Neisti


Neisti - 11.03.1949, Qupperneq 1

Neisti - 11.03.1949, Qupperneq 1
 Sigluf jarðarprentsmiðja h. f. 8. tb.1. Föstudagur 11. marz. 1949. TIL LESENDA ! Mikið efai verður að bzða næsta biaðs, þar á tmeðal grein eftir „Elliða“ um Siglufjarðarslfarð og grein frá F.U.J.-félaga. 17. árgangur. Sögulegur bæjarstjórnaríundur Fyrri umrœða um fjárhcigsáœtlun bœjarins 1949, stóð jfir í 15 tíma. Póroddnr Guðmundsson kom þar fram sem minnihluti. Það hlutverk lék iíann einn. Deildi hann mjög á bœjarstjórnina fyrir bru&l á fé bæjarins, og er honum var bent á það, að flokksbsœður hans hefðu verið samþykkir jmsu, sem hann kallaöi bruði á fé bœjarins, var hann fár við og sagðist ekki hafa mœtt á þeim fundum, sem slíkar ákvarðanir voru teknar á. Minnihlutarœða Þóroddar var því ekki aðeins dólgslegs árás á andstœðinga hans í bœjar- stjórninni heldur og á flokksbræður hans, er sœti eiga í bœjarstjórn. Gunnar Vagnsson bœjarstjóri veitti Þóroddi maklega Mrtingu fyrir hinn óvandaða málflutninc), og hrakti hann allar fullyrðingar Þóroddar um fjárbruðl bœjarstjórnar- Innar. Þegar umræðunum lauk kl. 4 um nóttina, var það hóglátur og lágreistur Þóroddur, sem hélt heim. í Mjölni, cem kom út s.l. miðvikudag, endurtekur Þóroddur ósann- indavaðal sinn frá bæjarstjórnarfundinum fyrri. Verður þessum skrifum hans gerð ofurlítil skil hér á eftir. Gunnar Vagnsson, bæjarstjóri íylgdi f járhagsáætluninni úr garði með mjög ítarlegri ræðu með samanburði á áætluninni 1948, og hvernig sú áætlun hefði staðizt. Fyrri hluti af ræðu bæjarstjórans birtizt í síðasta tbl. Neista og síð- ari hlutinn i dag. Yfirlit bæjar- stjórans hefur vakið mikla athygli. Er bæjarstjórinn lauk ræði sinni var kl. orðin tólf og frestaði þá forseti fundi. Kl. 4 daginn eftir hófst fundurinn að nýju. Þóroddur Guðmundsson var fyrsti ræðu- maður. Fljótlega kom í ljós, að þarna var á ferðinni ein af hinum makalausu, innantómu ræðum Þór- oddar. Ræðumaður fór í kringum Btaðreyndirnar eins og köttur í kringum heitan graut. Snemma 1 ræðunni lcfaði hann að fletta ofan af bæjarstjóra fyrir bruðl á fé bæjarins. Þegar hann lauk 2ja tíma ræðu sinni hafði Þóroddur gefizt upp við að standa við þetta loforð sitt. Doddi vesalingurinn tal aði mikið um, að Alþýðuflokkur- inn hafði gefið einum af gæðingum sínum húseign. Mun Dodda þarna eiga við húsið Hvbr. 29. 1 þessu sambandi getur Þóroddur ek>ki talað um gjöf Alþýðuflokksins til Guðlaugs Gottskálkssonar. Enda gerir Þóroddur sig. að bjána með því að fullyrða að 3 bæjarfuUtrúar geti gefi einhverjum einhvern hlut í trássi við hina sex bæjarfulltrú- ana. Sannleikurinn í þessu máii er sá, að þegar Ragnar Jóhannesson flutti tillögu um það í bæjarstjóm- inni, að auglýsi húseigmna Iivbr. 29 tii sölu, greiddu kommúnistar atkvæði gegn henni í bæjarstjórn- inni. Þeir vildu, að húseignin yrði leigð tveimur flokksbræðrum sín- um og bærinn legði fé í það að innrétta húsið, Isem aldrei hefði orðið minna en 70—80 þús. kr. — Tillögur Sjálfstæðismanna og kommúnista viðvíkjandi húseign- inni Hv.br. 29 þýddu aukn útgjöld fyrír bæinn, en hagnaður Guðlaugs Gottskálkssonar í húsaskiptunum er mjög tvísýnn að dómi fróðra manna, begar það. er athugað, að óvíst er hvort hann fær lóðina, sem húsið Hv.br. 29 stendur á. Þóroddur verður all tíðrætt um aðstoð bæjarms við bæjarverk- fræðinginn til þess að fá íbúð. Á bæjarstjórnarfundinum kom það greinileg í ljós, að allsherjarnefnd- in hafði samþykkt einróma að að- stoða bæjarverkfræðinginn við það, að eignast íbúð. Einn bæjar- fulltrúi kommúnista lýsti því yfir, að bæjarsltjórinn hefði e'kkert gert annað en að láta bæinn „standa við sínar skuldbindingar" um að- stoð við bæjarverkfræðinginn. — Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu kommúnistans, hikaði Þóroddur ekki við það að brigzla bæjarstjór- anum um bruðl á fé bæjarins 'i sambandi við þessar framkvæmd- ir. Fullyrðing Þóroddar um hinn slæmg, fjárhag bæjarins s.l. ár geta menn kynnt sér með því að lesa yfirlit bæjarstjórans um rekstur bæjarins 1948 og efna- hagssamaniburðurinn, sem birtist á öðrum stað í blaðinu. Það yfirlit vitnar það berlega gegn Þóroddi, að hann verður brjóstum'kennan- legur. Ennfremur er það mjög at- hyglisvert, að Sigluíjarðarkaup- staður hefur enga lántöku tekið, ti'l þess að standa straum af hinurn fjárfreku framfcvæmdum bæjar- ins. I þessu sambandi má geta þess að spyrðuband kommúnista og íhalds á Isafirði gerir ráð fyrir 1 millji. kr. lántöku til þess að standa straum af „lausaskuldum" Ísafjarðarkaupsitaðar. Þegar Þóroddur lauk ræðu sinni voru fundarmenn engu nær um til- gang hennar, enda er hægt að full- yrða, að honum tókst illa í þessu „minnihluta“ hlutverki sínu. — Minni spámenn kommúnista, þeir Hlöðver Sigurðsson og Gunnar Jó- hannsson, tóku einnig til máls, en á ræðum þeirra var lítið að græða, nema það, að þeir höfðu verið sam- þykkir ýmsu, sem Þóroddur nefndi ,,fjárbruðl“. Höfðu menn gaman að, þegar vitnað var til afstöðu þeirra til ýmissa mála, sem Þór- oddur fjallaði mest um, og Þór- oddur sagðist ekki hafa hugmynd um. I þessum víðtæ'ku umræðum um bæjarmálin var Þóroddur gjör- samlega einangraður, og það er mál mamia, að Þóroddur hafi 'i þessum umræðum orðið sér til rækilegrar skammar. Þessum sogulega bæjarstjórnarfundi lauk kl. 4 um nóttina eins og fyrr segir, er það mál manna, að ba'jarmálin hafi mjög skýrst við þessar um- ræður. Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisfl. Páll Erlendsson, talaði síðastur, og átti bágt með að skilja þessar miklu umræður, þar sem fullt samkomulag væri um bæjarmálin meðal flokkanna, þegar fundirnir færu fram í bæjarþingsalnum. — Þegar þessi sannyrði Páls Erlends- sonar eru athuguð, er hin milda moðsuðuræða Þóroddar í Gilda- skálanum skiljanleg, þar sem fundarsalurinn var þéttskipaður áhugasömum bæjarbúum. — Á undirtektum þeirra mátti merkja, að leiksýning Þóroddar hefði farið út um þúfur. Yfirfit yfir rekstur Hafnarsjóðs, rafveitu og '■ 1 og fjáriiagsáætlanir þeirra '49 I síðasta tbl. Neista var birt yfirlit yfir rekstur bæjaríns 1948. Nú verður birtur sá kafli úr ræðu bæjarstjóra, sem fjallar um rekstur hafnarsjóðs og rafveitunnar 1948 HAFNARGERÐIN OG HAFNARSJÖÐUR Á s.l. vetri öndverðum sam- þykkti hafnarnefnd og bæjarstjórn að hefja hafnargerð á Leirunum. Var þá komið a llmikið erient efni, járn'spons Larsen nr. 2, í fyrir- stöðiuþil og samþykki vita- og hafn armálastjórnarinnar fen'gið fyrir því að nota það á þann hátt, sem hafnarnefnd og bæjarstjórn ósk- aði., sem sé að byggja með þv’i fyrirstöðuvegg frá hafnarbökkum norðan gamla grjótgarðsinis, aust- ur á Leiruna. Jafnframt var áikveðið að hefja byg'gángu bráða- birgðadráttarbrautar norðan hafn- arbryggjunnar. — Hvorttveggja þessara framkvæmda hófust s.l. vor. Hvað dráttarbrautina snertir hafa verið steyptir garðar undir sleða ofan f jöruborðis og sömuleið- is allir hliðarfærsiugarðar. Enn- fremur hafa verið rammaðir niður staurar í sjó frammi, til undirbún- ings byggingu garða undir skipa- Sleðann í framhaldi af hinum steyptu görðum á landi. I vél- smiðju Rauðku hafa verið steypt öll hjól undir sleðann, og nokkuð af efhi í hann að öðru leyti er 'komið á staðinn og greitt. Á Leirunni hefur verið byggður fyrirstöðuveggur, rúmlega 250 m. lan'gur, er byrjar um 120 m. frá fremri brún á væntanlegri uppfyll- irugu undir hafnarlbökkum og nær austur á móts við fremri enda (Frainhald á 3. síðu).

x

Neisti

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.