Vera - 01.12.1989, Qupperneq 3
AÐ „GERA
OKKAR BESTA“
Fyrst er ég kom til New York hélt ég
að sagan um að allir Manhattan búar
væru hjá sálfræðingi, væri sprottin úr
kvikmyndum Woody Allens og ætti við
lítil rök að styðjast. Eftir tveggja ára
veru í borginni hafði ég komist að því
að flest öll skólasystkini mín og vinnu-
félagar heimsóttu sálfræðing a.m.k. vikufega og fannst það alveg sjálf-
sagt. Ég varð mjög hissa þegar ég uppgötvaði að m.a.s. sambýliskona
mfn fór tvisvar í viku, bæði í einstaklings- og hóptíma. Mér fannst hún
bara ósköp venjuleg kona og gat ekki ímyndað mér að hún hefði svona
mörg vandamál. Þegar ég ræddi þetta við hana og þá staðreynd að aldrei
hefði hvarflað að mér að fara til sálfræðings, þó ég hafi eflaust jafnmörg
vandamál og hver annar ef vel er að gáð, sagði hún að skýringin lægi ef-
laust í því hve góðar vinkonur ég ætti. Amerískum félögum mínum
fannst ekki viðeigandi að íþyngja vinum sínum með persónulegum
vandamálum og borguðu því sálfræðingi fyrir að hlusta á sig, á meöan
ég hringdi til skiptis í fjórar (íslenskar) vinkonur og ræddi um allt milli
himins og jarðar og krufði með þeim hvert það vandamál sem upp kom.
Það virðist vera mikið feimnismál fyrir okkur fslendinga ef við ein-
hverra hluta vegna leitum til sálfræðings eða geðlæknis. Farið er með
það eins og hernaðarleyndarmál, enda er hefðin frekar sú að ,,leysa“
vandamálin á samkomustöðum borgarinnar með aðstoð áfengis. Ef fólk
á eitthvað erfitt með að ná áttum í lífi sínu þykir eðlilegra að fara til spá-
konu, láta lesa úr árunni eða útbúa stjörnukortið sitt, heldur en að leita
til sálfræðings eða geðlæknis.
Ein vinkona mín telur mig svo jarðbundna að j?að jaðri við að ég sé
neðanjarðar. Ég hef hvorki látið lesa úr árunni, farið á miðilsfund eða
í andaglas, né látið útbúa stjörnukortið mitt og les aldrei stjörnuspá dag-
blaðanna. Það þótti því saga til næsta bæjar þegar ein virtasta spákona
bæjarins spáði fyrir mér s.l. vor. Mér fannst gaman að tala við spákonuna
og margt sem hún sagði um fortíð mína stóðst, en hún (fortíðin) er nú
líka svo venjuleg að það tekur ekki tali. Framtíðin, að hennar sögn, lofar
góðu og hún spáði m.a. fyrir mér að ég fengi nýja og spennandi vinnu
í september. Á daginn kom að í september voru hvorki meira né minna
en þrjár spennandi stöður, sem ég hefði getað hugsað mér, auglýstar. En
ég fékk engaþeirra, þess ístað var ég ,,neydd“ til að kenna dönsku ílitl-
um heimavistarskóla! Ja, ef þetta var þessi spennandi staða sem mér var
spáð þá efast ég um að framtíð mín sé eins björt og spákonan vildi meina
og þori ekki að treysta á spádóminn. Hins vegar hugsa ég oft um annað
sem hún sagði við mig, t.d. að ég væri of bráðlát, væri að vasast í of
mörgu og gæti ekki ákveðið að hverju ég vildi einbeita mér og að ég
gerði alltof miklar kröfur til sjálfrar mín. Það er ýmislegt til í því, sbr.
þær áhyggjur sem ég hef alltaf af því að gera hlutina ekki nógu vel, hvort
sem það er að þrxfa, elda mat, skrifa grein eða eitthvað annað. Við erum
hvött til að ,,gera okkar besta" rétt eins og handboltamennirnir, eða láta
það ógert annars.
Ég er ekki alkóhólisti, þjáist ekki af ofáti, var ekki misþyrmt í æsku,
né lögð í einelti og er auk þess hamingjusamlega pipruð (svo ekki get
ég kvartað undan eiginmanninum). Þó svo að ég eigi ekki við nein meiri-
háttar vandamál að stríða þá finnst mér stundum mín ,,minniháttar“
alveg nóg. Eins og fyrri daginn reyni ég að leysa þau með aðstoð vin-
kvenna, en nú búa þær allar í öðrum svæðisnúmerum svo að símareikn-
ingurinn getur orðið ansi hár. Síðast þegar ég ræddi hin auðvirðilegu
vandamál mín við aðal sálusorgara minn, spurði ég hana hvort ég ætti
að fara til sálfræðings (eða geðlæknis, jiað er víst ódýrara) og hætta að
rausa um þetta við hana. Hún hafði ekkert á móti „sérfræðingunum" en
fór í bókahilluna og afhenti mér bækurnar „Elskaðu sjálfan þig“ og
„Sjálfstraust og sigurvissa" og sendi mig meö þær heim. Nú er bara að
vita hvort ég finn svör við öllum mínum spurningum í þessum bókum
eöa verði að leita annarra ráða. Og sjá ég opnaði bókina handahófskennt
og las: „Af hverju þarftu endilega að gera alla skapaða hluti vel? Hver
skráir árangurinn fyrir þig?“ „ , , ...........
' 1 h Ragnhildur Vigfusdottir
Ljóð eftir Dísu 4
Heimkoman 6
Myncllistarkonan Guðrún
Tryggvadóttir segir frá lífi
sínu og starfi
Að túlka allt upp á nýtt 9
Trú — Trúarbrögð — Efi 10
Guðrún Ólafsdóttir skrifar
um manneskjuna andspænis
almættinu
Faðirinn, sonurinn og
heilög önd 12
Séra Hanna María Péturs-
dóttir veitir innsýn í
kvennaguðfræðina
Við erum kirkjan 15
Rætt við Lucia Chiavola
Birnbaum um leit kaþólskra
kvenna að eigin trúartúlkun
Ég hef ýmislegt að
segja Guði 18
Gen kvenna þurfa að
jafna sig 20
Rætt við Þórunni Valdi-
marsdóttur, sagnfræðing
um nýstárlegar kenningar
kvenna um forsöguna, nýja
bók hennar og fleira
Hátíðarmatur 22
Viö feröumst öll með
töskur 23
Spjallað við Kristínu
Ómarsdóttur rithöfund
Landsfundur Kvennalist-
ans 24
Um framboðsmál, kvenna-
pólitík, verkalýðsmál,
atvinnumál og fleira
Er óforbetranlega bjart-
sýn 31
Rætt við Önnu Ólafsdóttur
Björnsson, þingkonu
Kvenlýsingar Lorca 34
Friðarbarátta 35
Birna Þórðardóttir og María
Jóhanna Lárusdóttir ræða
málin
3