Neisti - 31.12.1936, Page 2
2
NEISTI
voru þrír listar í kjöri.: einn frá
Alþýöuflokknum, einn frá í-
haldinu og einn frá kommúnistum.
Alþýðuflokkurinn fékk fjóra fulltrúa
kosna, íhaldsflokkurinn fjóra og
kommúnistar einn, Eggert Porbjarn-
arson. Nú voru góð ráð dýr: allt
valt á aíkvæði Eggerts í bæjar-
stjórninni. A fyrsta fundi hennar
tók hann það viturlega ráð að
stilla Gunnari Benediktssyni Saur-
bæjarklerk sællar minningar upp
við bæjarstjórakosninguna sem full-
trúa kommúnistaflokksins, þannig
að bæjarstjóraefni Alþýðuflokksins,
Jens Hólmgeirsson, og íhaldsflokks-
ins, Jón Auðunn Jónsson, fengu
jöfn atkvæði, eða fjögur hvor. Það
varð því að varpa hlutkesti, og það
fór þannig, að Jón Auðunn varð
bæjarstjóri. Við allar nefndarkosn-
ingarnar sat Eggert Eorbjarnarson
hjá, þannig að hlutkesti, þ. e. a. s.
tilviljunin varð einnig að gera út
um það hvort Alþýðufiokkurinn eða
íhaldsflokkurinn fengi meirihluta í
þeim. íhaldið fékk meirihluta í
þeim flestum.
í flokksblaði sínu „Vesturlandi"
taldi íhaldið sig hafa völdin á ísa-
firði, þrátt fyrir það að þeir áttu
ekki nema 4 fulltrúa kjörna, eða
jafnmarga og Alþýðuflokkurinn.
Völdin gátu þeir ekki talið sér,
nema telja kommúnistan sem sinn
stuðnings eða bandamann, en það
var óhætt, óbeint studdi Eggert
íhaldið.
Verkamenn voru ekki ánægðir
með bæjarstjórnina, hún var óstarf-
hæf, og var þessvegna kosið aftur
1935, og fól þá verkalýðurinn ekki
kommúnistum umboð aftur.
Alþýðuflokkurinn fékk glæsilegan
meirihluta. ísfirðingar voru búnir
að fá reynzluna af þjónslund komm-
únista við íhaldið og voru ekkert
hrifnir.
IV. Árið 1934, 24. júlí, fóru
aftur fram alþingiskosningar hér á
lanid. Kommúnistar stiltu aftur upp
klofningslista í Reykjavík. Pað var
i fyrsta sinn kosið um sex þingmenn
fyrir kjördæmið, Listi íhaldsfiokks-
ins fékk 7525 atkvæði, listi Alþýðu-
flokksins 5039 og listi kommúnista
1014. Vissir um kosningu voru
þrír efstu mennirnir á lista íhalds-
ins, Magnús Jónsson, Jakob Möll-
er og Pétur Halldórsson, og tveir
- efslu rnennirnir á lista Alþýðuflokks-
ins, Héðinn Vaidimarsson og Sig-
urjón Á. Olafsson. Ovíst var hvor
myndi verða sjötti þingmaður
Vegna vörukönnunar og
breytinga
sem gerðar verða við verzlun mína nú um áramótin,
verður sölubúðum mínum lokað frá dl. des. 1936 til
4. jan, 1937.
Pétur Björnsson,
Hefi fyrirliggjandi
Hárvötn og ílmvötn
B og hina ágætu BÖKUNARDROPA frá
Á. V. R., Reykjavík.
Bjarni Kjaríansson.
I
Reykjavíkur: fjórði maðurinn á lista
íhaldsins, Sigurður Kristjánsson
„mosaskeggur“,skrifstofustjóri íhalds-
flokksins, eða þriðji maðurinn á lista
Alþýðuflokksins, Stefán Jóh. Stefáns-
son. ritari Alþýðusambands íslands.
Urslitin urðu þau, að Sigurður fékk
1881f atkvæði ogþingsætið; Stefán
Jóhann fékk Í6792|3 atkvæði. Ef
kommúnistar hefðu ekki stilt upp
klofningslista sínum, heldur greitt
Alþýðuflokknum atkvæði, hefði listi
Alþýðuflokksins fengið 6053 atkvæði,
og Stefán Jóhann sem þriðji maður
á honum 20172]3 atkvæðis og þar
með þingsætið í staðinn fyrir Sigurð.
í þetta skifti komu kommúnistar
inn á þingið auðsveipasta og um
leið ófyrirleitnasta þjóni Kveldúlfs-
klíkunnar, með því að stilla upp á
móti Alþýðuflokknum.
(Framhald).
Eitstjóri og ábyrgðarmaður:
JÓN SIGURÐSSON.
Verkalýðsmál
Aðalfundur
Sjóm.fél. „Víkingur" var haldinn
s. I. sunnudag. í stjórn voru kosnir:
Form. Jón Jóhannsson,
varaform. Jóhannes Reykjalín,
ritari Jón Stefánsson,
gjaldkeri Jón Sigurðsson,
varagjaldkeri Ásgrímur Sigurðsson.
í kauptaxtanefnd \oru kosnir auk
formanns sem er sjálfkjörinn:
Gunnlaugur Einarsson,
Indriði Friðbjörnsson,
Guðni Árnason,
Halldór Porleifsson.
Jafnaðarmannafélagið
sýndi s.l. sunnudag í Bíó, noisku
myndirnar „Eining er afl“ og „Við
byggjum landið“.
Húsið var alveg fullt og urðu