Neisti - 23.03.1944, Page 2
NEISTI
að nota olíugeyma skipsins og
neðri lest.
Hvernig var málið lagt fyrir
atvinnumálaráðherra ?
Bæjarstjóri sendi samnings-
uppkast til ráðherra ásamt hlut-
lausu bréfi um málið, þar sem
þó ekki var tekið fram að skipið
ætti að nota til annars sérstaklega
en bryggju og geymslu í sambandi
við það. Hins vegar lágu fulltrúar
Framsóknarflokksins sí og æ í
ráðherranum, og vitað er, að full-
trúaráð flokksins hér sendi honum
símskeyti til þess að herða á neit-
uninni. Það er líka vitað, að ráð-
herrann fékk héðan frá Siglufirði
alrangar upplýsingar um málið,
t. d. var honum sagt, að til þess
að koma skipinu fyrir í höfninni
þyrfti að rífa síldarbryggju, sem
leigð væri til 5 ára. Á hinn bóginn
var aldrei túlkuð sú þörf, sem
kynni að vera fyrir hendi um
geymslupláss lýsis vegna stækkun-
ar „Rauðku“, sem kaupin voru þó
fyrst og fremst grundvölluð á.
Málið var því, vægast sagt, lagt
mjög einhliða fyrir ráðherrann,
jafnframt því, sem beitt var póli-
tísku offorsi til áhrifa um úrskurð
hans.
Hvers vegna var Jóhann
Þorvaldsson og fulltrúar
Framsóknarflokksins í bæjar-
stjóm á móti málinu?
Jóhann Þorvaldsson vill svo vera
láta, sem andstæðingar skipakaup-
anna hafi verið að forða bænum
frá fjárhagslegu tjóni með and-
stöðu sinni við kaupin og undan
ábyrgðarleysi þeirra fulltrúa, sem
kaupin vildu gera. Það er nú fyrir
löngu ljóst, að það er alrangt og
yfirskin eitt. Þeir voru á móti mál-
inu vegna þess, að þeir töldu að
þessi geymsla kynni að bjarga
stækkun „Rauðku“, en einmitt þeg
ar þetta mál stóð yfir, var talið að
helzt mundi stranda á því, að fá
geymslu undir lýsi. Hið mikla kapp
sem Jóhann Þorvaldsson hefur
lagt á það innan Framsóknar-
flokksins nú, að hindra endurbygg-
ingu „Rauðku“ sannar þetta ljós-
lega. Einnig hitt, að bæjarstjóri
sá ekki ástæðu til að skýra full-
trúum Framsóknarflokksins frá
möguleikum þessara skipakaupa,
fyrr en hann gerði. Framsóknar-
menn hafa mjög átalið hann fyrir
þetta, en það sýnir, að hann hefur
að verðleikum treyst þeim mátu-
lega í þeim málum, sem kunna að
varða hagsmuni „Rauðku“, eða
möguleika til endurbyggingar
hennar.
Hvað varð um skipspartinn
og er hann ónothæfur
með öUu?
Jóhann Þorvaldsson endar grein
sína með frófnri ósk um það, að
bæjarsjóður verði ekki skaðabóta-
skyldur vegna samþykkta sinna
um skipakaupin. — Það ætti nú
hverjum manni að vera ljóst, að
annaðhvort hefur ráðherrann, lög-
um samkvæmt, vald til þess að
banna bæjarstjórninni að kaupa
skipspartinn, og sé svo, kemur vit-
anlega ekki til mála að bærinn
verði skaðabótaskyldur. Ef að ráð-
herrann aftur á móti ekki hefði
vald til þess að banna bænum
skipakaupin, en gerði það þrátt
fyrir það, yrði vitanlega ríkissjóð-
ur skaðabótaskyldur gagnvart
bænum vegna ráðstafana ráðherr-
ans. Það er þessvegna alveg aug-
ljóst, hvernig sem málið horfir,
að bærinn verður ekki gerður
skaðabótaskyldur gagnvart selj-
anda fyrir riftun kaupanna. Hitt
er svo aftur annað mál, hvort
kaupin hefðu orðið bænum til
skaða ef þau hefðu farið fram og
má sjálfsagt deila um það óendan-
lega. Þess skal þó getið, að skips-
parturinn hefur nú verið seldur
fyrir 120.00 þúsund krónur, þar
sem hann liggur í Kleppsvík, án
keðja og fylgifjár, sem fylgja
átti hingað. Er þetta hærra verð
en bærinn vildi bjóða, þegar skip-
ið var komið hingað og greiddur
allur kostnaður við flutningana.
Kaupandi var H. f. Keilir, og mun
hann nota skipið til þess að gera
við skip á floti þ. e. leggja þeim
að skipshlutnanum, en þar um
borð hefur verksmiðjan ýms vél-
tæki, sem þarf til slíkra aðgerða.
Þessi kaup vélsmiðjunnar sýna, að
fagmenn treysta því að skipið sé
sterkt og til þess hæft að notast
um árabil liggjandi í sjó, sem
bryggja eða geymslupláss. Reynsl-
an mun verða ólygnust um not-
hæfni skipsins. Þessvegna getur
Jóhann Þorvaldsson og aðrir spar-
að sér öll stóru orðin um ónýti
þess og gagnleysi, þar til séð verð-
ur, hvernig það reynist og til hvers
það verður notað í fjörunni við
Kleppsvík.
Erl. Þorsteinsson
Hin rússneska þjónk-
un íslenzkra kommún-
ista.
Hinir íslenzku kommúnistar,
sem um skeið kalla sig socialista
°g þykjast vera lýðræðissinnar,
láta ekkert tækifæri ónotað til að
skapa sér sérstöðu í því skyni að
efla og auka „rússneskan" áróður
hér á landi. Þessi áróður er svo
skef jálaus og þýlegur að furðu gegn
ir. Samhliða þessum áróðri reyna
þeir að skapa sér pólitíska mynt á
vettvangi íslenskra stjórnmála af
blóðfórnum rússneskra hermanna,
sem verja ættjörð sína fyrir árás-
um og villimennsku nazistanna.
Menn muna enn afstöðu þeirra til
stríðsaðila meðan Hitler og Stalin
voru bandamenn. Þá var hernaðar-
vinnan hér á landi fyrir Breta,
„landráð“ og það var „smekks-
atriði“ hvort menn „virtu eða höt-
uðu“ Hitlerisman eins og sérhvert
annað pólitískt skoðanakerfi.
Að sjálfsögðu breyttist þessi af-
staða eftir árás Þjóðverja á Rúss-
land, og stríðið varð heilög styrj-
öld, þó að ekkert hefði gerzt annað
en það, að Englendingar gáfust
ekki upp þegar verst leit út og
aðrir létu bugast, og Þjððverjar
héldu nú í austurátt til þess að
kynna Rússum hvort það væri
smekksatriði að virða eða hata
Hitlerisman. Þessi dygga þjónusta
kommúnista við Rússa birtist nú
daglega í æ f jölþættari myndum. Á
Alþingi nýlega reyndu þeir að
skapa sér pólitízka sérstöðu útaf
þingsályktun um norræna sam-
vinnu og bróðurkveðju til Norður-
landaþjóðanna. Þeir vildu endilega
láta bæta inn í tillöguna sérstak-
lega, að Alþingi óskaði „Norð-
mönnum og Dönum sigurs í frelsis-
baráttu þeirra“. Nú er það vitan-
legt að allir íslendingar og vel
flestir af heilum hug, óska þessum
þjóðum sem allra fyrst fulls frels-
is. En komúnistar vildu láta þetta
sérstaklega koma fram til þess að
gera upp á milli þessara Norður-
landaþjóða og Finna, sem líka
heyja „frelsisbaráttu“, sem hefur
orðið þeim til þeirrar ógæfu að þeir
hafa gerst bandamenn Nasista. En
Finnarnir heyja sína frelsisbaráttu
við Rússland, og þessvegna þurfti
að gera þennan greinarmun. Ef
Alþingi ekki vildi samþykkja þessa
breytingatillögu átti síðan að bera
hinum þingflokkunum það á brýn
að þeir vildu ekki óska Norðmönn-
um og Dönum til sigurs í frelsis-
baráttu þeirra.
Alþingi sá sóma sínum borgið í
þetta skipti og kvað niður þennan
uppvakning Kommúnista.
Smekkleysi Kommúnista í Rússa
áróðrinum kemur þó einna berast
í ljós við að kynna sér málgögn
þeirra. Blöð þeirra birta ómeltan
rússneskan áróður, sem vel getur
verið nauðsynlegur þar austur til
að telja kjark í rússnesku þjóðina
í hörmungum hennar, en sem ekk-
ert erindi á til Islendinga.
Málgögn þeirra lofa allt sem
rússnest er, sjá engar framfarir
og jafnvel vísindi annara þjóða.
Tæplega birtist í málgögnum
þeirra þýddur fróðleikur nema af
rússneskum uppruna. Jafnvel fram
rússneskt er, sjá engar frafarir
rússneskar. Að sjálfsögðu eigum
við að sækja menningarleg verð-
mæti engu síður til Rússlands held-
ur en annara þjóða. En við höfum
ekkert að gera með rússneskan
stríðsáróður, sem þar að auki er
þannig skrifaður, að tæplega er
prenthæft, miðað við þá menntun,
sem við íslendingar höfum fengið.
Það er með öllu óvíst, að Rússar
sjálfir myndu reka öllu meiri áróð-
ursstarfsemi hér á landi, þó að þeir
hefðu tækifæri til, heldur en hinir
íslenzku kommúnistar hafa gert
nú hin seinustu ár.
Á það hefur verið bent, að sjálf-
stæði íslenzku þjóðarinnar yrði því
aðeins tryggt í framtíðinni, að hún
kæmist að nýju undir erl. áhrif
Islenzka þjóðin hefur háð sína
frelsis- og sjálfstæðisbaráttu öld-
um saman til þess að öðlast fullt
og óskorað frelsi. Kommúnistar
mega vera vissir um það, að ís-
lenzka þjóðin, að undanskildum ör-
fáum sefasjúkum mönnum, þráir
ekki það frelsi og sjálfstæði, sem
Rússland bauð litlu löndunum við
Eystrasalt árið 1941.
x + y.
-★- . V
AFMÆLI
Skafti Stefánssón,
útgerðarmaður, frá Nöf, varð
fimmtugur 6. þ. m. Hann er mjög
þekktur maður bæði hér og í ná-
grenni Sigluf jarðar og er að góðu
einu kunnur. Skafti hefir annast
flutninga milli bæjarins og Skaga-
f jarðar í f jölda mörg ár og sýnt í
þeim störfum, sem öðrum, festu,
dugnað og drenglund. Hann er
hinn mætasti maður.
Halldór Benediktsson,
kaupmaður, fyrrum póstur á
Austurlandi varð sjötugur sama
dag. Hann er ennþá ungur í anda
og frár á fæti, þrátt fyrir mörgu
árin. Halldór og kona hans eign-
uðust 11 börn og eru aðeins 6
þeirra á lífi, 3 búsett hér, en 3 í
Reykjavík. Meðal barna þeirra eru
þau frú Gróa hárgreiðslukona og
Jónas rakari, sem bæði eru hér til
heimilis. Halldór er skáldmæltur
og hinn skemmtilegasti maður.
Árni Jónasson,
klæðskeri, átti 13. þ. m. fertugs-
afmæli. Hann er talinn góður verk-
maður í sínu fagi, er vinsæll og
áhugasamur bindindismaður.
VATNSFÖTUR
fást í
Kjötbúð Siglufjarðar.