Neisti - 16.09.1936, Qupperneq 4
4
NEISTI
Hérmeð tilkynnist
okkar heiðruðu viðskiftavinum, að löggiltir rafvirkjar við Rafveitu
Siglufjarðar eru:
Ásgeir Bjarnason, verkfræðingur,
Kristján Dýrfjörð, rafvirki,
Jakob Jóhannesson, rafvirki,
Jöhann Jóhannsson, rafvirki.
Aðeins ofangreindir menn hafa leyfi til að vinna að raflögnum í bæn-
um, hvort sem er um nýlagnir, viðgerðir eða breytingar að rseða, og
eru menn því beðnir að snúa sér til einhvers þeirra, ef ljós eða tæki
bila.
Betðnum á viðgerðum, heldur ekki á heimtaugum, verður ekki sinnt
af fólki rafveitunnar, nema þær komi frá löggiltum rafvirkja. Allar við-
gerðir á vartöppum (sikringum) eru óleyfilegar, og verður í því efni ná-
kvæmlega fylgt eftirleiðis hinni nýju reglugerð frá RafmagnseftirViti ríkisins
Sigluíirði, 31. ágúst 1936.
A|s Skeiðsfoss.
FRÁ BÆJARSTJORNARFUND-
INUM.
Frh. af 1. síðu.
Til flóðvarnar norður á
eyrinni 2400,—
— holræsis (kaup á rörum) 2000,—
Heilbrigðismál:
Til tryggingarstarfs 10000,—
— þrottakonu 500,—
Vatnsveitan:
Efniskaup og vinna 5000,—
Yms útgjöld :
Til Vetrarhjálpar 5000,—
— kirkjunnar 1100,—
— sundlaugar 2000,—
— dagheimilis barna 2000,—
eða samtals kr. 49950,—
Alla þessa liði samþykkja þeir
oddviti, Pormóður og Hertervig,
því aðrir voru ekki á fundinum
eins og fyr er frá skýrt.
Um þessar samþykktir nefndar-
innar óskuðu fjórir af fulltrúunum,
þeir Jóh. F. Guðm., Dýrfjörð
(sem var mættur fyrir Gunnl. Sig.)
Gunnar Jóhannsson og Póroddur
að fram yrðu látnar fara tvær um-
ræður, svo þeir gætu lagt þær fyrir
kjósendur sína, en við það var
ekki komandi. Á móti því voru
allir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknar með oddvita, eða 6 á
móti 4. Pegar hér var komið mál-
um, að sýnilegt var að þessir tveir
flokkar vildu að öllu hundsa full-
trúa jafnaðarmanna og kommúnista,
ákvað J. F G. að biðja um nafna-
kall um hvern lið útaf fyrir sig,
en slíkt átti ekki að leyfast, en
oddviti taldi ekki rétt að brjóta svo
algjörlega fundarsköp og ákvað því
nafnakallið.
Atkvæðagreiðslan fór þannig að
stóra íhaldið með litla íhaldinu
(Pormóði og Co.) samþykktu að
skera niður alla áðurtalda liði og
jafnframt að leggja á 20 prc, við-
bótarútsvör fyrir árið 1936.
Bæinn vantar nú kr. 133,100,—
— eitthundrað þrjátiu og firjú f>ús-
und og eitt hundrað hrónur — til
þess að geta staðist fjárhagsáætlun-
ina og nú þykjast „íhöldin" spara
rúmar 49 þúsundir og vanti því
ekki nema 83 þúsundir, og á sunnu-
daginn gekk bæjarstjórn frá lántöku
upp í 60 þúsundir sem greiðast
eiga á 20 árum, en með afföllum
og vöxtum fær bærinn ekki nema
50 þús. út úr láninu, eftir verða
því rúm 33 þúsund, sem þeir ætla
að jafna niður á bæjarbúa til við-
bótar við það sem þeir hafa áður
greitt á þessu ári, eða eiga að
greiða,
Siglfirskir verkamenn og konur.
Athugið nú hvað er að gerast:
niðurskurður á öllum atvinnubót-
um, fullrrúar ykkar í bæjarstjórn
virtir að vettugi, skattarnir hækk-
aðir og bærinn í fjárhagslegu
öngþveiti.
Nú verðið þið að sameinast á
móti óheillaöflunum og reka þau af
höndum ykkar og um það mun
síðar verða ritað.
D.
Kitstjóri og ábyrgðarmaður:
JÓN SIGURÐSSON.
Sigluf j ar ð ar pr entsmið j a.