Neisti - 07.10.1949, Síða 2
2
I
—NEISTI—
VIKUBLAÐ
Ctgefaaidi: AlþýðufLfél. Sigluf j.
Ábyrgðarmaður:
ÓLAFUR H. GUÐMUNDSSON 7
Áskriftagjald kr. 20,00 árg. —/
Gjalddagi blaðsins er 1. júlí 7
Afgr. bl. er í Aðalgötu 22 /
(haldið og Kommar
mynda meirihluta
(Framhald af 1. síðu)
starfsemi í garð bæjarfélagsins.
Hitt var smekkleysa af honum að
vera að reyna að snúa sig út úr
jþessu með allskonar fáránlegum
dylgjum og getsökum í garð ann-
ará bæjárfulltrúa. Ragnar Jóhann-
esson er ekki það heimskur, að
hann veit vel, að ekkert af því,
sem hann kom fram með, þó satt
hefði verið, gat réttlætt það að
víkja bæjarstjóra fyrirvaralaust
frá starfi. Fulltrúar kommúnista
lýstu andstyggð sinni á tillögu
Péturs og fannst hún ódrengileg,
og kannske einmitt af þeim ástæð-
um hefur þeim fundizt sjálfsagt að
greiða henni atkvæði.
Fulltrúar Alþýðuflokksins mót-
mæltu þessari tillögu og færðu að
íþví sterk rök, að engar þær ástæð-
ur væru fyrir hendi, sem réttlætt
gætu fyrirvaralausa brottvikningu
bæjarstjóra. — FrávísunartiUaga
Ragnars var síðan felld með 5
atkv. gegn 4 og tillaga Péturs
síðan- samþykkt með atkvæðum
Sjálfstæðisflokksins og kommún-
ista, gegn atkvæðum 3ja fuUtrúa
Alþýðuflokksins og Framsóknar-
mannsins. — Með þessari sam-
(þykkt skriðu íhaldið og kommún-
istar í flatsængina og mynduðu
meirihluta, sem þó hvorugur
þeirra vill .bera nokkra ábyrgð á.
Afleiðingar fyrir
bæjarfélagið.
Undanfarin 5 s'íldarleysisumur
hafa lagst með ofurlþunga á þetta
bæjarfélag. Beinar tekjur bæjar-
ins og hafnarinnar hafa brugðizt
svo að segja algerlega. Rauðka
hefur tapað. Önnur fyrirtæki bæj-
arins hafa einnig tapað. Togarinn
tapaði á b.1. ári, og svo mætti lengi
telja. Þetta viðurkenndu aUir bæj-
arfulltrúamir. Þeir fimmburamir
sem í heiminn komu á umræddum
bæjarstjómarfundi, gátu heldur
ekki neitað þessum staðreyndumf"
Þeir gátu heldur ekki neitað því,
að enginn bæjarstjóri hefði verið
(þess megnugur að ráða síldargöng
um, eða afla togararis. Þar með
er það viðurkennt, að ekki er hægt
neiihn
að saka Gunnar Vagnsson um það.
Þá er það einnig viðurkerint, að
bærinn og fyrirtæki hans hafa
lagt fram mjög háar upphæðir til
fjárfestingar (togarinn o fk) án
þess að taka lán. Þetta skapar
vissulega greiðsluvandræði, þó að
auknar eignir skapist hjá b^enum.
Öll þessi greiðsluvandræði voru
bæjarfuUtrúunum löngu kunn, og
það af skýrslu, sem bæjarstjóri
hafði gefið allsherjarnefnd. Ut af
þessum greiðsluvandræðum hafði
Gísli .Siguiðsson í samráði við
bæjarstjóra flutt tUlögu um það,
að Allsherjarnefnd tæki að sér aö
ráða því hvaða reikningar og í
hvaða röð þeir skyldu greiðast. —
AUsherjarnefnd virðist hafa skillð
erfiðleika (aðallega bæjargjald-
kera) á skiptingu lítils fjár í
marga staði og samþykkti þetta.
Það var því síður en svo, að
öllum bæjarfulltrúum væri ekki
ljóst, hvernig málin stóðu. Þess-
vegna var kosin 4 manna nefnd til
til þess að rannsaka enn ítarlegar
f járhagsástæður bæjarins, gera
ráðstafanir til úrbóta og gera til-
lögur um ráðstafanir til aukinnar
atvinnu í bænum. Það er mjög
athyglisvert, að það er í þessari
4 manna nefnd, sem fram kemur
tillagan um brottvikningu bæjar-
stjóra. Ber að skilja þetta svo, að
þær einu ráðstafanir, sem Pétur
Björnsson og sálufélagar hans
komu auga á, væru þær að víkja
bæjarstjóra? Fyrir þessu vanta
rök og upplýsingar. Allir ókunnir,
og utan Siglufjarðar, hljóta að
líta svo á. Þessi sama nefnd taldi
brýna nauðsyn bera til þess að
senda menn á fund ríkisstjórnar-
innar tU þess að leita aðstoðar. Er
það virkiléga svo, að Pétur Björns-
son og félagar hans telji, að þá
för væri ekki hægt að fara fyrr en
búið væri að víkja bæjarstjóra frá
störfum? Enn verður að heimta
skýr svör.
AUir bæjarfuUtrúar og bæjar-
stjóri höfðu gert sér ljós þau vand
kvæði, sem þarf að leysa. Allir
vildu gera sitt bezta. En einmitt
þá flytur Pétur Björnsson þessa
marg umræddu tillögu. Var þetta
gert til þess að sundra samstarfi?
Var Pétur Björnsson að gera tU-
raun tU þess að spiUa fyrir hags-
munamálum bæjarins, eða var
svona nauðsynlegt að reka bæjar-
stjórann, að til þess þyrfti að
fórna einhug þeirra, sem bæjar-
málunum eiga að stjórna? Enn
vantar skýr svör. Fulltrúar íhalds-
ins og kommúnista hafa hér skap-
að sér þunga ábyrgð. Þeir hafa
gert sitt til að telja þeim, sem
ekkert þekkja til mála á Siglu-
firði trú um, að bæjarstjórinn sé
áfbrotamaður, sem víkja beri taf-
arlaust frá starfi. En þeir, sem til
þekkja skynja, að hér eru á ferð-
inni pólitískir loddarar, sem hugsa
um það eitt að reyna að ná sér
niðri á pólitískum andstæðingi, en.
meta að engu hagsmuni þess bæj-
arfélags, sem þeir eiga að stjórna.
Og nú er ástandið þannig, að eng-
inn bæjarstjóri er í bænum og
ekkert framkvæmdarvald. Herr-
arnir, sem ráku bæjarstjórann,
hafa sem sé ekki getað komið sér
saman um skiptingu á ránsfegn-
um. Hvór kennir öðrum um það
öngþveiti, sem skapast hefur cg
sem er óleyst.
Pétur Björnsson heimt-
aði,að bærinn yrði settur
strax undir eftirlit.
Ekki verður svo skilist við
þennan bæjarstjórnarfund að
þesS sé ekki getið, að fulltrúi Sjálf
stæðismanna, Pétur Björnsson,
flutti tillögu um það,- að bærinn
yrði settur undir opinbert eftirlit..
Þess má þó geta öllum öðrum
bæjarfulltrúum til verðugs hróss,
líka kommúnistum, að þeir felIJu
þessa tillögu. Það skal ósagt látið,
hvort hér er um að ræoa heiguls-
hátt við að mæta erfiðleikunum
og gera tilraun til þess að leysa
þá, eða almenna fyrirlitningu fyrir
sjálfstæði bæjarfélagsins.
Og nú reyna þeir að
afsaka sig.
Fulltrúarnir 5 — fimmburarnir,
sem getnir voru með nafnakalli á
bæjarstjórnarfundinum 4. okt. og
fæddust samstundis — reyna nú
að afsaka sig á allan hátt. Ekkert
samkomulag er og bróðurþel lítið
á kærleiksheimilinu. Þeir gera
vanmátta tilraunir til þess að
skjóta sér bak við Alþýðuflokk-
inn með rangri tilvitnan í tillögur
og ranga túlkun á ummælum bæj-
arfulltrúa Alþýðuflokksins, og er
það hrekkur ekki, þá hreina föls-
un. Kommúnistar hafa lengi setið
á svikráðum við bæjarstjóra, og
þegar þeim barst tækifærið upp í
hendurnar, skorti þá manndóm til
þess að meta hag bæjarins fram
yfir ímyndaðan pólitískan ávinn-
ing. Enginn gat vænzt neins dreng-
skapar af þeirra hendi í garð póli-
tísks andstæðings, allra sízt, er
hann var Alþýðuflokksmaður. —
Það má að vísu ætla, að Gunnar
Jóhannsson hafi haft nokkra löng-
un til þess að gefa bæjarstjóra
kost á að verja mál sitt. En Gunn-
ar hlýðir alltaf því sem flokkurinn
leggur fyrir hann. Má nærri geta,
að maður, sem hefur opinberlega
beðist afsökunar á því að láta fé-
laga Steinþóru (konuna sína)
hafa flokksleg áhrif á sig, (sem
urðu þess valdandi, að hann kom
með ásakanir í garð félaga Aðal-
björns Péturssonar) mundi ekki
leggja sig í neina flokkslega hættu
fyrir Gunnar Vagnsson og rétt
málefni. En kommúnistar verða
að sitja uppi með þá skömm, að
hafa haft hagsmuni bæjarfélags-
ins að engu og myndað nú meiri-
hluta í bæjarstjórn með íhaldinu.
Þá ábyrgð hafa þeir á sig tekið,
og undrar það engan, að þeir hafi
heldur valið þá leið en að koma
drengilega fram við Gunnar, þó
að það kynni að hafa kostað setu '
hans sem fcæjarstjóra, — með hlut
leysi þeirra, — í nokkra mánuði.
Allt öðru máli er að gegna um
íhaldið. Þar er það aðeins lítill
hluti flokksins, sem hlut á að máli
undir forystu Stefáns og Schiöth.
Mikill meiri hluti flokksis, og þá
sérstaklega þeir, sem hafa skömm
á kommúnistum, fordæma þetta
atferli. Þeir vilja vinna að fram- >
gangi bæjarmála af heilum hug,
og fyrirlíta eins og allir góðir
drengir þessa fruntalegu fram-
komu og skammast sín flokksins
vegna fyrir þau afglöp, sem fram-
in hafa verið í nafni hans. Það er
vitað, að þessi hópur manna kom
þar hvergi nálægt, og að þeir
mundu hafa beitt áhrifum sínum ...
til þess að koma í veg fyrir það.
Stefán og félagar sitja nú uppi
með skömmina og fyrirlitningu
allra þeirra fjölmörgu Siglfirðinga,
sem þykir vænt um bæinn sinn
bg vilja ekki láta slík endemi ber-
ast út um landsbyggðina. En þessir
menn virðast ekki kunna að
skammast s’in. Seinast í dag birta
þeir eftirfarandi í blaði sínu:
„Það er rétt að leggja áherzlu 1
á, að á sama tíma og 4 manna
nefndin samþykkir emróma, að
fjárhagur bæjarins sé þannig,
að ENGA BIÐ ÞOLI að leita að-
stoðar ríkisstjómarinnar bregð-
ur Gunnar Vagnsson sér í sumar
frí.“
(Leturbreyting Neista).
Þessir herrar bera ekki mikla .
virðingu fyrir sannleikanum, og '
það er eins og þeir búist við, að
i engir lesi blað þeirra aðrir en hálf-
vitar.
Á annarri síðu blaðsins er að
finna tilvitnaða samþykkt. Hún er
gerð á fundi 4 manna nefndarinnar
1. október 1949.
Nú er það vitað, sannað og upp-
lýst, að Gunnar Vagnsson fór úr '
bænum þriðjudagskvöld 27. sept-
ember.
Hjvernig átti Gunnar Vagns-
son að vita um samþykkt, sem
gerð var 1. október og haga
ferðum sínum nokkrum dögum
áður (27. sept.) í samræmi við
það?
Hvað halda þeir Siglfirðings- >.
menn að hægt sé að ganga langt
í lygi og blekkingum. Trúa þeir
virkilega að hægt sé að bjóða fólki
upp á annað eins og þetta ?
En einmitt þetta litla dæmi ber
glöggt vitni málflutningi þeirra
Stefáns og Schiöths í þessu máli
sem öðrum.
Þeir munu uppskera eins og þeir
'hafa til sáð: Verðskuldaða fyrir-
litningu allra góðra manna, jafnt
flokksbræðra sinna sem annarra.
s