Jafnaðarmaðurinn - 10.02.1928, Side 1
3. tölublaö
Noröfiröi, 10. febrúar 1928
3. árgangur
Jafnaðarmannastjórn
í Noregi.
Jafnaðarmannastjórn er nú full-
mynduð í Noregi. Heitir forsætis-
ráðherrann IJornsrud ogerhann
jafnframt fjámiáiaráðherra. Ed-
vard fíuli prófessor er utanrík-
isráðherra og Madsen fjelags-
málaráðherra. Hverjir hinir ráð-
herrarnir eru, hefir enn eigi frjetst.
Stjórnarmyndun þessi er eðlileg
afleiðing iiins stórkostlega kosn-
ingasigurs, er verkamenn unnu
í kosningunum í haust. Senni-
legt er, að bændaflokkurinn styðji
stjórnina, því einir sjer hafa jafn-
aöarmenn ekki meirihluta, þó
konimunistar styðji þá.
Hefir þá jafnaðarmannastjórn
verið mynduð á öllum Norður-
löndum nerna fslandi. Svona
langt er þá málum alþýðu kom-
ið í nágrannalöndum vorum.
Allstaðar hafa stjórnir jafnaðar-
manna getið sjer hið besta orð
fyrir dugnað og hagsýni, en all-
ar liafa þær orðið að hverfa frá
völdum vegna þess, að hinar
róttæku umbótatillögur þeirra
hafa strandað á andstöðu stuðn-
ingsflokkanna, sem ýmist liafa
verið bændur eða „frjálslyndir".
Hvenær kemst ísland svona
langt?
Hugheilar óskir um gott og
göfugt starf senda íslenskir jafn-
aðarmenn frændum sínum í Nor-
egi, og jafnframt vonum vjer,
að lijer heima megi takast að
sameina svo íslenska alþýðu til
skipulagsbundinnar sóknar í sín-
um eigin velferðarmálum, að ekki
verði þess langt að bíða, að ís-
land fái einnig sína jafnaðar-
mannastjórn.
Framsókn þríklofnar.
Það málið, sem mestum um-
ræðum hefir valdið á þingi, það
sem af er, er kosning Jóns Auð
unns Jónssonar, þm. N.-ísafjarð-
arsýslu. Var í þingbyrjun frestað
að taka gilda kosningu hans, og
var beðið álits kjörbrjefanefndar,
en hana skipuðu Sv. Ól., Magn.
Guðm., Gunnar Sig. og Sigurður
Eggerz. Þegar álitið kom, vildu
allir nefndarmenn taka gilda kosn-
inguna nema Hj. V., hann vildi
ógilda hana og kjósa að nýju.
Hófust nú langar umræður
um mál þetta í Sameinuðu þingi,
er fóru mest fram á kvöld- og
næturfundum. Voru þær hinar
bvössustu. Kom þá í ljós að í-
haldið stóð fast og einhuga um
að fá kosninguna tekna gilda og
jafnaðarmenn voru jafn einhuga
um að ógilda hana. Framsókn
aftur á móti var skift. Var það
að vonum, því niðurstaða Fram-
sóknarmanna í kjörbrjefanefndinni
íslenska listasýningin í Kaupmannahöfn.
Að tilhlutun stórblaðanna dönsku var sýning á íslenskum listaverkum opnuð í Kaupmannahöfn
10. desember s. 1. Voru þar málverk og fjöldi annara listaverka eftir íslendinga, er bæði dvelja hjer
heima og erlendis, og munu flestir fslenskir listamenn hafa átt þar gripi. Matthías Þórðarson, forn-
menjavörður veitti sýningunni
forstöðu og hlaut hún hið mesta
hrós. Blaðið flytur nú nokkrar
myndir frá sýningu þessari. Er
fyrsta myndin af stól, og er stól-
setan gamall söðull; sýnist gripur-
inn vera hinn haglegasti. Þá er
mynd af skessunni í Búkollusög-
unni og dóttur hennar, þar sem
hún er að bora gatið á fjallið.
Mynd þessi er eftir Guðmund
heitinn Thorsteinsson og þótti
Dönum mjög mikið til mynda
þeirra koma, er hann átti á sýn-
ingunni. Þriðja myndin er eftir
Jóhannes Kjarval og sú fjórða
er af útskornu reyktóbaksskríni,
er virðist mjög haglegur gripur.
Þá er og málverk eftir Júlíönu
Sveinsdóttur og andlitsmynd eftir
Jóhannes Kjarval.
Að lokinni sýningu í Höfn var hún flutt til Þýskalands og er nú sýnd þar við góðan orðstír
var í algerðu ósamræmi við fram-
komu og aðgerðir stjórnarinnar
í Hnífsdalsmálinu, en það mál
snertir kosningu þessa mjög mik-
ið. Fóru svo leikar, er til at-
kvæðagreiðslunnar kom.aðFram-
sóknarflokkurinn þríklofnaði, og
fylgdi sinn ráðherrann hvoru
flokksbrotinu. Stýrði fjármála-
ráðherra einu og fylgdi það í-
haldinu, dómsmálaráðherra öðru
og fylgdi það jafnaðarmönnum,
en hið þriðja sat hjá og hafði
forsætisráðherrann þar forustuna,
og var sá flokkurinnn stærstur.
Þetta er fyrsta málið, sem Fram-
sókn greiðir atkvæði um, eítir
að hún varð stjórnarflokkur, og
mun ýmsum finnast, að ekki
hafi henni tekist þar giftusamlega
með samhaldnina. Jón A. Jóns-
son var því tekinn gildur sem
þingmaður, með 22 atkvæðum
gegn 11, og má íhaldið þakka
Framsókn fyrir gjöfina.
Fiblger, prófessor við Hafnarhá-
skóla, er látinn.
Andlitsmynd eftir Jóh. Kjarval.
Alþingi.
Alþingi var hvatt saman 19. f.
m. Fyrsta aíreksverk þess var aO
fresta að taka gilda kosningu
Jóns Auðunns Jónssonar. Hefir
síðan staðið mikið stapp um
það mál, og er þess minst á
öðrum stað hjer í blaðinu.
Forseti Sameinaðs þings var
kosinn Magnús Torfason, sýslu-
rnaður Árnesinga. Jóh. Jóhannes-
son fjekk 15 atkv., en 6 seðlar
voru auðir. Forseti Neðri deildar
var endurkosinn Benedikt Sveins-
son, en Guðmundur Ólafsson
var kosinn forseti í Efri deild.
Flokkaskifting í deildum þingsins
er sú, að í Efri deild eiga sæti
6 (haldsmenn, 6 Framsóknar-
menn og 2 Jafnaðarmenn — þeir
Jón Baldvinsson, landskjörinn og
Erlingur Friðjónsson, þm. Akur-
eyrarkaupstaðar.
í Neðri deild hafa íhaldsmenn
10 þingmenn, Framsókn 13, Jafn-
aðarmenn 3, „frjálslyndir“ 1 og
utan flokka er 1 (Gunnar Sig-
urðsson). Mannaskifti hafa orðið
í deildunum þau, að í Efri deild
hafa komið Páll Hermannsson
og Erlingur, en Einar Jónsson á
Geldingalæk og Jóh. Jósepsson,
Vestm., hafa fengið sæti í Neðri
deild.
Þar sem gera má ráð fyrir að
þing þetta sitji alt þetta kjör-
tímabil, telur blaðið rjett að skýra
lesendum sínum frá skipun hinna
föstu nefnda í þinginu, er þá
gleggra að átta sig á afgreiðslu
þingmálanna, ef kunnugt er um
skipun nefnda.
Neðri deild: Fjárhagsnefnd:
Hannes Jónsson, Halldór Stef.,
Hjeðinn Vald., Ól. Thors, Sig.
Eggerz. Fjárveitinganefnd: lng-
ólfur, P. Ottesen, Þorleifur í
Hólum, M. Torfason, Jón Sig-
urðsson, Haraldur Guðm., Bjarni
Ásgeirsson. Samgöngumálanefnd:
Hannes, Gunnar Sigurðsson, Sig-
urjón Ólafsson, Hákon í Haga,
Magnús Guðmundsson. Land-
búnaðarnefnd-. Jörundur, Bern-
harð, Lárus Helgason, Jón Ól-
afsson, Einar Jónsson. Menta-
málanefnd: Ásgeir Ásg., Bern-
harð, Lárus, Magnús Jónsson,
Jóhann Jósepsson. Allsherjar-
nefnd-. Sveinn Ól., Gunnar, Hjeð-
inn, Magn. Guðm., Hákon í Haga.
Sjávarútvegsnefnd: Sv. Ól., Sig-
urjón, Jörundur, 01. Thors, Jó-
hann.
Efri deild: Fjárhagsnefnd: Jón
Baldvinsson, Ingvar Pálmason,
Björn Kristjánsson. Fjárveitinga-
nefnd: Einar Árnason, Páll Her-
mannsson, Eriingur Friðjónsson,
Jóh. Jóh. Ingibjörg H. Bjarnason.
Saitgöngumálanefnd: Páll Her-
mannsson, Einar Árnason, Hall-
dór Steinss. Landbúnaðarnefnd:
E. Árnason, Jón Baldv., Jónas
Kristjánsson. Sjávarútvegsnefnd: