Neisti - 18.06.1949, Blaðsíða 1
Siglufjarðarpreiitsmiðja h. f.
20. tbl. Laugardagur 18. júni 1949.
17. árgangur.
Sáttaumleitanir haía alls
borið
enean aransur
Formaður S. R. er á f örum úr bænum í dag.
fall Þróttar hefst á mánudaginn.
Verk-
í síðasta tbl. Neista var þess
getið að Sveinn Benediktsson, for-
^ maður stjórnar S.R. hafi viljað
láta samningauniieitanir Þróttar
og S.R. fara fram á Akureyri. —
Fjölmennur ftmdur í Vierkamanna
fél. Þrótti, sem haldinn var 10.
júní samþykkti einróma tiillögu frá
Jóh. G. Möller þess efnis, að samn-
ingar þessir fæm fram á lögheim-
ili S.R. og Þróttar.
Það sem skeð hefur í þessum
málum síðan er í stuttu máli þetta:
Bjarni Bjarnason, bæjarfógeti hef
ur verið skipaður sáttasemjari í
deilu 'Þróttar við síldarverk'smiðj-
urnar og aðra atvinnurekendur í
Ibænum. S. 1. miðviikudag kl. 5;
e. h. kallaði hann samninganefnd
Þróttar og form. S.R. á sinn fund.
Munu deiluaðilar hafa ræðst við
um 2 tínla í það skiptið. Fimmtu-
^ daginn ræddi hann tvívegis við
nefnd Þróttar. I gær hélt sátta-
senfjari fund með samninganefnd
Þróttar og form. S.R. og gerðist
harla lítið á þeim fundi og mun
Sveinn Ben. vera á förum úr bæn-
um í dag. Formaður S.R. virðist
daufheyrast við öllum kröfum
Þróttar.
Þessi mál standa því þannig, að
engar líkur eru til að samningar
náizt fyrir n. k. mánudag. Tillögur
frá sáttasemjara munu ekki vera
Fjáröflun til Elliheimilis
19. júní.
Kvenfélagdð „Von“ gengst fyrir
f járöflunardegi á morgun 19. júní.
Fjáröfluninni verður þannig hagað
að seld verða merki; bazar verður
í fimleikasal barnaskólans kl. 4
e. h., þar sem eflaust verða margir
eigulegir munir til sölu. Um kvöld-
ið verður dansað á Hótel Hjöfn. —
Kvenfél. „Von“ á beztu þakkir
skilið fyrir um forgöngu i fjár-
söfnun tál Elliheimilis, og ættu
Siglfirðingar að bregðast vel við.
væntanl. á næstunni. Það er því
fullvíst að til verkfalls kemur n.k.
mánudag. Það vekur mikla gremju
veríkamanna, — og er það vítavert
athæfi, — að fórm. S.R. skuli vera
að stökkva úr bænum, þegar samn
ingaumleitanir þyrftu að fara
fram daga og nætur, til þess að
takast megi að leysa deilrma sem
fyrst.
Með þessu háttarlagi sínu er
Sveinn Benedilktsson að ögra
verkamönnum og getur ekki ta'list
líklegt að það sé gert að vilja
meirihluta stjórnar S.R.. Það er
ekkert er mælir á rnóti þvi, að ef
íkappsamlega væri unnið að lausn
deilunnar af hálfu beggja deilu-
aðila, — en á samningan. Þróttar
hefur aldrei staðið, — og sátta-
semjari léti hendur standa fram
úr ermum, sem hann er áreiðanl.
iriaðui' til;að takast mætti að leysa
deiluna á sanngjarnan hátt á stutt
um t'ima. Neisti átelur það harð-
lega ef ekki verður unnið að því
daga og nætur að ná sáttum.
NÝJAR FÍKJUR
Tímaritið Stígandi kom ekki út
siðastliðið ár, en áður voru komnir
út fimm árgangar. Aðalstofnandi
og ritstjóri var Bragi Sigurjónisson
rithöfundur og kennari, og var
flest prýðilegt um ritið undir hans
umsjá. Nú með byrjun þessa árs
hóf ritið aftur göngu s'ína og hefir
tékið nokkrum breytingum, bæði
ytra og innra. Ný káputeikning
hefir verið tekin upp, og tveir rit-
stjórar í viðbót við \ iþann, sem
fyrir var, og eru það þeir Arnór
Sigurjónsson fyrrv. skólastjóri á
Laugurn, og Jónas H. Haralz hag-
fræðingur í Reykjavik. Með þess-
um hætti verður ritið eigi lengur
neitt sértimarit fyrir Norðlendinga
fjórðung, eins og það var áður,
og eins og t.d. timaritið Gerpir er
nú fyrir Austfirðingafjórðung. Er
að ýmsu leyti eftirsjá að þessu
sérstalka hlutverki St'iganda, en
þó ber að taka tillit til þess, að út-
gefendur telja meiri þörf fyrir
umræður um alþjóðamálefni, og
víst skal gefa gaum að öllum
nýjum fyrirtektum.
Fyrsta hefti yfirstandandi ár-
gangs Stíganda hefst á igóðu
kvæði eftir Heiðrek Guðmundsson
frá Sandi, og fjallar um viðhorf
íslendings, sem hvorki viil austri
né vestri hneigja, en standa sjálf-
stæður og í bróðurlegri samvinnu
við allt hið bezta með öðrum þjóð-
um. Er þetta vissulega hið eina við
horf, eins og umhorfs' er nú á
alheimsstjórnmáliavöllum, og þó
jafnan endranær.
Næst kemur allöng og prýði-
lega skrifuð ritgeerð eftir Arnór
Sigurjónsson, sem hann nefnir í
dag, og ræðir stjórnmálaástand
olkkar þjóðar, með skilningi
nokkuð skörpum og þó hógvær-
lega, án þess að 'gera tæpitungu
við það, sem til ibóta stendur. M.a.
er órðum að því leitt, að hinn svo-
nefndi Þjóðvamarfélagsskapur
muni ef til vill vera byrjim á nýj-
um stjórnmálaflokki. Mjög eru
mlenn misjafnlega hörundsára, er
slíkt mál, sem þetta ber á góma.
Sumir þola elk'ki, að minnzt sé á,
að nýr flokkur verði stofnaður til
höfuðs hnium gömlu og góðu, sem
fyrir eru. Einkum er talið goðgá,
að Þjóðvörn skuli talin vænleg til
að vaxa upp 'i opinberan, starfhæf-
an og áhrifaríkan flokk, og veld-
ur því hlutdeild þessa félagsslkap-
ar í ólátunum gegn Atlanzhafs-
bandalaginu. Skal það ekki rætt
ítarlega hér, hvort þetta er rétt
mat á Þjóðvörn, en heldur bent á
akureyzka ritgerð um það efni,
sem birtist 1 Alþýðublaðinu þann
30. april s.l. undir fyrirsögninni:
Fíkjubiað, eða hvað?, og túlkar
vissulega hið rétta viðhonf gagn-
vart Þjóðvörn. Og á ég hér þó
elkki við það, að þau samtök séu
svo mjög samjsek kommúnista-
flónagrjónimum, sem við viljum
stundum vera láta. Því að fyrr má
nú rota en dauðrota. Og hóf er
bezt í öllum dómum.
Umrætt Stígandahefti flytur
auk þess tvær aðrar mjög athyglis
verðar ritgerðir. Er önnur eftir
Jónas H. Haralz og nefnist Áróð-
ur og veruleiki. Þetta er gáfuleg
(Framhald á 4. síðu).
m
* Það hörmulega slys varð hér í
bænum hinn 7. þ.m., að Ásmundur
Sigurðsson, verkamaður, til heim-
ilis 'i Hafnargötu 12, varð fyrir
bifreiðinni F. 170, og beið þegar
bana. Ásmundur var á leið úr
vinnu þegar slysið vildi til. Ás-
mundur heitin var 48 ára gamall
og lætur eftir sig konu o;g fjögur
börn; eru þrjú þeirra uppkomin,
en hið yngsta 5 ára. Ásmundur
fluttist hingað til Siglufjarðar frá
Reyðarfirði fyrir nokkrum árum.
Ásmjundur var góður vinnufélagi
og prýðismaður. — Útför hans fer
fram á Reyðarfirði.
* Elliði, nýsköpunartogari bæjar-
ins, seldi afla sinn nýlega í Gríms-
by. Síkipið hafði aflað 5008 kitt, og
seldi þau fyrir 14313 pund eða rúm
lega 375 þús. kr. — Er þetta lang
bezti afli togárans í einni veiðiför
og bezta sala hjá íslenzkum togara
undanfarnar vikur.
* Bæjarstjórn samþykkti á fundi
sínum s. 1. þriðjudag uppkast að
verksamningi við Gunnar Jóseps-
son og Aage Johansen, um flutn-
ing á skipasleða og tilheyrandi
tæíkjum, sem allt hefur verið keypt
af dráttarbraut Akureyrar h. f.,
og uppsetningu þess á Siglufirði.
Hljóðar samningsupphæðin upp á
kr. 90.000,00. Þeir Gunnar og Aage
eru þegar byrjaðir á verkinu. —
Ennftemur var samþýkkt að
kaupa vélar og verkfæri ásarnt
nöklkru efni af Skipasmiðastöð
Siglufjarðar. Miklar líkur eru til
þess að slippurinn komizt upp í
sumar og á hann að geta tékið upp
skip alllt að 150 tonnum.
* Á þessum sama bæjarstjórnar
fundi var samþýkkt að bærinn
greiddi kaupgjaild eftir kröfum
Þróttar, ef til verkfalla kemur, en
gengur svo inn í þá samninga er
umsemst. Að sjálfsögðu nær þetta
aðeins til þeirra verkamanna, sem
eru í vinnu hjá bænum.
* Guðlmundur Einarsson verkstj.,
í SjR. átti fertugsafmæli 15. þ.m.
Guðmlundur hefur unnið hjá S.R.
síðan fyrsta verksmiðjan var reist
1930 og verið 1. meistari í S.R.30
og S.R.N. Guðmundur Einarsson
mun vera einn af færustu verk-
stjórum S.R. og þótt víðar sé leit-
að, enda þrautkunnugur öllu þvi
sem kemur síldarverksml.rekstri
við. Guðm. er vel látinn af verka-
mönnum, enda góður félagi.
* Sveinn Ásmundsson, hinn kunni
byggingarmeistari átti fertugsaf-
mæli 16. júní s. 1. Sveinn Ásmunds-
son þekikja allir Siglfirðingar af
dugnaði og atorkusemi. Sveinn er
vel liðinn og drengur hinn bezti.
Neisti sendir afmæiisbörnunum
slnar beztu hamingjuóskdr.