Jafnaðarmaðurinn - 25.05.1928, Síða 4
4
JAFNAÐARMAöUKINN
svalir Alþingishússins léðar til
ræðuhalda án þess, að nokkur
hafi nokkurntíma haft nokkuð við
það að athuga, enda er það eini
staðurinn í miðbænum, sem hægt
er að flytja ræður á, svo að mik-
ill mannfjöldi nái að heyra.
Forsetarnir neituðu þessari
beiðni Fulltrúaráðsins með 2 at-
kv. gegn 1.
Er þetta uppátæki þeirra næsta
undarlegt. Þó er ástæðan, sem
þeir báru við, enn þá hjákátlegri.
Hún er sú, að eigi sje viðeigandi
að lána svalirnar til „pólitískra
ræðuhalda".
Heyr á endemi!
Fundi er vitaskuld ekki hægt
að halda á svölunum. Mannfjöld-
inn safnast auðvitað saman á
Austurvelli og á götunum kring-
um hann. Það er enginn fundur
á svölunum, þótt 2 eða 3 menn
flytji þar ræður, og tæplega get-
ur það talist vanhelgun,'pótt þar
sje minst á „pólitík11. Það er
meira en broslegt, að /orsetun-
um skuli finnast það „óviðeig-
andi“, að tala um pól'tík á svöÞ
um Alþingishússins. F.var má þá
tala um „pólitík", e f ekki ein-
mitt þar?
Næsta verk hæsi /irtra forseta
verður líklega að úrskurða „póli-
tík óviðeigandi innan veggja Al-
þingishússins og banna með öllu
umræður um hana þar.
[Alþbl.J
Skrá
yfír lítsvör í Neshreppi
liggur frammi almenningi til sýnis á skrifstofu hrepps-
ins frá 15. þ. m. til 15. júní næstkomandi.
Kærur sjeu afhentar á skrifstofu hreppsins fyrir 15.
júní.
Norðfirði, 14. maí 1928.
Oddviti Neshrepps.
Kaupið og lesið „Jafnaðarmanninn“
Klœðaverksmiðjan GEFJUN
á Akureyri
hefir altaf fyrirliggjandi nægar birgðir af allskonar fataefnum og eitt-
hvað við allra hæfi. — Ullareigendur fá að minsta kosti 2 kr. meira
fyrir hvert kíló af ull sinni, með því að láta vinna úr henni í verk-
smiðjunni. — Verksmiðjan leggur alla áherslu á að vinna úr íslenzku
ullinni sem fallegasta og haldbezta dúka. Enda komin langt í því, að
ná þar fullkomnun. — Margar nýjar tegundir frá vorinu.
íslendingum verður að lærast að nota sem mest sitt eigið.
Umboðsmenn verksmiðjunnar, sem eru á hverri höfn kri ng
um landið, gefa ailar upplýsingar um verksmiðjuna, svo sem:
Karl Jónasson spítalahaldari, Seyðisfirði,
Hjálmar Vilhjálmsson, Brekku, Mjóafirði,
Sigfús Sveinsson, kaupmaður Norðfirði,
Guðmundur Jóhannesson, kaupmaður, Eskifirði,
Þorsteinn Jónsson, kaupfélagsstjóri, Reyðarfirði,
Guðni Stefánsson, verzlunarmaður, Fáskrúðsfirði.
Utsvörin.
Skrá yfir útsvör á Norðfirði, fyrir
árið 1928, liggur nú frammi almenn-
ingi til sýnis.
Þessir gjaldendur greiða yfir 500
krónur í útsvar:
12000 krónur:
Verslunin Konráð Hjálmarsson.
10000 krónur:
Sigfús Sveinsson kaupmaður.
2000 krónur:
Björn Björnsson kaupmaður, Jón
ísfeld kaupmaöur.
1800 krónur:
veita tóbak unglingum innan 18
ára aldurs.
Þar sem nú á síðustu árum
hefir aukist svo að mun tóbaks-
notkun unglinga að gengur
hneiksli næst, að sjá svo að segja
smádrengi ganga með rjúkandi
vindlinga í munninum ra göt-
urnar.
Virðist því að mál þerta ætti
að snerta svo almenning, að menn
tækju það alment til athugunar,
hvort ekki er vert að fara að
gera alvarlegar ráðstatanir í þessu
máli, ekki síður utan reglunnar
en innan.
Jón Sigurjónsson
SKIPA-og BATA-
DIESELVÉLAR,
af stærðunum 6—1000 hk. Arleg fram-
leiðsla 350000 hk.: 15000 vélar. Selt í
Oanmörku 6 sfðustu árin 720 vélar.
Vegna þess, að DEUTZ-mótorvélin
er búin til af elztu og stærstu vélaverk-
smiðju Evrópu, er vélin framar öllum
öðrum hvað snertir
byggingu, efni, gang-
vlssi og sparneyti. —
Biðjið um tilboð.
Herm. Thorsteinsson & Co.
Sími 13. Seyðisfiröi. Sfmnefni: Manni.
Umboðsmaður fyrir Austur- og Norðurland.
Nútíðar villimenska.
Fyrir nokkru var sýnt fram á það
hjer í blaöinu, að frelsið, sem
Ihaldsmenn tilhiðja, er skylt frelsi
villimannsins, sem er barátta allra
gegn öllum, samfara ótta við áhlaup
óvinanna og hneigö til að kúga
hina máttarminni. Hjer skulu nefnd
tvö dæmi um skyldleikann.
Nýjasta uppfynding á Fáskrúðs-
firði í þrælkun verkalýðsins er sú,
að láta konur vinna erfiðustu karl-
mannsverk, svo sem að hjóla stór-
um börum kúfuðum af blautum salt-
fiski eftir ósljettum malarvegi. Er
það verslunarstjóri hjá Júl. G., sem
gengur á undan í þessu efni, og
þykir stórkostleg sparnaðarráðstöf-
un, að þurfa ekki að borga nema
55 aura tímakaup fyiir verk, sem
áður kostáði 80 aura. — Eins og
kunnugt er, láta villimenn, sem standa
á lægsta menningarstigi, kvenfólkið
vinna verstuog óþrifalegustu verkin.
Annaö er ótti kaupmanna við
stofnun kaupfjelags. Seinnipartinn í
vetur mynduðu nokkrir útgerðar-
menn á Fáskrúðsfiröi kaupfjelag, og
varð kaupmönnum svo bilt við, að
lá við örvilnan. Vildi líka svo óheppi-
lega til, að tveir helstu máttarstólp-
ar kaupmenskunnar voru fjarverandi
um það leyti. Gekk ekki á öðru, aö
sögn, um lengri tíma, en hraðsam-
samtölum milli kaupmanna um það,
hvernig skyldi kveða þenna draug
niður. Hlupu þeir jafnvel í kapp við
fjelagið um hús, sem fjelagið vildi
leigja — og höfðu margir gaman
að þessum gauragangi. En nú eru
kaupmenn búnir að taka afturgleði
sína, enda mun öllu óhætt.
* *
Sæm. Þorvaldsson & Waldorph.
1500 krúnur:
Fóðurmjölskerksmiðja Norðfjarö-
ar.
1000 krónur:
Verslun Jóns Arnesens. Jón Guð-
mundsson prófastur, Lúðvík Sig-
urðsson útgerðarm.
700 krónur:
Pjetur Thoroddsen hjeraöslæknir.
600 krónur:
Vilhjálmur Etenediktsson verslun-
arstjóri, Jón Sigfússon kaupm.
500 krónur:
Verslun Sveinbjargar Eiríksdóttur,
e.s. „Atli“, m.k. „Sleipnir".
Umdæmisstúkan nr. 7
hjelt 5. ársþing sitt á Seyðisfirði
dagana 23. og 24. maí.
Mættir voru 14 fulltrúar frá 6
stúkum á umdæmissvæðinu.
í framkvæmdarnefnd til næsta
árs voru þessir kosnir:
U. æ. t. Sigdór V. Brekkan,
kennari, Norðfirði.
U. k. Stefán Guðmundsson,
Norðfirði.
U. v. t. Stefanía Snævarr, Norðf.
U. g. ust. S. Fougner-Johan^en,
bókbindari, Seyöisfirði.
U. g. lögg.st. Ingvar Pálmason,
alþingism. Norðfirði.
U. r. Jón Sigurjónsson, Norðf.
U. g. Páll G. Þormar, kaupm.
Norðfirði.
U. kap. Steinn Jónsson, kenn-
ari, Norðfirði.
U. f. æ. t. Vigfús Sigurðsson,
útgerðarmaður Norðfirði.
Kosinn var fulltrúi á Stór-
stúkuþing Jón Jónsson bóndi í
Firði, og til vara Jón Sigurðsson
kennari.
Ásamt ýmsum öðrum ákvörð-
unum, er þingiö tók, samþykti
það að skora á Stórstúkuna,
að keppa að því, að með lög-
um verði bannað að selja eöa
u. r.
Björgunarbátar.
Gúmmí-skipsbátar í stað trjebáta.
í þýsku vikublaði frá 27. nóv.
s. I. er getið nýrrar gerðar björg-
unarbáta. Eru það gúmmíbátar,
sem hægt er að þenja út, því
þiljur þeirra eru úr hólfruðum
gúmmíhylkjum, sem vefja má
saman í böggul, þegar ekki þarf
að nota þá. Er hægt að þenja
þá út á l1/2 mínútu með hand-
dælu. Þessum bátum má henda
fyrir borð án alls útbúnaðar, og
burðarmagn þeirra er langt um
meira en fyrirferð þess, er þeir
rúma. Svona bátar hafa verið út-
búnir með hreyfivélum.
Blaðið lýsir því, hversu sein-
legt er oft að koma trjebátum í
sjóinn, auk þess sem þeirbrotni
oft við skipshlið, meðan á því
stendur, svo sje og burðarmagn
þeirra takmarkað. Segir blaðið,
að gúmmíbátarnir sjeu langtum
hentugri en trjebátar, bæði á
stórum og smáum skipum, eink-
um vegna þess, hve þeir eru
fyrirferðarlitlir og fljótteknir til
notkunar.
Loks segir blaðið frá því, til
dæmis um nothæfni útþaninna
gúmmíbáta, að einn slíkur var
það, sem bjargaði Byrd flug-
manni, er hann „lenti“ í Erm-
arsundi s. 1. haust.
[Alþýöubl.J
Skákmeistari
íslands varð nú í vor Einar
Þorvaldsson í Reykjavík. Stóð
úrslitaorustan milli hans og Ara
Guðmundssonar.
flTHiifimi—-
Skonrok ogKringlur á kr. 1,00 kg. og
Tvíbökur á kr. 1,90 kg. í heildsölu.
Kaupmenn og ðtgerðarmenn! Pantið með
fyrirvara. Sent gegn pöstkrðfu útum land.
Sigmar Friðriksson
bakari, Seyðisfirði.
Reyktóbak.
Garrick Mixture
Capstan —
Glasgow —
Waverley —
Richmond —
n/c.
Capstan
St. Bruno Flake
MossRose enskt&danskt
Feinr- Shag
Mix
Golden Bell
Gordon Mixture
Engelsk Flag
Islandsk --
Bills Best
Central Union
Saylor Boy
og allar aðrar þektustu reyktóbakstegundir
heimsins eru ávalt fyrirliggjandi í heiidsölu hjá
Tóbaksverslun Islands, h.f.,
Reykjavík.
Helgi Guðmundsson ' frá Reykholti hefir verið skip- i og sumt stórhýsi.
aður verslunarfulltrúi á Spáni. Smásíld og loðna veiðist altaf öðru hvoru á Seyð-j
Um 200 hús verða reist í Reykjavík í sumar isfirði.