Neisti - 24.09.1941, Blaðsíða 2
2
NEISTI
að 5 miljónum króna úr ríkissjóði
til þess að hamla gegn dýrtíðinni.
Ekki er vitað enn hvort sú heim-
ild verður notuð.
Þar var heimilað 10 prc. álag á
tekjuskatt. Það eina sem hefir
verið notað.
Fer þá nærri um gagnsemi þess-
arar ófullkomnu lagasetningar, þeg-
ar þau ákvæði hennar, sem helzt
hefði mátt beita, lækkun farm-
gjalda og tolla, hafa alls ekki
verið notuð, jafnframt því sem af
hálfu þess opinbera eru gerðir
samningar um aðal útflutnings-
vöruna, ísfiskinn, sem gera að
engu tekjuöflunarleið með útflutn-
ingsgjaldi.
Þar sem ríkisstjórnin ekki hefir
getað leyst þetta mál eða gert
neinar teljandi ráðstafanir á grund-
velli fyr umgetinna heimildarlaga,
virðist augljóst, að ákveðnari að-
gerðir þarf til. Dugir að sjálfsögðu
ekki annað en Alþingi afgreiði á-
kveðin lög um þessi efni, ef ekki
ríkisstjórnin sér að sér nú á næst-
unni og hefst handa í þessu stærsta
vandamáli, sem verið heíir á döf-
igni s. 1. ár. Er þá einnig augljóst
að frekari aðgerða þarf við, en
innifelast í fyrgreindum heimildar-
lögum. Handhægast væri að sjálf-
sögðu að breyta gengi krónunnar
í eðlilegt horf. Aftur á móti mundi
það hafa í för með sér gífurleg
töp á inneignum bankanna erlend-
is og þá jafnframt verðfall þeirra
vörubirgða, sem í landinu liggja.
Þá er það einnig augljóst, að
gengisbreyting erekki einhlít. Sam-
fara henni þarf strangara eftirlit
en verið hefir með verðlagi öllu
í landinu, álagningu á hinar ýmsu
vörur o. fl. þ. h. Allir eru sam-
mála um það, að eftirlit með verð-
lagi hafi verið fremur slælegt. Auk
þess hefir öll álagning verið pró-
centvís. Virðist það all fjarri sanni,
að sama hundraðshluta þurfi til
þess að selja vöru nú, sem kostar
tífalt meira en hún kostaði fyrir
stríð. Vísitalan hefir þó ekki hækk-
að nema um 67 stig og því engin
ástæða til þess að greiða tífalt
hærri sölulaun en áður með hækk-
andi verði. Þá þyrfti vitanlega að
framfylgja stranglega ákvæðuin
um lækkun tolla af nauðsynjavör-
um, lækkun farmgjalda og hætta
janframt að innheimta tolla af stríðs-
farmgjöldum til ríkissjóðs. Ennfrem-
ur verður brezki samningurinn hér
sem fyr þrándur í götu, þar sem
ákvæði hans mundu verða þess
valdandi 'að verð fiskjarins, sem
nú er ákveðið mundí Iækka jafn
mikið og gengisbreytingunnni
næmi. Gætu orðið áhöld um hvort
sú lækkun yrði ekki útgerðinni og
sjómönnum of tilfinnaleg byrði.
Það er athyglísvert í sambandi
við framkvæmd, eða réttara sagt
framkvæmdarleysi heimildarlag-
anna frá sl. þingi, að athuga það
að þau atriði þeirra sem helzt
hefðu mátt .að gagni koma, svo
sem lækkun tolla, lækkun farm-
gjalda og annað slíkt heyrir undir
ráðuneyti þau er Sjálfstæðisflokk-
urinn hefiryfiraðráða, atvinnumála-
ráðuneytið og fjármálaráðuneytið.
Verðákvörðun innlendra afurða,
sem óneitanlega hafa mestu valdið
um aukna dýrtíð, heyrir undir
ráðuneyti Framsóknarflokksins. Hitt
eru allir sammála um, að það
eina sem gert hefir verið með
festu og einurð til þess að halda
niðri dýrtiðinni er bann það sem
hefir verið á hækkun húsaleigu.
Þau ákvæði, heyra undir það ráðu-
neyti, sem Alþýðuflokkurinn ræður
yfir. Bendir þetta ótvírætt í þá
átt að með festu og einurð hefði
mátt halda dýrtiðinni mun meir í
Skefjum en gert hefir verið.
Eigi er síður athyglisvert um
þær tillögur, sem fram hafa komið
til þess að ráða bót á þessu máli.
Framsóknarflokkurinn sá ekkert
ráð betra en að leggja 10 prc.
launaskatt á alla launþega í land-
inu, en jafnframt að hlífa þeim,
sem við íramleiðslu fengjust, þ. e.
útgerðarmönnum og bændum. í
frv. því, sem lagt var fram á síð-
asta þingi, var þetta ákveðið 5 prc.
af viðskiptamálaráðherra. Alþýðu-
flokkurinn tók þegar upp harða
baráttu gegn þessum gífurlega
skatti og hlaut viðskiptamálaráð-
herra þegar nokkurt ámæli fyrir.
Hann lýsti því þá yfir, að þetta
væri ákveðið í samráði við at-
vinnumálaráðherra Ólaf Thors. Lýsti
Ólafur því jafnframt yfir, að þetta
væri rétt og óskaði eftir því, að
blöð Sjálfstæðisflokksins birtu þessa
yfirlýsingu. Vísir og Morgunblaðið,
sem annars láta ekkert tækifæri
ónotað til þess að birta það sem
fram gengur af munni þessa ráð-
herra, hafa þó enn látið ógert að
birta þetta, hvað sem veldur. Hitt
er þegar vitað, að hefðu þessir
tveir flokkar mátt ráða, hefði hver
maður í þessu landi, sem laun
þiggur, orðið að greiða 5—10 prc.
af kaupi sínu til vafasamra ráð-
stafana vegna dýrtíðarinnar. AI-
þýðuflokkurinn tók upp baráttuna
gegn þessu og fékk því til leiðar
komið að þetta ekki komst í fram-
kvæmd. Tillögur hans í dýrtíðar-
málunum hafa að mestu verið
virtar að vettugi. Vist er þó, að
hefðu þær verið teknar til greina
og framkvæmdar á skynsamlegan
hátt, hefði nú verið minna öng-
þveiti í þessum málum.
Molar.
Fyrirspurn til bæjarfógetans.
í seinasta Einherja birtist þakkar-
ávarp frá bæjarfógetanum til Ing-
vars Guðjónssonar fyrir 2272 kr.
gjöf til Skarðsvegarins. Eins og
menn rekur minni til var tilkynnt
í blaðinu Eiuherja 1939 að Ingvar
hefði gefið tæpar 2000 kr. til
Skarðsvegarins gegn ákveðnnm
skylyrðum. 1940 var enn tilkynnt
í sama blaði að fyrir hendi væru
frá Ingvari Itr. 2000 til Skarðsveg-
arins. Nú er spurt fyrir um það,
hvort hér sé um að ræða sömu
upphæðina, eða hvort Ingvar hefir
gefið um 2000 kr. árlega sl. 3 ár
til Skarðsvegarins. Neisti þykist
þess fullvíss að bæjarfógetinn
muni fúslega upplýsa þetta. Gjafir
Ingvars eru góðar og sýna áhuga
hans fyrir þessu máli, enda vel
þegnar. Hitt fýsir marga að vita
hvort hér er um að ræða sömu
upphæðina eða árlegar gjafir.
>Out of the nighí* eftir Jan
Valtín.
Síðla sumars var það vitað að
M. F. A. hefði ákveðið að gefa út
sjálfsæfisögu kommúnistans Jan
Valtín, öðru nafni Krebs. Bók þessi
hefir vakið feikna athygli um allan
heim vegna hinna hispurslausu
frásagna og uppljóstrana um starf-
semi kommúnista, — Komintern
— í Evrópu og þá sérstakléga á
Norðurlöndum. Kommúnistar hafa
alveg ætlað að ærast út af komu
þessarar bókar. Hafa þeir brigslað
Alþýðuflokknum um það, að hann
gæfi bók þessa út til stuðriings!!
þýzka nazismanum!! Telja þeir
bókina þó öðru veifinu vera
ómerkilegan reifara og falsrit!
Slíkar bækur ættu þó ekki að vera
til þess fallnar að veikja álit
Komintern. — Er þessi bægsla-