Vera - 01.12.1982, Blaðsíða 19

Vera - 01.12.1982, Blaðsíða 19
sem eru giftar eöa í sambúð, alveg eins og hitt voru karlar, sem eru í sambúð. Þetta eru ekki einhleypingar. Þá segja 39 af þessum 327 að þær vinni utan heimilis til þess að sjá sér og sínum farborða. Til að afla meiri tekna 74. Síðan eru það 65, sem segjast vinna utan heimilis, vegna ánægj- unnar og vegna teknanna. Og 65 segjast vinna utan heimilis eingöngu vegna ánægjunnar. Síðan eru 9, sem segjast vinna utan heimilis vegna þess að það sé orðið léttara heimili hjá þeim heldur en áður. En hvað segir þetta okkur. Þetta segir okkur það, að það er svo vel búið að konunum hjá okkur, aðstór hluti af þeim, sem faraút á vinnumarkaðinn, þær fara út á vinnumarkaðinn vegna ánægjunnar af vinnunni [eða bara vegna ánægjunnar af að fara út? — Innskot]. En karla-greyin, þeir eru til- neyddir að fara út á vinnumarkaðinn til þess að vinna fyrir fjölskyldunni, enda eru um 70% þeirra, sem fara — sem vinna til þess að sjá heimilinu farborða, en það er ein- kennilegt, sem fram kemur þarna, að þessir 506 karlar hafa litla ánægju af þeirri vinnu, sem þeir stunda. Annað og það eru mín lokaorð og ég vil beina því til þeirra kvenna, sem hér eru sérstaklega og einnig karlanna: Við skulum ekki vanmeta starf húsmóðurinnar. Það er líka þýðingarmikið starf í þjóðfélaginu að sinna heimilisstörf- unum, og við mættum kannske stuðla meira að því að gera veg húsmóðurinnar meiri í þjóðfélagi okkar heldur en nú er, í staðinn fyrir ýmislegt annað, sem verið er að halda fram í þessari baráttu. Borgarfulltrúi Kristján Benediktsson VERÐLAUNAGETRAUN Hver er höfuðorsök fyrir aftanákeyrslum? A. Fagrar stúlkur? B. Of stutt bil á ntilli ökutækja? C. Nærsýni? Fyrir hvað eru menn oftast sviptir ökuleyfi? A. Frekju og dónaskap? B. Ölvun, of hraðan eða vítaverðan akstur? C. Að blikka kvenlögregluna? 777 hvers er baksýnisspegillinn? A. Svo að farþeginn í framsætinu geti snyrt sig? B. Til að fylgjast með umferð sem kemur á eftir? C. Til skrauts? Hvar ber að sýna sérstaka varúð í akstri? A. Þar sem ófrískar konur eru á ferð, vegna ummáls? B. I nánd við skóla, leikvelli og þar sem börn eru eða gætu verið að leik? C. Þar sem mikið af fögrum konum eru á ferð? Fjórar spurningar af 18 í Verðlaunagetraun, sem JC- Breiðholti, Samvinnutryggingar og Klúbbarnir Öruggur akstur efndu til nýlega. Þetta eru svo sem viðhorf, sem við þekkjum allar eða hvað? Einhvers konar „spyrnu- húmor“. Og ekki er verið að gera ráð fyrir að konur aki bifreiðum. Blindir fara raunar ekki varhluta af brodd- göltunum heldur, sbr. spurninguna: Hvernig merki bera heyrnardaufir? A) Grænan borða á báðum handleggj- um? b) Bláan borða á höfði? c) Köflóttan borða á fót- um? VERA þakkar lesendanum, sem sendi okkur getraun- ina og vakti athygli okkar á spurningunum. Áfram stelpur — hafið augun opin!

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.