Neisti


Neisti - 26.08.1949, Page 3

Neisti - 26.08.1949, Page 3
I i NEISTI 3 Ritstj. annast: Sig. Jónasson, Jón Sæmundsson og Hóhnst. Þórarinsson Á það var bent nýlega í þessu balði áð Sjálfstæðisfl. væri, sem stæði, stærsti stjórnmálaflokkur- * inn. Það var eins og ritstjóra Sigl- firðings hefði áður sézt yfir þetta. Hann kunni sér ekki læti, og f annst að hann (flokkurinn en ekki rit- stjórinn) væri orðinn svo stór, að hann hefði möguleika á að ná meirihluta-aðstöðu við næstu kosn- ingar til Alþingis. Þó að það séu hugarórar er ekki úr vegi að at- y huga nokkuð hinn stóra!! flokk. En við þá athugun mun koma í ljós að Sjálfstæðisfl. er í raun og veru ekki einn flokkur ,heldur ósamstæð samsteypa, sem tekist hefur fram að þessu að fleka menn með ólík- ustu sjónarmið og hagsmuni, til s þess að fylgja sér við kosningar. Aðaluppistaða fiokksins er mynd uð af auðugum heildsölum, iðnrek- , endum og stórútvegsmönnum. Þá fylgja einnig flokknum að máli afturhaldssöm embættismanna- stétt og ýmsir, sem hafa fengið ákveðin sérréttindi með eignar- rétti á húseignum, löndum og lóðum svo og rekstri arðsamra séreigna með einskonar einokunar- aðstöðu, svo sem kvikmyndahúsa og lyfjabúða. / Þegar Sjálfstæðismenn tala um frjálsa verzlun, meina þeir ekki að hver sem er fái að vezla, heldur vilja þeir viðhalda þröngsýnu „kvotakerfi," þar sem allur inn- flutningur á að vera í höndum gam alla rótgróinna verzlunarfyrir- tækja, en þess gætt að kyrkja í fæðingu hverja viðleitni ungra fyrirtækja til verzlunarviðskipta. '* Hefur þetta berlega komið fram í afskiftum verzlunarráðsins, ;sem er samband hinna fáu útvaldra. — Fara saman hagsmunir heildsal- anna, og neytenda og launamanna ? Afdráttarlaust nei. Heildsalarnir vilja sem mesta álagningu og sem mestan gróða. Launamennirnir iþurfa vörurnar sem ódýrastar og * því með minnstri álagningu. Enda hefur verzlunarstéttin kveinkað sér mjög undan þeim ráðstöfunum, sem gerðar hafa verið um minnk- aða álagningu. Sjálfstæðisfl. hefur tekizt að blekkja til fylgis við sig ýmsa smásala og verzlunarmenn. En það er hinn mesti misskilning- * ur að Sjálfst.fl. eða máttarstólp- ar hans hafi nokkuð fyrir þessa menn gert eða vilji nokkuð fyrir þá gera. Máttarstólparnir líta að- eins á þá sem nauðsynleg tæki til íþess að hagnast á. Það er líka staðreynd að fæstir þessir menn hafa fengið ríflegan hlut af verzl- unargróðanum. Þeir munu vera jafn nauðsynlegir til þess að ann- ast dreyfingu varanna, þó að öll innkaup færu fram á einni hendi, t. d. með landsverzlun. Hlutur heild salanna mundi að sjálfsögðu rýma en hinna ekki. Smáverzlanir eiga enga samleið með heildsölum, það er aðeins nauðsynleg sjónvilla í blekkingarkerfi Sjálfstæðisflokks- ins að halda slíku fram. Stóriðjuhöldarnir hafa að mörgu leyti samskonar sjónarmið og heild salarnir. Hagsmunir þeirra rekast þó á öðru hverju, þegar þeir heimta ákveðinn hluta af gjaldeyrinum fyrir hráefni til iðnaðarins. En oft er þetta hráefni ekki annað en duft eða lögur á tunnum, sem sett er í umbúðir hér innanlands. Þessi stétt á heldur ekkert skylt við smáiðn- rekendur, sem vinna úr íslenzkum hráefnum eða stunda ýmiskonar heimilisiðnað. Hinir mörgu smáu útvegsmenn eiga heldur enga samleið með hin- um fáu auðugu stórútgerðarmönn- um, jafnvel þótt þeir hafi látið blekkjast. Það eru heldur ekki hags munir þjóðarinnar að nokkrar f jöl skyldur skuli eiga flest öll kvik- myndahús í landinu eða að 2 bræð- ur og frændi þeirra skuli eiga 3 stærstu lyf jabúðir landsins. Vissulega þarfnast þjóðin sam- starfs, en hún hefur ekki efni á því að gefa það fyrir samstarfið, að nokkrar fjölskyldur öðlist völd og auð til þess að ráða yfir af- komu alls þorra landsmanna. Hún þarf samstarf, heilbrigt og vitur- legt samstarf, sem byggist á þörf o g mannsæmandi aðbúð allrar þjóðarinnar, en það samstarf fæst aldrei fyrir atbeina Sjálfstæðis- flokksins. Þá má ekki alveg gleyma bændadeild flokksins. Ætli velflestir launamenn muni ekki eftir „hækkuninni" hans Ingólfs á Hellu, á landbúnaðarafurðunum, þegar hann ætlaði að slá Fram- sóknarmenn út. Þá verður einnig 'fróðlegt að vita um afstöðu full- trúa Sjálfstæðisflokksins við verð- ákvörðun landbúnaðarafurða á hausti komanda. Bændur hafa nú ódýrt vinnuafl (þýzka verkafólkið) og margir hverjir góðan vélakost með margföldum afköstum. Fá launamenn og verkafólk að njóta þess? | ; i Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur oft verið tví- og þriklofinn. ÞAKKARÁVAKP lnnilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og j\arðarför föður og tehgdáföður okkar, SIGURÐAIi SIGURÐSSONAR, llvann- eyrarbraut 7b. BÖRN OG TENGDABÖRN Nokkrar fyrirspumir til A. R: Schiöth I grein, sem birtist í 31. tbl. Siglfirðings, eftir þig — með fyrir- sögninni — Socialismi eða séreign — eru eftirfarandi ummæli: „Stjórnmálaibaráttan hér á landi stendur um það, hvort innleiða skuli sósíalistiskt þjóðfélagsskipu- lag samkvæmt kenningum Ivarls Marx, og er fyrirmyndin Rússland. Frambjóðendur Alþyðuflokksins og kommúnistaflokksins, þeir Er- lendur Þorsteinsson og Áki Jak- Heildsalar, bændadeild o.s.frv. — Þetta eru staðreyndir, sem ekki tjáir að. mæla mót. Og hvernig hefir svo Sjálfstæðisfiokkurinn tekið á velferðar- og umbótamál- um alls almennings. Hann barðist gegn 21 árs kosningarétti. Hann barðist gegn afnámi sveitarflutn- ings. Hann barðist móti lögum um byggingu verkamannabústaða. — Hann barðist gegn tryggingarlög- gjöfinni. Hann barðist gegn orlofs- lögunum og yfirleitt gegn þjóðfé- lagsumbótum, meðan unnt var. Og hver voru svo bjargráð flokksins í vetur, þegar átti að f ara að spara ? Það átti að afnema orlofslögin. Það átti að stórlækka framlög til trygginga. Það átti að afnema ríkisrekstur arðbærra fyrirtækja. Er það ekki von, að ritstjóri Siglfirðings sé hrifinn af flokki með þvílíka fortíð og nútíð? Er það ekki von, að hann búist við miklum sigri. Sjálfstæðisflokknum, eins og hann er nú, má líkja við gamla fúaduggu, sem hefur verið „dubbuð" upp fyrir kosningarnar. Það hefur kalfaktað yfir stærstu rifurnar og tjargað yfir. Fyrir ofan sjó er skútan máluð með slagorðum og gimilegum kosninga- loforðum, þar sem aílt á að gera fyrir alla. En fyrr eða síðar mun þessi skúta stranda og liðast í sundur á því skeri, sem heitir þekking og hugsun. Hér í Siglufirði mun þetta strand ské fyrr en ella, þar sem við stjórnvöl sitja, menn eins og nú- verandi formaður flokksins og fóðurmeistari íhaldsins, og það af þeirri ástæðu, að þeir kunna ekki skil á lýðræði og einræði. Þeir munu hér eftir sem hingað til vinna að framgangi kommúnista með lýðræðisbros á vör og frelsis- skraf á tungu. obsson, stefna báðir að þessu marki“. „Menn verða að gera sér ljóst, hvort þeir vilja stefna að því að koma á sósíalistisku þjóðíélags- skipulagi eins og tíðkast í Rúss- landi og löndum þeir, sem þeir liafa lmésett og svift frelsi, með fangahúðum, ófrelsi og þræla- haldi“. IJt af þessu vil ég óska eftir svari við eftirfarandi spurningum: 1. Er þetta sérskoðun þín eða er þetta álit Sjálfstæðisflokksins á Siglufirði ? 2. Geturðu bent á eitt einasta land, þar sem jafnaðarmenn hafa náð meirihluta, og neitað að láta hann af hendi í frjáls- um kosningfum ? 3. Geturðu bent á eitt einasta land,þar sem kommúnistar hafa náð meirihlutaaðstöðu og af- hent hana í frjálsum kosning- um? 4. Jafnaðarmenn hafa náð meiri- 'hluta í Noregi, Sv'iþjóð, Dan- mörltu og Bretlandi. Getur þú bent á, að 1 þessum löndum hafi þjóðirnar verið sviftar frelsi með fangabúðum og þrælahaldi ? 5. Um áratugi hefur danska þjóð- in við hverjar kosningar fylkt séu um stefnu Alþýðuflokksins, sem um árabil hefur verið lang- stærsti flokkur landsins. — Á sama tíma hefur gengi komm- únista farið þverrandi og það svo, að við síðustu kosningar tapaði þessi flokkur helmingi Iþingsæta. Danska þjóðin gerir þessvegna mikinn mun á stefnu kommúnista og jáfnaðarmanna sem þú vilt setja undir sama 'hatt. Telur þú, að þetta sé fyrir menntunarskort eða þekkingar- leysi dönsku þjóðarinnar á eðli sósíalismans ? . % Eg vænti svars við þessum fyrir- spumum hið fyrsta. Ef þú skyldir ekki fá pláss í „Siglfirðingi,“ skal ég reyna að tryggja þér rúm í „Neista“. Erl. Þorsteinsson ^tytufiaflarkíc Föstudag og laugardag kl. 9: KONA NÆTÚRVARÐARINS Ný sænsk mynd r /

x

Neisti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.