Neisti - 01.05.1936, Page 1
1. m a í 1936.
SIGLFIIfZK ALÞÝÐA.
1. maí er baráttudagur verkalýðsins um heim allan.
í dag kemur verkafólkið sainan til skipuiagningar áframhaldandi baráttu fyrir bættum lífsskilyrðum og full-
komnu frelsi, það kemur saman til þess, að líta yhr farinn veg, gleðjast sameiginlega yfir fengnum sigrum,
fá lærdóm af reynslunni þar sem misstígið heíir verið og nota þann lærdóm í baráítunni við andstæðingana.
Pað eru ekki mörg ár síðan verkalýðurinn bér á Siglufirði stóð sameinaður, yfirráð verkalýðsmála og bæjar-
mála voru í höndum verkafólksins sjálfs, verklýðsssatntökin voru það ráðandi afl á staðnum.
Su tíð er liðin. Sorglegir atburðir hafa gerst.
Sundrungaröfl hafa verið að verki og árangurinn er sá, að nú er siglfirskur verkalýður klofinn í marga
hluta, iítið máttugur ef á þarf að reyna.
f*að ástand, sem nú ríkir í verkalýðsmálum verður ekki þolað lengur, sameining og samvinna alls verka-
fólks verður að komast á.
Álþýðumaður og kona! í dag er 1. maí, dagur verkalýðsins, í dag verðum við hvert um sig, að heita
því, að vinna ótrauð og öfluglega að sameiningu stéttarinnar undir merki allsherjar landssamtaka alþýðunnar,
Alþýðusambands íslands.