Vera - 01.12.1989, Síða 20
KVENNA
ÞURFA
AÐ
JAFNA SIO
Sagnfræði í rfkisútvarpinu. Er það
ekki þjóðlegur fróðleikur sem fluttur
er með baðstofublæ á kvöldvökum
gömlu Gufunnar? Sögur af körlum
sem voru raungóðir á þrautastund
(eða þrautgóðir á raunastund ?) og
öttu kappi við ill örlög og vond veð-
ur? Ekki aldeilis — það vita þau sem
hlustað hafa á þáttinn „Úr menning-
arsögunni“ á rás 1 klukkan 10.30 á
miðvikudagsmorgnum. Þar hefur að
undanförnu verið fjallað um nýstár-
legar kenningar kvenna um forsög-
una — þ.á.m. hina firna skemmtilegu
sjóapakenningu — og framúrstefnu-
legar hugmyndir 18. aldar mannsins
Holbergs um hlutverk kvenna. í des-
ember fáum við meira að heyra því þá
verður fjallað um geðveikina og
hjónabandið í ljósi sögunnar.
Sú sem færir okkur þennan fróð-
leik á silfurfati er Þórunn Valdimars-
dóttir sagnfræðingur. Hún lauk
kandídatsprófi í sagnfræði frá Há-
skóla íslands árið 1983, kenndi um
tíma listasögu við M.R. en hefur ann-
ars unnið við skriftir undanfarin ár.
Eftir hana liggja nú þegar þrjár bækur
en sú nýjasta þeirra, bókin um séra
Snorra á Húsafelli, kom einmitt út nú
fyrir skömmu.
Þórunn segir að markmiðið með út-
varpsþáttum sínum sé að kynna fyrir
fólki kenningar og bækur sem það
hafi ekki tíma til að lesa sjálft.
„Vegna þeirrar umræðu og tog-
streitu sem er í kringum hlutverk
kvenna, finnst mér mjög gaman að
lesa kenningar sem taka mið af kon-
um og ætla þeim einhvern hlut í þró-
uninni. Konur hafa t.d. farið að líta á
forsöguna og séð að þó að við höfum
losnað við mýtuna um hina syndugu
Evu, þá fengum við engu betri hug-
myndir á 19- öld um uppruna manns-
ins, þó svo að þær ættu að teljast vís-
indalegar. í þessum hugmyndum er
allt túlkað út frá karlmanninum,
20
hann hafi orðið til alls fyrstur. Konur
bregðast við þessu með því að smíða
sér kenningar sem ganga m.a. út frá
því að konur hafi farið að nota verk-
færi ekki síður en karlar. Dæmi um
andsvar kvenna við kenningum karla
er bókin um uppruna konunnar eftir
Eileen Morgan. Þar gerir hún óspart
grín að hinum s.k. , ,Tarzanistum“
eins og Desmond Morris sem skrifaði
bókina um Nakta apann. Hún beinir
sjónum sínum að þróun mannkyns á
tímabilinu fyrir ísöld og talar ætíð um
það í kvenkyni til að hnekkja þeirri
ofuráherslu sem hefur verið á karla.
Með vel útfærðri og hressilegri rök-
semdafærslu heldur hún því svo
fram, að á ákveðnu tímabili hafi
mannapinn lifað í og við sjó. Þannig
tekst henni m.a. að útskýra ýmis lík-
amseinkenni kvenna og karla.“
Kenningar Morgan fjalla um mann-
kynið fyrir milljónum ára og, eins og
Þórunn orðar það, „standast líkt og
sköpunarsaga Biblíunnar varla grand-
skoðun vísindanna".
En ef við færum okkur aðeins nær
samtímanum í hinni sögulegu þróun
og lítum á karla og konur á þeim tíma
þegar sögur hófust. Hvernig lítur
heimur þeirra þá út?
„Sögulegur tími hefst um 3000 fyr-
ir Krists burð og það er ljóst að þá er
forræði karla yfir konum orðið al-
gjört. Lítið er vitað um líf mannsins
fyrir þann tfma en margt bendir þó til
þess að konur hafi haft heilmikil völd
allt fram að landbúnaðarbyltingunni
sem varðfyriru.þ.b. lOþúsundárum.
í bókinni „Sex in history" eftir Reay
Tannahill, sem ég fjalla um í þremur
útvarpsþáttum í desember, heldur
hún því fram að fyrir landbúnaðar-
byltingu hafi karlar ekki gert sér grein
fyrir hlutdeild sinni í tilkomu barna.
Með kvikfjárrækt átta þeir sig á sam-
hengi hlutanna og gera sér loks ljóst
að þeir kveikja lífið í kviði kvenna.
Þeir sjá að einn hrútur getur gert 30
„Með kvikfjárrœkt
átta karlar sig á
samhengi hlutanna
og gera sér loks Ijóst
að þeir kveikja lífið í
kviði kvenna. Þeir
sjá að einn hrútur
getur gert 30 œr
lambfullar og sjálfs-
öryggi þeirra marg-
faldast."
ær lambfullar og sjálfstraust þeirra
margfaldast. Þeir fara að gæta kvenna
sinna til að tryggja sér eignarréttinn á
afkvæminu og grundvöllurinn er
lagður að kúgun kvenna. Grikkir
héldu t.d. að í sæðinu byggju pínulitl-
ir karlar og konur og það eina sem
konur legðu til málanna væri hulstrið
sem þau stækkuðu í. Þetta endur-
speglar mjög vel oftrú karla á eigin
sköpunarmátt. Það verða hins vegar
alger tímamót þegar menn uppgötva
eggið með tilkomu smásjárinnar um
miðja 19. öld. Gamla sköpunarsagan
um konuna sem rif úr síðu Adams
hrynur þegar ljóst verður að konan á
helming í hverjum einstaklingi.
Fyrstu hugmyndir manna eru sem
sagt á þann veg að konan ein kveiki
lífið og hún fær allan bónusinn í ár-
þúsundir, svo kemur 9000 ára tímabil
þar sem karlar eru skapararnir og svo
er það ekki fyrr en á 19- öld sem jafn-
vægi byrjar að komast á þetta/ ‘
Af þessu má ljóst vera að tímabil rétt-
indabaráttu kvenna er eins og eitt
andartak í samskiptum kynjanna ef
þau eru skoðuð í ljósi sögu mann-
kynsins. Árþúsunda kvennakúgun
hefur væntanlega sett sín spor á kon-
ur?
„Já, þróunarfræðingar leika sér
gjarnan að því að tala um að gengin
stjórni okkur. Og gen kvenna þurfa
að jafna sig eftir 9000 ára tímabil þar
sem þær nutu engrar virðingar né
valda. Mér finnst mjög gaman að leita
skýringa á því af hverju konur eru
frjálsari í N-Evrópu en annars staðar.
Ef litið er á aðra menningarheima þá
kemur í ljós að fjölkvæni er algeng-
asta formið og það er mjög einstakt
að hjónabandið skuli gert að sakra-
menti í Evrópu. Þetta kristna munst-
ur í Evrópu verndaði bæði konur og
börn því karlar gátu ekki hent konum
frá sér ef þeim sýndist svo, ekki einu
sinni þó þær væru óbyrjur sem var