Neisti - 05.07.1941, Side 1
Úgefandi: ALÞÝÐUFLOKKSFÉLAG SIGLUFJARÐAR
Siglufirði, laugardaginn 5. júlí 1941. B 7. tbl.
9. árg.
Stalín biður guð að hjálpa sér!
Kommúnisminn í andarslitrunum.
Þeir atburðir gerðust nú fyrir'
nokkrum dögum, er vöktu alheims
athygli og urðu til þess, að þeir,
sem hingað til hafa viljað ósigur
Þýzkalands, öðluðust nýtt þrek og
nýjar sigurvonir. Með öðrum orðum,
Rússland var komið í stríðið, og á
móti Þjóðverjum.
Hvað olli þessari skyndibreyt-
ingu á afstöðu Bolsévikka til Naz-
ista?
Vinirnir Jósep Stalín og Adolf
Hitler voru þá farnir að berjast
upp á líf og dauða.
Vinirnir, sem með sameiginleg-
um áformum og breytni höfðu
steypt Evrópu út í blóðuga styrj-
öld, með vináttusamningnum al-
ræmda, draga nú sverðin úr slíðr-
um og leggja til orrustu, hver
gegn öðrum.
Hitler fyrir hönd þjóðar sinnar
biðlar til Sovjet-Rússlands um
hlutleysi, á meðan hann sé að
sameina hið þýzka riki.
Stalín bregður vel við. Skilur
fullkomlega þessar sjálfsögðu kröfur
kollega síns, og leggur blessun
sína yfir þær gerðir hans, sem
miða að því, að koma nýskipun á
í Evrópu. Lofa nazismanum að
berjast og fá yfirráð, en auðvitað
hirða svo jafnframt bróðurpartinn
af sigurvinningunum.
Stalín og hans nánustu fylgi-
fiskar eiga því allan heiðurinn!
af því, að hafa steypt milljónum
verkamanna út í ægilega styrjöld.
Stefnt milljónum mannslífa út í
opinn dauðan.
Er þetta ávöxtur hinnar rúss-
nesku byltingar — ávöxtur hins
kommúnistiska þjóðskipulags?
Á tæpum 2 árum hefur þýzki
herinn gjörsigrað 12 ríki. í skjöli
þessa vináttusamnings hefur þýzki
herinn á tæpum tveimur árum,
gjörsigrað 12 sjálfstæðar þjóðir.
Allan þennan tíma hefur brezka
heimsveldið haldið uppi látlaus-
um truflunum á hernaðarlínum
Þjóðverja, en hvergi þó valdið
neinu því tjóni, sem hefur raskað
framsókn né mátt þessa óvíga hers.
Á þessum tíma tók Stalín, Hit-
ler sér til fyrirmyndar, og réðist
með offorsi miklu á Norðurlönd,
varð fyrri til en Hitler og Iagði
mikinn hluta Finnlands í rústir, en
tók til afnota hernaðarlega þýð-
ingarmikla staði við Kyrjálabotn
og víðar í Finnlandi.
Því næst lagöi hann leið sína
til Eystrasaltslandanna, og innlim-
aði þau öll þrjú í sovjet-ríki sitt.
Nú virtist hann vera orðinn mettur
um sinn, en strax þegar logar upp
úr á Balkan hefst hann handa á
ný, og flytur nú mikið af herliði
til hinna sameiginlegu landamæra
í vestri viðbúinn að góma hluta
þess ránfengs, sem honum bar
samkvæmt vináttusamningnum.
Ef Hitler mundi sýna sig í þvi
að »plata«, skyldi rauði milljóna-
herinn reka erindi Sovjet-Rússlands.
Hið ótrúlega skeður, að þýzki
herinn gjörsigrar Bandamenn á
á Balkan og leggur öll þau ríki
undir þýzka yfirstjórn.
Stalin stendur hinu megin við
landamærin að baki rauða hersins,
og vinkar til Hitlers, og vill nú fá
sín hluíleysislaun, og gýtur um leið
hornauga til rauða hersins og
staðfestir þar með kröfur sínar.
Hitler, sem hefir nú ekkí meiri
not af vináttusamningunum, þar
sem Þýskaland er nú búið að
sigra mið- og meirihluta Evrópu,
með hjálp Rússa, skellir skollaeyr-
unum við kröfum þeirra, og býr
sig undir miklar og ægilegar or-
ustur.
Þýzka hernum er styllt upp á
ný og áður en nokkurn varir, dembir
þýzki herinn sér með öilum þunga
yfir hinn nöldrandi lýð, rússneska
einvaldans.
Eins og fréttir bera með sér
eru það engar smáskærur —
þarna berjast margar milljónir
upp á líf og dauða. Þúsundir og
aftur þúsundir flugvéla og skrið-
dreka heyja þarna látlausar orrust-
ur dag og nótt — þúsundir manns-
lífa týnast á hverri mínútu, og
nýjar og stærri elfur af blóði fossa
yfir vígvöllinn.
Rússneski herinn, fjölmennasti
her í heimi, sem svo margir hafa
dásamað, lætur nú undan síga á
allri víglínunni, frá íshafi til Svarta-
hafs.
Áður en varir munu hinir sigur-
sælu hermenn Adólfs Hitlers sölsa
undir sig hin auðugu lönd suð-
vesturs Rússlands, og leggja hinn
varnarlausa rauða her að velli.
Örvænting hefur gripið fólkið,
og ótrúlegir atburðir finna stað.
Kirkjurnar, sem gerðar voru að
kornhlöðum eftir hina blóðugu
rússnesku byltingu, hafa verið tekn-
ar til guðsþjónustu á ný, og biðja
nú, Stalin og hans nánustu til
guðs um hjálp til þess að sigra
fjandmenn sína.
Þrátt fyrir bænarsöng virðast
örlög Rússlands þegar ákveðin,
og vegna svika Jóseps Stalín við
verkamannasamtök allra landa,
mun Kommúnisminn verða þurk-
aður út úr veröldinni innan skamms,