Neisti - 23.03.1944, Blaðsíða 4
4
NEISTI
aðallega eða eingöngu af tveimur
stærðum: 50 og 75 smál. Sama
vélartegund verður í öllum skip-
unum. Vitanlega eru umsóknirnar
þegar orðnar miklu fleiri en hægt
er að taka til greina. Mun Fiski-
félagi Islands hafa verið falið að
úrskurða, hvaða umsóknum verði
sinnt, og er þá þess að vænta, að
litið verði á raunverulega þörf eða
nauðsyn umsækjendanna, og eins
hitt, hvaða líkur séu til, að varan-
legt atvinnubót verði fyrir við-
komandi byggðarlög að hinum um-
beðnu skipum.
Bæjarstjórn Siglufjarðar mun
hafa lagt drög að því, að fá hing-
að tvö af þessum sænsksmíðuðu
skipum, og ekki er hægt að búast
við öðru en að þær verði afgreidd-
ar, þar sem það má heita lítill hluti
handa Siglfirðingum, komi eigi
fleiri héðan. — Má t. d. benda á,
að frá ísafirði munu umsóknir um
ein 5—6 skip hafa borizt, og þyk-
ir þeim það ekki mikið, Isfirðing-
unum.
Svar Finna
við friðarskilmálum Rússa virð-
ist vera algjörlega neikvætt. Er
mörgum undrunarefni þessi af-
staða Finna, þar sem hvort
tveggja er, að hættan vegna frek-
ara fylgilags við Þjóðverja er mik-
il og að skilyrði Rússa virtust ekki
ósanngjörn, miðað við kringum-
stæður. Mun hér eitthvað að baki
liggja, sem öðrum en Finnum sjálf
um er ráðgáta.
Deildarfundir K. F. S.
munu væntanlega verða í lok
þessa mánaðar eða í byrjun apríl.
Ætti allt kaupfélagsfólk, sem annt
er um hag félagsins, að mæta vel
á deildarfundunum og móta þá
með afstöðu sinni, því að þar fyrst
og fremst ákveðast þau svör, er
gefin skulu sundrungarpostulun-
um innan félagsins.
Þjóðverjar
hemámu Ungverjaland nú um
síðustu helgi. Gerast nú víðstigin
hin sviðnu spor.
SKYRING
Útaf grein, sem skrifuð var í
síðasta tölublað Neista, þar sem
talað var um að bæjarstjórn og
hafnaraefnd hefðu ekki staðið við
loforð sín um fjölgun á mönnum
við innri höfnina, skal þetta tekið
fram. Greinin var skrifuð löngu
áður en blaðið kom út og þá var
engum manni farið að bæta við
innri höfnina. Það yar ekki gert
fyrr en tæpum hálfum mánuði
eftir að áður umtöluð hafnar-
nefndarsamþykkt var gerð. Á
þeim fundi var um það talað, að
fjölgunin hefði ekki í för með sér
styttingu á vinnutímanum, jafnvel
Stúlkur
vantar á Sjúkra-
húsið í vor.
Hátt kaup.
allt niður í hálfan dag. Gert var
ráð fyrir, svo að þeir sem vinna
þar gætu fengið fullan dag, að
lagður yrði vegur inn með. bökk-
unum og eftir honum yrði flutt
efni, sem svo aftur yrði flutt á
sporbraut fram garðinn. Þá var
einnig gert ráð fyrir og samþykkt
tillaga þess efnis, að athuga með
grjótfluttning frá öðrum stöðum.
Annaðhvort handan af Skútu-
granda, eða utan úr fjörum. Það
mun ekkert farið að athuga með
þetta enn. Eg held það hafi heldur
aldrei verið krafa af hálfu Þrótt-
ar, að ekki mætti vinna þarna fleiri
en 20 manns. Sé ekki hægt að sem-
ræma vinnuna innfrá og grjót-
flutninginn frá öðrum stöðum, þá
mætti láta aðra hafa flutninginn.
Það gengur ennþá mesti f jöldi at-
vinnulaus. Því ekki að reyna að
útvega þessum mönnum vinnu þá
daga, sem gott er veður. Annars
er eins og bæjarstjórn finnist hún
vera að vinna eitthvað góðverk,
með því að reyna að útvega mönn-
um eitthvað að gera.
En bæði er það nú, bæjarstjórn-
in er kosin af bæjarbúum, og hitt,
að hún hefur bezta aðstöðu til
þess.
Bæjarstjórn, sem gefst upp á
atvinnuleysisspursmálinu stendur
ekki traustum fótum. Og eftir þau
góðu atvinnuár, sem undanfarið
hafa verið, þarf enginn að halda
það, að verkalýðurinn þoli atvinnu-
leysissvipuna möglunarlaust.
—oOo—
Fulltrúaráð Alþýðu-
flokksins
hér í bænum skipa nú þessir menn:
Baldvin Þ. Kristjánsson, form.
Vigfús Friðjónsson, ritari.
Har. Gunnlaugsson varaform.
Jóhann G. Möller, vararitari.
Erlendur Þorsteinsson
Ólafur H. Guðmundsson
Kristján Sigurðsson
Gunnlaugur Hjálmarsson
Gunnlaugur Sigurðsson
Guðmundur Sigurðsson
Einar Ásgrímsson
Gísli Sigrðsson
Jón Sæmundsson
Jón Jónsson, Yztabæ
Steingrímur Magnússon
Varamenn eru:
Páll Jónsson
TILKYNNING
Með tilvísun til tilkynningar frá 3. nóv. 1943, varðandi flutn-
ingskostnað á ölföngum og gosdrykkjum, tilkynnist lilutaðeig- '
andi aðiliun, að 3. liður B. breytist þanriig, að í stað 40 aura
koma 45 aurar.
Breyting þessi nær til þeirrar vöru, sem flutt liefur verið
eftir 29. febrúar 1944.
Reykjavík, 13. marz 1944.
V erðlagsst jór inn.
Trésmiðir—járnamenn — verkamenit
Faglærðir trésmiðir óskast t il vinnu við Skeiðsfossvirkj-
umna nú í vor. — Vinna ca. 6 mánuðir. — Mikil yfirvinna. —
Einnig vantar nokkra menn vana járnvinnu (mikil og endurtek-
in jámbinding, tilvalin fyrir ákvæðisvinnu). Enfremur er æski-
legt, að þeir verkamenn, er hafa í hyggju að vinna við virkjun-
ina, gefi sig fram hið fyrsta, svo að síður verði leitað til ann-
arra staða.
Upplýsingar gefur skrifstofa Skeiðsfóssvirkj-
unarinnar í bæjarskrifstofuhúsinu, niðri.
ATVINNA
Á m.b. Mjölnir vantar mig sjómann nú þegar. — Til mála
gæti þó komið góður landmaður við bátinn.
Skafti Stefánsson.
Snurpubátar
óskast til kaups.
Hefi verið beðin að útvega eina snurpubáta.
Þeir sem skyldu vilja sinna þessu geri svo vel og
tali við mig sem fyrst.
Siglufirði 24. marz 1944
Erl. Þorsteinsson.
Atvinnna.
Tvær stúlkur geta fengið vinnu við karlmanna- j
! fatasaum hjá mér nú þegar, eða 1. maí. Hátt ^
» kaup, stuttur vinnutími. íl
Mikael Þórarinsson
Guðni Guðnason
Ólafur Gottskálksson
Einar Eyjólfsson
Stefán Guðmundsson
Hallgr. Márusson,
klæðskeri.
Ábyrgðarmaður:
Ó. H. GUÐMUNDSSON
Siglufjarðarprentsmiðja