Neisti - 11.03.1936, Qupperneq 1
Útgefandi: Jafnaðarmannafélag Siglufjarðar.
IV. árg.
Siglufirði, miðvikudaginn 11. marz 1936
7. tbl.
Fundurinn á föstudags-
kvöldið.
r
Ihald og Framsókn smöluðu á
fundinn til liðs við kommúnista.
Verkamannafélag Siglufjarðar boð-
aði til opins fundar í Alþýðuhús
inu og boðaði þar sérstaklega stjórn
„Próttar" til að svara til saka, fyrir
það, að vilja sameina siglíirzka
verkamenn í eina samtakaheild.
íhalds- og Framsóknarmenn fjöl-
menntu mjög á fundinn til liðs
við kommúnistana, sem stjórna
Verkamannafélagi Siglufjarðar.
Ræðutíma var deilt jafnt á milli
flokka, þeirra sem vildu sameina
verkalýðinn og þeirra, sem vildu
að verkalýðurinn væri sundraður
eins og nú er. Af hálfu þeirra er
vildu að verkalýðurinn atæði sam-
einaður töluðu þeir Jóhann F.
Guðmundsson, Kristján Sigurðsson,
Jón Sigurðsson, Baldvin P. Krist-
járisson, Guðberg Kristinsson og
Jón Jóhannsson, en af hálfusundr-
ungarmanna Póroddur Guðmunds-
son, Páll Ásgrímsson, Aðalbjörn
Pétursson og Gunnar Jóhannsson.
Angantýr Guðmundsson talaði
einnig og mælti heldur með sam-
einingu.
Að tiihlutun sundrungarmanna
kom fram svohljóðandi tillaga:
„Alrnennur fundur haldinn
að tilhlutun Verkamannafélags
Siglufjarðar, í Alþýðuhúsinu á
Siglufirði 6. marz 1936 lýsir
yfir megnustu andúð sinni á
tilraun Verkamannafél. „Prótt-
ur“ til að útiloka þá verka-
menn frá vinnu, sem ekki eru
í félaginu. Fundurinn telur
þetta sérstaklega ranglátt þegar
tekið er tillit til :
I 1. lagi að hér á staðnum
er annað verkamannafél. sem
hefir fjórum sinnum fleiri
borgandi meðlimi en „Próttur".
/ 2. lagi að „Próttur“ er
deilti í pólitískum flokki og í
félaginu hafa engir full rétdndi
nema meðlimir þess flokks.
/ 3. Jagi að félagið er ekki
opið öllum verkamönnum.
Fundurinn álítur hypgilegast
að verkalýðsfélögin séu óháð
pólitískum flokkum og að inn-
an þeirra ríki pólitískt skoð-
anafrelsi og jafnrétti.
Fundurinn lýsir yfir trausti
sínu á Verkamannafél. Siglu-
fjarðar fyrir aðgerðir þess til að
hindra þetta gerræði „Próttar“
og heitir félaginu stuðningi
sínum. Fundurinn skorar á
Verkamannafél. Siglufjarðar að
skilja ekki við þetta mál fyr
en ofbeldistilrauninni er ger-
samlega hrundið og hika ekki
við að leggja út í verkfall ef
' annað dugar ekki. Að síðustu
skorar fundurínn á alla frjáls-
lynda menn að fylkja sér gegn
því. aðvið vinnuúthlutun, ráðn-
ingu og embættaveitingu verði
farið eftir pólitískum skoðun-
um manna“.
Var þá að tilhlutun „Próttar“*
manna lögð fram dagskrártillaga
svohijóðandi:
„Par sem ekki verður um
það deilt, að fyrsta skilyrðið
fyrir því, að alþýðusamtökin
seli náð tilætluðum árangri, er
það, að öll hin vinnandi al-
þýða sameinist í eina órjúf*
andi samtakaheild, og þar sem
það er jafnframt vitanlegt. að
stórkostlega mikill meiri hluti
alls verkalýðs við sjávarsíðuna
er skipulagsbundinn innan vé-
banda Alþýðusamtakanna, skor-
ar fundurinn á alla þá, ser,x
enn standa utan við þessi
samtök, að hugsa meira urn
hagsmuni heildarinnar en dæg-
urþras og valdadrauma örfárra
einstaklinga, og sýna það í
verkinu með því að fylkja sér
undir merki alþýðusamtakanna
í landinu. I trausti þess, að
verkalýðurinn sjái hvaðan úr-
lausnar er að vænta, tekúr
fundurinn fyrir næsta mál á
dagskrá".
Atkvæðagreiðsla fór þannig, að
dagskrártillagan ver felld með 118
atkv. gegn 53, en tillaga sundrung-
armanna var samþykkt með 125
atkv. gegn 45.
Nazistar, íhaldsmenn, atvinnurek-
endur og foringjar framsóknarmanna
vottuðu kommúnistum traust sitt
um leið og þeir greiddu atkv. með
tillögu þeirra, og eru kommar vel