Vera - 01.08.1993, Page 27
SYSTRAÞEL
FÖTLUNARINNAR
Rœtt við
Ólöfu Ríkarðsdóttur,
einn frumkvöðlanna
í réttindabaráttu
fatlaðra á íslandi
”löf Rikarðsdóttir er einn stofn-
félaga Sjálfsbjargar, félags fatl-
aðra og hefur um áratuga skeið
setið í ótal nefndum og ráðum um
málefni fatlaðra. Auk þess hefur
hún lengi verið í stjórn Öiyrkja-
bandalagsins og Bandalags fatl-
aðra á Norðurlöndum.
Ólöf er hreyíihömluð og notar
stundum hjólastól núorðið. Eitt
sinn er hún sat í hjólastólnum
ávarpaði hana ókunnug kona og
spurði hvort hún byggi í Sjálfs-
bjargarhúsinu. Ólöf neitaði því.
•'Þú hlýtur þá að búa í Öryrkja-
bandalagshúsinu.” Ólöf varð hálf
hvumsa og sagðist búa úti í bæ.
»Ja, sko þig,” varð konunni að
orði.
-Þannig heíði ég aldrei verið
ávörpuð gangandi við stafi”, segir
Olöf. .Annars er yfirgengilegt
hvað ég er oft spurð að þvi hvort
ég búi í Sjálfsbjargarhúsinu. Ekki
geta allir hreyfihamlaðir búið þar,
er ég vön að svara,” segir Ólöf.
Hún sat í byggingarnefnd húss-
ins og vann að byggingu þess á 7.
°g 8. áratugnum. í Sjálfsbjargar-
húsinu fer fram fjölbreytt starf-
semi. Þar eru meðal annars
^innu- og dvalarheimili fyrir al-
varlega hreyfihamlað fólk, þar
sem 45 manns geta búið og starf-
oö. Þar er veitt fullkomin að-
hlynning, hjúkrun og læknis-
Þjónusta, en reynt að hafa allt
sem heimilislegast. Það má segja
staðurinn sé einskonar sam-
27
Ljósmynd: Kristín Bogadóttir