Vera - 01.12.1989, Side 39
NATÓ. Að halda þessari andstöðu vakandi er
mjög jákvætt, á öllum sviðum og út frá mis-
munandi forsendum, auðvitað. Þó svo að mér
finnist mín afstaða réttust þá er ekki þar með
sagt að ég geti ekki viðurkennt afstöðu annarra,
en þá vil ég líka að aðrir viðurkenni minn rétt
til afstöðu.
Hanna Maja: Það sem mér finnst brýnast að
gera er að lýsa ísland og landhelgina kjarnorku-
laust svæði, það er geysilega stórt skref. í öðru
lagi vil ég að allar hernaðarframkvæmdir á ís-
landi verði frystar, og ég vil einnig að við fáum
miklu fleiri upplýsingar um tengsl hersins við
atvinnu- og fjármálalíf hér á Iandi. Ef friðar-
hreyfingar gætu beitt sér saman að einhverjum
slíkum verkefnum, fyndist mér vel að verki
staðið. En við megum ekki gleyma hernaðar-
hyggjunni. Það er ekki flóttastefna að minna á
hana annað slagið, og helst bara alltaf. Hún er
alls staðar fyrir hendi og svo rík í samfélaginu
að við tökum ekki eftir henni, ekki fyrr en við
stöndum allt í einu í glamrandi járnum, eins og
t.d. í verkfallsbaráttunni í vor. Það er alltaf ver-
ið að búa til óvini og samfélagið er orðið svo
gegnsýrt af þessum óvinaímyndum að herinn
er næstum því bara eðlilegur rniðað við þetta
ástand, því hann er í augum hernaðarsinna ekk-
ert annað en eðlilegt andsvar við annarra
manna herjum. Á meðan við lítum á her, vald
og ofbeldi á þennan hátt þá verðum við alltaf í
þessu vígbúnaðarneti. En um leið og það verð-
ur óeðlilegt að fólk sé beitt ofbeldi, hvort sem
það er í samskiptum við aðra eða líkamlega, þá
verður hernaður óeðlilegur. Þegar við erum bú-
in að gera hernað hlægilegan, hermennina
asnalega og allt þetta brölt bara hjáróma, erum
við búin að ná býsna langt. En það þarf að
vinna að þessu á svo mörgum sviðum.
Bii-na: Ég er ekki sammála þessari tengingu á
hernaðarhyggju og verkfallsbaráttu og að við
verðum stöðugt að byrja innan frá, en ég er hins
vegar sammála því að þaö skiptir öllu máli að
skapa aukna vitund um möguleika okkar sjálfra
til að koma breytingum til leiðar.
KB.: Finnst ykkur þá konur gegna sér-
stöku hlutverki í þessu samhengi?
Hanna Maja: Við höfum það hlutverk sem
slíkar að ala af okkur líf og konur finna þessa vá
sem bíður barnanna þeirra og framtíð þeirra
barna sem þær bera undir belti. Þær eru ef til
vill í meiri tengslum við lífríkið en karlar, því
lífliringurinn er inni í okkur. Við megum samt
ekki eigna okkur baráttuna. Þetta verður að
vera barátta allra, feðra ekki síður en mæðra.
Hins vegar hafa konur ekki haft frumkvæði að
hernaðarbrölti, við höfum verið þolendur í því
máli og getum kannski þess vegna frekar reist
okkur, rétt úr kútnum og látið sköpunarmátt
okkar koma fram og gerst virkar í baráttunni
fyrir lífinu. Það finnst mér vera málið.
Birna: Ég bind meiri vonir við konur varðandi
friðarbaráttu og í baráttu gegn hernum og
NATÓ eins og í ýmsu öðru vegna þess að konur
eru ekki jafn hlekkjaðar í valdanetinu sem er
fyrir hendi. Þær hafa ekki jafn mikilla hags-
muna að gæta, hvorki varðandi framleiðslu á
hernaðargögnum né stríðsrekstri almennt. Þær
hafa þess vegna möguleika til þess að gera sér
betur grein fyrir ógnunum sem við stöndum
frammi fyrir. Það er fyrst og fremst út frá því
sem ég bind meiri vonir við þær.
Sporiö
þúsundir!
Kaupum — leigjum — seljum
Barnavagnar, kerrur, vöggur, rimlarúm,
vagn- og kerrupokar, buröarrúm, rólur,
skiptipokar, bakgrindur.
Ódýrar notaöar og nýjar
barnavörur
VERSLUNIN
BARNALAND 91-21180
NJALSGÖTU 65
JVú eru aðrir tímar
Ljóð Ingibjargar eru einföld og
knöpp, þar má sjá söknuð og
trega og jafnframt margræðari
tilfinningar. Samkennd tekst á
við einsemd, sátt við þrár, frið-
sæld við gný borgarinnar, fortíð
við nútíma. Yrkisefni sækir hún
bæði í reykvískan veruleika og
þau lönd þar sem hún hefur verið
langdvölum, Sovétríkin og Kúbu.
INGIBJÖRG HARALDSDÓTTIR
Nú eru aðrir tímar er þriðja
Ijóðabók Ingibjargar Haralds-
dóttur og kostar 1.980 kr. inn-
bundin en 1.580 kr. í kilju.
Mál og menning