Vera - 01.07.1984, Blaðsíða 28

Vera - 01.07.1984, Blaðsíða 28
þessa flókna máls en skólar hér á landi væru afar mis- vel búnir hvaö þetta varðaði. Hér væri því um mannrétt- indi að ræða. Guðrún sagði ennfremur að það væri óverjandi með öllu, að börn okkar hefðu svo misjafna aðstöðu til náms eftir búsetu eins og raun bæri vitni. Nú- tíminn og framtíðin gerðu æ meiri kröfur til manna, bæði um fjölbreytta og sérhæfða menntun. Það væri því hvorki boðlegt börnum þessa lands að draga þau svo í dilka hvað varðaði undirbúning undir lífið né heldur hefði þjóðin efni á því. Svo sem við var að búast var þáltil. sett í nefnd og hef- ur ekki litið dagsins Ijós síðan. ÖLDUNGADEILDIR MENNTASKÓLA OG FJÖLBRAUTASKÓLA 13. apríl s.l. lagði menntamálaráðherra Ragnhildur Helgadóttir fram stjórnarfrumvörp um breytingar á gild- andi lögum um menntaskóla og fjölbrautaskóla sem snúa að því að lögfesta heildarreglur um starfrækslu öldungadeilda. Sigríður Dúna fagnaði þessum frum- vörpum en gagnrýndi, að nemendum í öldungadeild skyldi gert að greiða Vb launakostnaðar við kennsluna. Engin ástæða væri til, að fullorðnir nemendur byggju við aðrar aðstæður en nemendur hérlendis almennt. Fullorðinsfræðsla væri mikið réttindamál, ekki síst fyrir konur sem almennt hefðu töluvert minni menntun en karlar. Aðgangur að fræðslu og endurmenntun á full- orðinsárum væri því einn mikilvægur þáttur í frelsis- baráttu kvenna og ekki sanngjarnt að þær nytu ekki sömu aðstæðna og börnin sem þær væru eða hefðu lokið við að ala upp. Að auki væru launakjör kvenna miklu lakari en karla og þeim því síður fært að borga þennan kostnað. Beindi Sigríður Dúna því til ráöherra hvort hún væri tilbúin til að beita sér fyrir því, að kostn- aðarhluti nemenda væri minnkaður frá því sem nú væri við gerð nýrrar reglugerðar og einnig hvort hún væri til- búin aö stefna að því í áföngum að afnema þennan kostnaðarhluta nemenda með öllu. í svari ráðherra kom fram, að henni þætti það hvorki gerlegt, raunhæft né skynsamlegt. Unga kynslóðin ætti að ganga fyrir að þessu leyti og meira skipti að hafa námsvistarpláss fleiri á þann veg sem unnt væri þegar nemendur greiddu fræðsluna að hluta. Núverandi fyrir- komulag hefði heldur ekki hamlað að vaxandi fjöldi fólks hefði sótt þessa fræðslu. Sigríður Dúna vildi ekki una svari þessu og flutti því breytingartillögu við frv. sem hljóðaði upp á að nám í öldungadeildum og námskeiðum fullorðinsfræðslu skyldi vera nemendum að kostnaðarlausu. Margir þingmenn tóku til máls um breytingartillöguna þ.á m. Eiður Guðnason sem lýsti furðu sinni yfir að kjarni allra mála hjá þingmönnum Kvennalistans yrði alltaf jafnrétti alveg sama hvað um væri talað. Þetta væri hins vegar ekki hin raunverulega jafnréttisbarátta og oft ynnust málin betur á ýmsum öðrum stöðum en opinberum málþingum og ræðustólum (sic). Sigríður Dúnasagði þá, aðm.t.t. orða háttvirts þingmanns, Eiðs Guðnasonar, gerði hún ráð fyrir að hann færi eftir þeim í sinni eigin félags- og stjórnmálabaráttu. Menntamála- ráðherra tók aftur til máls og sagði þessar tillögur síst tímabærar nú eins og á stæði um fjárhag þjóðarinnar. Breytingartillaga Sigríðar Dúnu var felld að viðhöfðu nafnakalli. Skilningur þingmanna var ekki meiri en svo á þessu mikilvæga máli sem bætt hefði stöðu kvenna þó nokkuð. Þingfréttir veröa ekki lengri að sinni. Kristín Árnadóttir og Margrét Rún. Alyktun vorþings Kvennalistans 1984 Konur hafa á undanförnum misserum unnið ötullega að réttindamálum sínum. Umrœðan um nauðsyn þess að bœta hag og stöðu kvenna hefur margfaldast og konur hafa bundist samtökum um einstök hagsmunamál sín. En betur má ef duga skal. Konur hafa að meðaltali nœr helmingi lœgri laun en karlar og því hefur kjaraskerðingin bitnað harðast á þeim, svo og öðrum sem lœgstu launin hafa. Störf kvenna eru mikilvæg og nœgir að vísa til þess hvað gerast myndi ef allar íslenskar konur legðu niður vinnu. Á stuttum tíma myndi skapast algert öngþveiti. Þrátt fyrir þessa staðreynd þykir sœmandi að vanmeta störf kvenna, hvort sem það er úti á vinnumarkaðnum eða inni á heimilunum. Við svo búið má ekki standa, störf kvenna verður að endurmeta. Réttarstaða heimavinnandi kvenna er óviðunandi t.d. hvað varðar lífeyrisréttindi og tryggingabœtur. Fram- kvœmd þeirra mála sýnir í raun að húsmœður eru lœgra metnar en aðrir þegnar þessa lands og er það I hrópandi ósamrœmi við allan fagurgala um að heimilið sé horn- steinn þjóðfélagsins. Yfir 80% kvenna eru nú starfandi úti á vinnumarkaðnum og því verður að mœta með að tryggja konum lengra fœðingarorlof og börnum nægilegt dagvistarrými og samfelldan skóladag. Samfélagið verður að viðurkenna breytta þjóðfélagshætti og láta af þeirri villu að ekkert hafi breyst I íslensku þjóðfélagi í áratugi. Félagsleg vandamál spretta m.a. af slæmum aðbúnaði fjölskyldna. Fyrir utan mannlegar þjáningar þá kostar það margfalt meira I beinhörðum krónum að leysafélags- leg vandamál en að fyrirbyggja þau. I framhaldi af þessu mótmœlir Kvennalistinn harðlega því verðmœtamati og þeirri skammsýni sem endurspegl- ast íákvörðunum ráðamanna um skiptingu sameiginlegra fjármuna. Máþar t.d. minna á nýlegan niðurskurð áþjón- ustu fyrir aldraða, þátttöku ríkisins í tannlæknakostn- aði, framlagi til skólamála og heilbrigðisþjónustu og ónóg framlög til fyrirbyggjandi aðgerða í fíkniefnamál- um. Þess í stað er fjármunum ausið í óarðbærar fjárfest- ingar, eins og flugstöð og bankahallir og tekjustofnar ríkisins skertir t.d. með því að lækka gjöld á bönkum og öðrum viðskiptastofnunum. Á þetta hefur Kvennalistinn margoft bent. Kvennalistinn leggur hins vegar áherslu á stóraukna uppbyggingu íslensks atvinnulífs og aukna fjölbreytni i Islensku efnahagslífi. Þar bendum við á nýjar búgreinar, fullvinnslu matvœla, líftœkni og rafeindaiðnað. Kvenna- listinn einn íslenskra stjórnmálaafla hafnar aukinni stór- iðjuuppbyggingu sem hingað til hefur verið lögð mest áhersla á. Stóriðja er gamaldags og úreltur atvinnu- og framleiðslukostur og nú eru öll framsæknustu iðnaðar- ríki heims að flytja stóriðju sína úr landi til að rýma til fyrir hagkvœmari iðnaði heimafyrir. Stóriðja erfjárhags- lega óarðbær og kallar á aukin ítök erlendra aðila í ís- lensku efnahagslífi. Stóriðja er mengandi og náttúruspill- andi og hefur hlutfallslega upp á ákaflega fá og dýr störf að bjóða. Á undanförnum árum hefur einnig verið farið of hratt í virkjanaframkvœmdir vegna stóriðju og er þar að finna eina meginorsök erlendrar skuldasöfnunar. I stað stóriðjuframkvæmdanna viljum við að íslensk at- vinnuuppbygging nýti okkar eigi hugvit og þekkingu og helst okkar eigið hráefni líka. Á þennan máta telur Kvennalistinn atvinnulífi landsmanna best borgið. Vorþing Kvennalistans skorar á íslenskar konur að beita sér hver á st'num vettvangi fyrir bættum hag kvenna og óskar að lokum landsmönnum öllum gleðilegs sumars. 28

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.