Neisti - 05.06.1941, Síða 4
4
NEISTI
Sundlaug
Siglufjardar
er tekin til starfa. Sundlaugin er opin frá kl. 10
árd. ti! kl. 10 síðd. alla virka daga, en frá kl. 1—4
síðd. á sunnudögum.
Nýju hitunartæki hefir verið komið fyrir við laug-
ina, svo að vatnið er heitt og notalegt, jafnvel þótt
kalt sé í veðri. Buningsherbergi eru einnig mjög
vel hituð.
Það er stranglega bannað að fara í laugina á öðr-
um tímum en þeim, sem auglýst er. Verði ut af
brugðið verða menn látnir sæía sektum.
SUNDLAUG SIGLUF3ARÐAR.
lausu í Kaupfélagsgrein Mjölnis, er
grobb kommúnista um, að það hafi
verið þeir, fyrst og fremst, sem
hófust handa til að »bjarga fé-
laginu«, eins og þeir svo fagur-
lega komast að orði — aðallega
frá skuldasöfnun viðskiptamanna.
Herra A. A. gleymir bara að nefna
ótvírætt og þekkt dæmi um sér-
stakan hæfileika kommúnista til
björgunarstarfa í þessum efnum,
en það er hin myndarlega!! stjórn
þeirra á Kaupfélagi Verkamanna.
Það félag fæddist nú hálf-andvana
og tórði milli heims og helju í
nokkur ár, þar til kommúnistum
með miklum dugnaði tókst að koma
hræinu inn í Kaupfélag Siglfirðinga,
sem síðan sýpur seyðið af öllum
þeim kommúnistiska ófögnuði, sem
þar flaut með.
Sannleikurinn í þessu máli er sá,
að áður en kommúnistar hófu
sellustarfsemi sína í KFS, var
mikið búið að ræða um útrým-
ingu skuldasöfnunarinnar og sam-
þykkja ákveðnar reglur þar um.
En það er nú einu sinni svona
með kommagreyin, að þeir vilja
álíta sig sem einhverskonar björg-
unarlið í öllum greínum, þótt
reynslan sýni jafnan, að þeir eru
hinir sínagandi ormar, sem sundur-
éta stoðir alls, sem göfugt er og
gott.
Engínn hefur heyrt getið um
það fyrr en núna síðast í Mjölni,
að O. Jörgensen hafi gengt sér-
stökum trúnaðarstörfum fyrir fé-
lagið. Nema hvað einu sinni hefir
hann víst verið kosin endurskoð-
andi, og að því er eg bezt veit
varð varamaður hans að gegna
þeim starfa, því O. J. hvað ekki
hafa haft tíma til slíkra verka í
það skiptið. Einu sinni eða tvisvar
munu kommúnistar hafa kosið
hann á sambandsþing, — ekki
hefur neitt fréttzt af afrekum hans
á þeirri samkundu.
Svo eftir öllum líkum að dæma,
hefir O. J. látið sig samvinnumálin
litlu skipta, og sennilega engan á-
áhuga haft fyrir þeirri starfsemi,
fyrr en Mjölnir dubbar hann upp í
ímyndaðar trúnaðarstöður.
Allir, sem þekkja Pál Ásgríms-
son, vita að hann er bezta skinn,
sem vegna einurðarleysis og van-
þekkingar hefur verið notaðureins
og gólfmotta í þágu kommúnista-
klíkunnar hér í Siglufirði. Á kaup-
félagsfundi núna síðast varð hann
að víkja úr stjörninni fyrir 0. J.
Eftir dygga þjónustu við Aðalbjörn,
sem aðeins notaði upprétta hendi
Páls við samþykktir á kaupfélags-
stjórnarfundum, var honum vísað
burt úr stjórninni. Hygg eg þó að
samvínnuhreyfingin hafi ekki beðið
tilfinnanlegt tjón við það að Páli
var veitt orlof frá störfum.
En það sýnir hug kommúnista
til þessa þjónustumanns síns, að
eftir dygga þjónustu er hann svik-
inn af sínum flokksmönnum og
annar kosinn í hans stað (O. J.)
A. A. minnist ekki einu orði á
Pál greyið, því auðvitað mundu
allir fara að skellihlæja ef Páll
væri nefndur á nafn í sambandi
við samvinnumálin.
Allir sem þekkja Baldvin Þ.
Kristjánsson vita að hann er gagn-
menntaðasti samvinnumaðurinn
hér og ágætur kaupfélagsmaður,
svo rógburður kommúnista í hans
gerð mun hrökkva skammt.
Fyrir nokkrum árum fékk hann
námsstyrk gegnum S. í. S. til fram-
haldsnámsvið Jakobsberg Folkhög-
skola í Svíþjóð, en það er nokk-
urskonar samvinnuháskóli, og lauk
Baldvin þar námi við ágætan orð-
stír. Hann hefur skrifað greinar
um samvinnumál í »Samvinnuna«
og flutt erindi um samvinnu-
stefnuna.
Vonandi gefst kaupfélagsmönn-
um kostur á að hlusta á B. Þ. Kr.
þótt síðar verði og njóta starfs-
hæfileika hans og menntunar, sem
lengst.
Oxford
buxur
teknar upp í dag.
•Sýnir fimmtud. 5. júníkl.9
Hneyksli.
v
Aðalhlutverkin leika:
BIRGIT TENGROTH og
BULLEN BERGLUND.
K. S. klúbbur
n. k- laugardagskvöld á
Hótel Siglunes.
Ábyrgðsnneiur:
Ó. H. GUÐMUNDSSON.