur tekið
hann að sjer sem aðalstarf og sem
aukastarf er það of umfangsmiklö
og ábyrgðarmikið. Svo erþaðoröið
hjer á Norðfirði. Austurland hefir í
öllum greinum verið afskift liingað
til. Þingið hefir sýnt þeim lands-
hlutanum Iangminstan sóma, enda
hafa Austfiröingar lítt á það sókt.
Vitarnir hjer við suðaustur-hornið
eru það eina, sem það opinbera
hefir til Austfjarða lagt. Ber vitan-
lega að þakka það, en meira verð-
ur að gera, eigi Austfirðir ekki að
dragast aftur úr. Hjer verður að
koma á betri samgöngum á milli
bæjanna og annara landshluta. Gagn-
fræðaskóla verður að koma upp og
vegi verður að leggja upp frá kaup-
túnunum og inn í sveitirnar. — En
þetta fæst ekki fyr en þingið sýnir
þessum landshluta meiri sóma en
hingað til hefir verið gert. Austfirð-
ingar verða að taka höndum saman
og hefja Austurland upp úr þeirri
deyfð, sem yfir því hefir hvílt um
langt skeið. Atvinnuvegina verður
að tryggja og endurbæta og menn-
inguna verður að auka á alla lund.
Mörg verða viðfangsefnin á vegin-
um þeim, og eitt þeirra, og ekki
það minsta. eru bæjarrjettindi handa
stærsta kauptúninu á Austurlandi.
Þaö er engu síður menningarmál en
fjárhagsmál, og því væntum vjer
þess, að hinn nýi meirihluti á Al-
þingi beri gæfu til að leysa þetta
mál svo, að honum verði til sæmd-
ar en oss til blessunar.
J. G.