Neisti - 22.12.1936, Síða 1
IV. árg. Siglufirði, þriðjudaginn 22. des. 1936 43. tbl.
II .... - M
JOLIN KOMA.
JÓL, JÓL, JOL!
Hið stóra tímans hjól,
sem tengt hefir mannkynið öld eftir öld
við hin æðri máttarvöld.
Lát gleðinnar geisla yfir sál okkar falla,
allt frá kotungans hreysi til konunga halla.
Engin barnsfæðing hefir haft jafn djúp áhrif á
hugi mannanna eins og fæðing mannkynsfrelsat-
ans Jesú Krists, því að hann var gæddur
svo miklum kærleika og guðdómskrafti, að hann
er sá e i n i, sem fæðst hefir í þennan heim,
sem hægt er að segja um með sanni að sé
SONUR GUÐS.
Pað er ekki aðeins trú okkar kristinna manna,
heldur fullvissa, að Kristur sé guðs sonur. Kenn-
ingar hans hafa talað gegnum aldaraðir og hugg-
að líðandi sálir og gefið þeim frið.
Kristur er sá eini af þeim miljónum miljóna
er fæðst hafa í heiminn, sem hægt hefir verið
að segja um með sanni:
Hann drýgði ekki synd og svik voru ekki
fundin í hans munni.
Með fæðingu hans breiðum við út þann boð-
skap:
Að svo elskaði guð heiminn, að hann gaf sinn
elskulega son, til þess að hver sem á hann trúir
glatist ekki, heldur hafi hið eilífa lífið.
Og nú, þegar ómarnir berast frá musteri guðs-
sonar, þá tökum við undir með fullvissu um, að
friður guðs breiðist yfirgjörvalla jörðina ogsyngj-
um með öllum styrkleika kærleika vors til
h a n s :
„í Betlehem er barn oss fætt . .
og við bætum við
„Heims um ból, helg eru jól! . . .“
og árnum svo öllum með bræðrum okkar og
systrum:
GLEÐILEGRA JÓLA!
Biðjandi þess, að barnið frá Betlehem, sem
andaðist á Golgatha, megi verða leiðarstjarna
okkar allra, því að þá verður
Friður! friður! friður!
friður guðs með yður.
Og þá tengist mannkynið öld eftir öld
við hin æðri máttarvöld,
og gleðinnar sól skín um heima alla,
allt frá kotungans hreysi til konunga halla;
D.
Messur um hátiðarnar:
Aðfangadagskvöld, aftansöngur kl. 6.
Jóladagur, hátíðaguðsþjónusta kl. 2.
II. jóladagur. hátíðaguðsþj. kl. 5.
Sunnud. 27. des,, barnaguðsþj. kl. 2.
Gamlaárskvöld, aftansöngnr kl. 6.
Nýársdagur, hátíðaguðsþj. kl. 2.