Neisti - 02.03.1941, Page 1
Útgefandi: Alþýðuflokksfélag Siglufjarðar.
9. árg.
I
Siglufirði, sunnudaginn 2. rnarz 1941.
I
.2. tbl.
Landsmót skíðamanna
1941.
Landsmót skiðamanna hefir verið
ákveðið að halda dagana 14.—17.
marz, að Kolvíðarhóli og verður
Thule-mótið fræga sameinað lands-
mótinu og verður keppt samtímis
um Thulebikarinn í göngu og Litla
Skíðafélagsbikarinn í svigi.
Héðan af Siglufirði munu verða
sendir tveir flokkar að vanda, til
keppni um Thule-bikarinn, sem 4
sinnum hefir verið keppt um áður
í Reykjavík og hafa siglfirzku
skíðafélögin unnið hann í sín tvö
skiptin hvort.
Sá flokkur, eða það félag, sem
vinnur Thule-bikarinn 3 mót í röð,
eða þrisvar sinnum ails, hlýtur
hann til fullrar eignar og umsjár.
Hafa því bæði siglfirzku félögin,
Skíðafélagið Siglfirðingur og Skíða-
félag Siglufjarðar, góðar vonir um
að vinna bikarinn að þessu sinni
— og þar með til fullrar eignar.
Thulemótið hefur verið mjög
kostnaðarsamur iiður áreikningum
félaganna, þar sem afar ^fitt er
og vitanlega kostnaðarsamt að
ferðast með flokk keppenda og
kosta för þeirra um hálfs mánaðar
tíma í skíðaskálunum fyrir sunnan
og hvað þá heldur þegar um tvo
flokka er að ræða frá einum stað
— eins og skíðabænum Siglufirði.
Undanfarin ár og öll þau ár,
sem keppt hefir verið á skíðum á
Landsmótum og Thulemótum, hafa
skíðafélögin siglfirzku barist um
tignina, sem bezta skíðafélaglands-
ins og ávallt hefir munað svo litlu
að varla hefir mátt á milli sjá.
í skíðastökki hefur það komið
fyrir oftar en efnu sinni, að Sigl-
firðingar hafa átt 100 prc. þátttak-
endur, nema hvað síðustu ár, að
Ólafsfirðingar hafa bætzt við í
hópinn, sem keppendur í skíða-
stökki.
í svigi s.l. vetur unnu Siglfirð-
ingar einnig svigbikar Litla skiða-
félagsins í fyrsta sinn, en það var
í annað sinn, sem keppt var um
hann. (K. R. sveitin vann hann
1939).
Hættulegustu keppinautar Sigl-
firðinganna um Thule-bikarinn í
ár verða eflaust ísfirðingarnir, sem
fengu ágætistíma á 4 manna sveit
sína á landsmótinu á Akureyri í
fyrra. — Þeir eru snjallir göngu-
menn og er óhætt að fullyrða, að
hörð keppni verður á milli þessara
þriggja félaga.
Þessi einmunatíð, sem haldist
hefur framan af í vetur, hefur orðið
þess valdandi, að skíðamenn eru
ekki eins vel æfðir og undanfarna
vetur. Hinsvegar munu fæstir
þeirra harma slikt tíðarfar, því
flestir þeirra hafa einmitt
haft næga atvinnu allt fram
á þennan dag, einungis vegna
hinnar mildu vetrarveðráttu, og er
það sjaldgæft að Siglfirðingar hafi
atvinnu yfir þennan tíma. En -fátt
er svo með öllu illt, að ekki boði
nokkuð gott«, því einmitt vegna
hins hörmulega ástands, sem nú
ríkir í heiminum, hafa margir
hverjir íslendingar fengið sæmileg-
an pening, sér og sínum til fram-
dráttar, en hversu lengi það varir
eða hversu blessunarríkur sá feng-
ur reynist, verða komandi tímar að
ráða fram úr.
Nú er snjór yfir öllu, þó með
minnsía móti sé, og eru tilvonandi
þátttakendur í Thule- og lands-
mótinu á sífelldum verði um leikni
sína og hæfileika. Á hverjum
morgni sér maður þessa góðkunnu
skíðamenn og eins hina, sem lítið
eru þekktir ennþá, á brunandi ferð
fram á fjörð, sterkir og liprir, hver
hreyfing þeirra ber vott ujn eld-
legan áhuga íþróttamannsins, sem
hefir unnið sigur og vill gjarnan
se'.ja tign sína eins dýru verði og
hægt er á mælikvarða snillinganna.
Enginn getur hlotið tign þeirra
af tilviljun einni, sá sem ætlar sér
að keppa við skíðasnillinginn verð-
ur fyrst að berjast — berjast við
sína innri óvini, berjast við letiog
ómennsku, hrista af sérþeimslæð-
um drunga og sérhlííni, sem skap-
ast við borð dáðlausra spjátrunga.
Þá fyrst er hann hefur bergt af
þeim lífsins bikar, sem hin frjálsa
og óháða náttúra hefir rélt að
honum og drukkið þann bikar til
botns. Þá fyrst virðir tilveran
hann svo mikils að viðurkenna
hann sem fullgildan þátttakanda
í móti þar sem keppt er um ó-
dauðlegan orðstír, ekki glingur né
annað fánýtt feigðarrusl, — fest
upp á bönd eða prjóna glitrandi í
barmi sigurvegarans, heldur orðstír,
sem erhöggvinníbautastein tímans,
þar sem geislar endurminninganna
ljóma upp hverja sál.
Nöfn þeirra, sem þegar hefir verið
ákveðið að senda á Thule- og
landsmót, fara hér á eftir:
1