Vera - 01.07.1984, Side 15
Verður kynlífið
betra með aldrinum?
Ef til vill ekki, en eldri konur í dag njóta góðs af þeirri umræðu sem átt
hefur sér stað um jafnrétti kynjanna, jafnt á vinnumarkaðnum sem í svefn-
herberginu. Sú umræða hefur hjálpað mörgum þeirra til að yfirvinna þá
feimni og fordóma sem umluktu kynlífið þegar þær voru yngri. Þó að alls-
staðar í kringum okkur sé verið að fjalla um kynlíf, þá er það nær aldrei
tengt eldri konum. Verði vart við kynhita hjá þeim veldur það hneykslun, á
meðan litið er á kynhitann sem hreystimerki hjá eldri körlum.
Kynlíf á að vera jafn sjálfsagður hluti af
lífi kvenna eftir tíðahvörf og fyrir þau. Að
okkar mati eru samfarir fólks af gagn-
stæðu eða sama kyni svo og sjálfsfróun
hluti af kynlífi og öll afbrigðin jafnrétthá.
Jafn fráleitt er að halda að við hættum að
geta lifað kynlífi eftir tíðahvörfin og það að
við hættum að geta skokkað eftir
fimmtugt. Að líkja kynlífi við skokk er ekki
út í bláinn, því að sjálfsögðu er skokk eftir
fimmtugt auðveldara fyrir þá sem hafa
stundað það að staðaldri. Líkaminn þarf
að vera í þjálfun, því meiri þjálfun sem
hann er í því betri árangur. Kynlíf er gott
fyrir heilsuna og má í því sambandi benda
á að langlífi í Andes- og Himalayafjöllum er
að hluta til rakið til reglulegs kynlífs. Við
samfarir á sér stað samdráttur og slökun í
öllum vöðvum líkamans, blóðþrýstingur
og púls verður eins og hjá íþróttamanni við
mikla áreynslu, það á sér stað brennsla á
aukafitu í blóðinu og eggjahvítumagn
minnkar. Á 15 mínútum brennum við um
200 kalóríum og enn meiru ef við fáum
fullnægingu oftar en einu sinni.
Þjálfun er nauösynleg
Við getum líkt líkama okkar við vélar
,,þær ryðgaán notkunar”. Við vitum hvern-
ig aörir hlutar líkamans stirðna ef þeim er
ÍVAR - SKIPHOLTI 21 - SÍMI(91) 23188 og (91) 27799
AFAKAFFIÐ & ÖMMUKAFFIÐ
dlia d*íl i mW*""
.-í f«r ve
15