Neisti - 24.09.1941, Page 3
NEISTI
3
gangur kommúnista hin furðuleg-
asti en þó um leið til þess eins
fallinn að vekja grun um að all
óþyrmilega muni flett ofan af
starfsemi þeirra í Evrópu undan-
farin ár. Þar muni rétt frá skýrt,
en þeim þyki hentara að frá sliku
sé ekki skýrt, enda ekki til þess
ætlast, að fjöldinn skygnist á bak
við tjöldin. Kommúnistar hafa nú
teflt fram á ritvöllinn skáldinu H.
K. Laxness, sem þeir nota oft til
ýmissa hreingerninga og skrifa,
sem sjálfir foringjarnir vilja síður
skipta sér af. Hagfræðingurinn
Benjamín Eiríksson hefir svarað
Halldóri í Alþýðublaðinu og leiðir
rök að því, að Laxness hafi ekki
lesið bókina heldur skrifað umsögn
sína eftir ritdómi sem birtist í
tímariti kommúnista vestan hafs.
Það er engin nýlunda að M. F. A.
gefi út slíkar bækur sem þessa,
mjög umdeildar. Má t. d. benda
á íHrunadans Heimsveldanna- og
• Hitler talar«. Sjálfsagter að gefa
ísl. lesendum kost á að kynnast
slíkum bókum. Sjálfir munu ísl.
lesendur vera svo þroskaðir, að
þeir fyrirfram muni ekki ákveða
það hvort einhver bók er -reifario
«falsrit« eða annað slíkt. Þeir munu
lesa bókina með athygli, og þá
fyrst láta uppi skoðun sína um
hana.
Annars er þaö ekkert nýtt
að Halldór Kiljan Laxness fari með
fleipur og fjarstæðu, þegar hann
ritar um stjórnmál eða það sem
snertir afstöðu og »línur« kommú-
nista.
í Þjóðviljanum 27. sept. 1939,
er Halldpr hafði með miklum
fjálgleik lýst blessun sinni og ann-
arra íslenzkra kommúnista yfir
samningi Hitlers og Stalíns, segir
hann svo um fasismans:
»Um leið er baráttan gegn fas-
ismanum ekki lengur einkunnarorð
nema með takmörkuðu innihaldi,
broddurinn hefir verið sorfinn af
þessu hœttulega vopni auðvaldsins,
(þ. e. fasismanum) vígtennurnar
dregnar úr þessu villidýri, sem átti
að rífa bolsann á hol. Eftir er
gamall spakur seppi, sem enginn
bolséviki telur framar ómaksins
vert að sparka í svo um munar«.
(Leturbr. hér).
Svo mörg eru þau orð. Ætli
þeir séu margir núna, sem vilja
taka undir þessi orð Laxness. Hinn
»gamli spaki seppi* hefir nú marið
Nú fer eg og kaupi:
kaffi, sykur og hveiti
í brauð til vetrarins hjá
Gesti Fanndal.
Tilkynning
frá ríkisstjórninni.
Brezka flotastjórnin hefur tilkynnt islenzku ríkisstjórninni að
nauðsynlegt sé að öll skip, 10 tiL750 smálestir að stærð, fái endur-
nýjuð eins fljótt og hægt er, ferðaskírteini þau, sem um ræðir í til-
kynningu ríkisstjórnarinnar, dags. 7. marz 1941.
Skírteini þessi fást hjá brezku flotastjórninni í Reykjavík, Akur-
eyri, Seyðisfirði og Vestmannaeyjum.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið, 5. sept. 1941
Saudfjárslátrun
byrjuð.
Seljum kindakjöt í heilum kroppum á eftirtöldu heildsöluverði.
1. fl. kr. 3.20 pr. kg.
2. — — 3.05 — —
3. - - 2.90 - -
Sláturhúsið.
TILKYNNING.
Reikningar Siglufjarðarkaupstaðar — bæjarsjóðs,
vatnsveitu, rafveitu, hafnarsjóðs, mjólkurbús, sjukrahúss
og Hvanneyrarkirkju — fyrir árið 1940, svo og efna-
hagsreikningar þann 31. des. 1940, liggja frammi —
almenningi til sýnis — næstu tvær vikur á bæjarskrif-
stofunni.
Bæjarstjórinn á Siglufirði, 11. sept. 1941
Áki Jakobsson.
undir hæl sínum mest alla Evrópu,
en verkalýðurinn stynur undir oki
og ófrelsi hans. Skoðanir slíkra
manna eru ekki að neinu hafandi,
og eigi fremur þó þeir leggi skáld-
frægð sína við.