Vera - 01.12.1982, Blaðsíða 22

Vera - 01.12.1982, Blaðsíða 22
Blönduð byggð - betri byggð Á borgarráðsfundi þ. 30. nóvember sl. var lagt fram bréf frá forstöðumanni Borgarskipulags frá 22. nóv. varðandi deiliskipulagstillögu vestari hluta svæðis B. í Ártúnshoiti. Þessi deiliskipulagstillaga varsamþykkt með 4 atkvæðum á móti einu. Þetta eina var atkvæði fulltrúa Kvennaframboðsins, Guðrúnar Jónsdóttur og lét hún bóka afstöðu sína þannig: „Deildiskipulag fyrir Ártúnsholt, sem hér er fjallað um, gerir ráð fyrir 126 íbúðum í Verkamannabústöðum á svæði, sem upphaflega var ætlað fyrir 90 íbúðir. Hér eins og endranær, þegar teknar eru ákvarðanir um skipulag og byggingu Verkamannabústaða, sitja hagkvæmnis- og fjárhagssjónarmið í fyrirrúmi. Að engu eru hafðar kann- anir, munnlegar og skriflegar umsagnir starfsmanna Fé- 1 agsmálastofnunar Reykjavíkur, kennara og skólastjóra grunnskóla í Fella- og Seljahverfi, sem allar henda á. að viðlíka skipulag og hér um ræðir, hefur haft í för með sér ill-leysanleg félagsleg vandamál. Við teljum þá grundvallarhugmynd, sem skipulagið byggir á, þ.e. að þjappa verkamannabústöðum saman á eitt svæði, afar varhugaverða, þar sem ekkert tillit er tekið til félagslegra afleiðinga hennar. Enn þá alvarlegri verður hún við þá 36 íbúða fjölgun, sem núverandi deili- skipulag gerir ráð fyrir. Við greiðum því atkvæði gegn þessari tillögu að deili- skipulagningu.“ * * * Hér er auðvitað verið að mótmæla því að hola mörgum íbúðum niður á allt of litlu svæði. Eins og bókun Kvenna- framboðsins ber með sér, var upphaflega gert ráð fyrir 90 verkamannaíbúðum á Ártúnsholtinu og svæðið skipulagt með tilliti til þess hvað varðar leikvelli og önnur útivistar- svæði. Eftir kosningar í vor fór stjórn Verkamannabú- staða og arkitekt hennar fram á að þeim íbúðum yrði fjölgað í hvorki meira né minna en 143 án þess að aukið yrði við byggingarsvæðið sjálft. Þetta þótti í mesta lagi og síðar var samþykkt ný tilhögun, sú að íbúðirnar yrðu 126 og hlaut sá íbúðafjöldi samþykki skipulagsnefndar og borgarráðs en á öllum stöðum greiddu fulltrúar Kvenna- framboðsins atkvæði á móti og vildu að staðið yrði við upphaflegt skipulag, 90 íbúðir. Fyrir þessari skoðun okkar í Kvennaframboðinu liggja góðar og gildar ástæð- ur, sem hér verður gert grein fyrir: Það samræmist ekki stefnu Kvennaframboðsins að nóg sé að byggja og byggja á sem ódýrastan hátt. í skipulagi nýrra liverfa veröur að taka tillit til mannlegra þátta og þeirrar kröfu að íbúahverfi séu eins vistleg og unnt er. Félagslegum þörfum sé fullnægt og allt verði lagt undir til að koma í veg fyrir vandamál, sem röng skipulagsstefna getur haft í för með sér. Það samræmist heldur alls ekki stefnu Kvennafram- boðsins að þjóðfélagshópum sé safnað saman á einn stað. Reynslan bæði hér og erlendis sýnir að æskilegt er að íbúahverfi séu blönduð, bæði hvað varðar húsagerð og íbúa og þá með tilliti til tekna, menntunar, aldurs o.s.frv. * * * I þessu sambandi má nefna dæmi um hroðvirknisleg vinnubrögð í skipulagsmálum, vinnubrögð, sem koma niður á heill íbúanna og skapa beinlínis vandamál í nýjum hverfum. Mikið hefur verið rætt um félagsaðstæður í Breiðholtinu og skýrslur sýna,að þar hefði verið þörf á meiri aðgát. Eiðsgrandasvæðið er annað og nýrra dæmi um fljótfærni. Á því svæði öllu var upphaflega gert ráð fyrir íbúatölunni 1800. (Þá er miðað við meðal fjöl- skyldustærð, 3.5.) En íbúatalan á þessu svæði stefnir nú í 3000. Ástæðan fyrir þessari aukningu er a) Stjórn Verka- mannabústaða fór fram á blokkir í stað raðhúsanna, sem upphaflega var gert ráð fyrir og b) Byggung fékk að byggja blokkir líka. Á öllu Eiðsgrandasvæðinu er ekkert dagvistunarheimili, enginn skóli, engin verslun, engin þjónusta yfirhöfuð. Þrjú þúsund íbúar verða að sækja allt slíkt í gamla Vesturbæinn, sem fullnægir naumast íbúum sínum eins og er. * * * Víkjum þá aftur að Ártúnsholtinu. Þeir, sem þar koma til með að búa, munu þurfa að sækja alla þjónustu sína í Árbæinn. En hvernig er ástandið þar og er það hverfi reiðubúið tl að taka á móti aukningunni? Þar bjuggu árið 1981, 4.200 íbúar og af þeim voru 1360 innan við 16 ára aldur. í Árbæ er ein félagsmiðstöð, Ársel. Þar eru 570 börn á forskólaaldri og þar er eitt dagheimili fyrir 17 börn og leikskólaaðstaða fyrir 110 börn. í Árbæjarskóla voru á síðasta ári 900 nemendur, 23 að meðaltali í bekk. Og það er í Árbæinn, sem íbúar Ártúnsholts og raunar hins væntanlega Seláshverfis líka, eiga að sækja sína félagslegu þjónustu. (Af Seláshverfinu er annars það að segja að í tíð fyrrverandi borgarstjórnar- meirihluta var gefið loforð um 110 verkamannaíbúðir þar. nú virðist á döfinni að fækka eða jafnvel hverfa frá byggingu þeirra íbúða. Fjölgunin í Ártúnsholtinu er því mögulega einhvers konar uppbót á því.) Að þessu öllu athuguðu virðist það ekki að ósekju að Kvennaframboðið greiði atkvæði gegn tillögum um fjölg- un verkamannaíbúða á umræddu svæði. Að lokum skal þess getið að fulltrúi okkar Kvennaframboðskvenna í stjórn Verkamannabústaða er Guðlaug Magnúsdóttir. Ms.

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.