Neisti - 16.12.1941, Side 1
Siglufirði, þriðjudaginn 16. des. 1941.
15. tbl.
Ugefandi: ALÞYÐUFLOKKSFELAG SIGLUFJARÐAR
Fjárhags-
áœtlunin.
Fjárhagsáætlunin fyrir árið 1942
er nú á ferðinni. Nýlega var hún
til fyrri umræðu í bæjarstjórn. Að
sögn var minnst um hana talað,
heldur gekk mest af tímanum hjá
blessuðum bæjarfulltrúunum okkar
í að þakka fyrir viðskiptin á árinu
og árna andstæðingunum heilia á
því nýja og við væntanlegar bæj-
arstjórnarkosningar, með hinum vel-
völdu og smekklegu orðum, sem
þeir eru kunnir fyrir að nota sumir
hverjir við slík tækifæri.
Helztu tekjuliðir eru :
Aðalniðurjöfnun útsvara 390.000.oo
Aukaniðurjöfnun 10.000.oo
Tekjur af brúttósölu verk-
smiðjanna 44.000.00
Tekjur af Gooseignum 51.000.00
Tekjur af vatni 34.500.00
Vitanlega hefur sjaldan eða aldrei
verið rennt eins blint í sjóinn
með tekjumöguleika bæjarins við
samningu fjárhagsáætlunar eins og
nú. Ástandið og útlitið er þannig,
að enginn veit hvað koma kann.
Á þessum tíma veit enginn hvort
verksmiðjur verða reknar á næsta
sumri, eða hvort bryggjur verða
notaðar til atvinnurekstrar, og
hlýtur því fjárhagsáætlun, sem
gilda á fyrir framtiðina, að verða
að mestu aðeins pappírsáætlun,
sem í mörgum tilfellum getur eng-
an veginn staðizt, þó menn lifi í
lengstu lög við góðar vonir um
að fram úr öllu rætist á sem
beztan hátt.
Upphæð sú, sem gert er ráð
fyrir að jafna niður, er geysihá
við. fyrstu sín, en þó mun hún að-
Til minnis í
jóia-annríkinu.
Egg til bökunar
Síróp
Blönduð ávaxtasulta
Búðingur m. teg.
Grænar baunir
Pickles
Matarolia
Sósur m. teg.
Saft
Kjötkraftur
Nautakjöt i buff og steik
Svínakjöt
Reykt bjúgu o. m. fl.
Harðfiskur, barinn
Rækjur
Gaffalbitar og allskonar
áskurður á brauð.
Sítrönur
Laukur o. m. fl.
Þá má ekki gleyma jólahangikjötinu sem bezt er að
velja sem fyrst.
Orangeade ávaxtadrykkur er ómissandi á jólaborðið.
Komið eða hringið og látið okkur senda eitthvað af
því, sem yður vantar.
Kjötbúð Siglufjarðar.
eins hafa hækkað í samræmi við
aðrar hækkanir viðskiptalífsins.
Hvernig innheimtan gengur,
verður framtíðin að segja til um.
Helztu gjaldaliðir áætlunarinn-
ar eru:
Stjórn kaupstaðarins 48.300.00
Löggæzla 29.400.00
Afborganir lána 21.130.00
Vextir 17.570.00
Fátækramál 90.000.00
Sjúkrakostnaður 12.000.00
Menntamál 90.300.00
Afborganir, vextir og ýms
gjöld af Gooseignum 34.000.00
Vega- og byggingamál 19.100.00
Gatna- og holræsalagnir 70.600.00
Brunamál 13.000.00
Lýðtrygging og Iýðhjálp 75.500.00
Heilbrigðismál 11.730.00
Vatnsveitan 23.500.00
Þarna fyrir utan eru ýmsar
smærri upphæðir, sem oflangt er
upp að telja hér. Frh. á 3. siðu.