Vera - 01.03.1995, Blaðsíða 33
Kjósendur Kvennalistans ganga án efa út frá
því sem vísu aö þingkonur Kvennalistans
gæti hagsmuna kvenna á Alþingi og listinn
yfir frumvörp og þingsályktunartillögur sem
þær hafa boriö fram á yfirstandandi kjörtíma-
bili sannar aö svo er.
fram af hálfu Kvenna-
lista og síðast en
ekki síst lögðu þær
til aö framlag til at-
vinnumála kvenna
(liður undir Vinnumál
í Félagsmálaráðu-
neytinu) yrði 75 milljónir króna í stað 15 milljóna. Tvær af þessum til-
lögum voru dregnar til baka en hinar allar felldar sem segir kannski
meira en mörg orð um áhuga þingheims á málefnum sem sérstak-
lega snerta konur. En sem betur fer er Ijós í myrkrinu því síðast liöiö
haust var ein breytingati11aga Kvennalistans samþykkt en hún gekk
út á hækkun framlags vegna kvennaráðstefnunnar í Kína nú í sept-
emher.
Á ég aö gæta systur minnar?
Kjósendur Kvennalistans ganga án efa út frá því sem vísu að þing-
konur Kvennalistans gæti hagsmuna kvenna á Alþingi og listinn yfir
frumvörp og þingsályktunartillögur sem þær hafa borið fram á yfir-
standandi kjörtímabili sannar að svo er. Meðal frumvarpa sem
Kvennalistakonur lögðu fram veturinn 1992-93 má nefna frumvarp til
laga um breytingu á lögum um almannatryggingar sem miðaði að því
aö auðvelda innheimtu meðlagsgreiðslna, auk frumvarps um barna-
lífeyri, en í því frumvarpi var lögð áhersla á að árlegur barnalífeyrir
sem væri ákvarðaður af félagsmálaráðherra eftir tillögum trygginga-
ráðs miðaðist viö raunverulegan kostnað við framfærslu barns. Hvor-
ugt frumvarpið náði fram að ganga. Af þingsályktunartillögum má
nefna þær sem tóku til styttingar vinnutíma, sveigjanlegs vinnutíma
og foreldrafræðslu. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var fyrsti flutningsmað-
ur þingsályktunartillögu um að styrkja stöðu þrotaþola við meðferð
kynferöisbrotamála, en þá tillögu studdu þingkonur allra flokka nema
Sjálfstæöisflokks. Mál þetta átti sér nokkra forsögu þvl að frumkvæöi
Kvennalistans var árið 1984 sett á laggirnar nefnd sem var falið að
kanna meöferö nauðgunarmála og koma með tillögur um úrbætur.
Þingsályktunartillögunni var ætlað að ýta á eftir framkvæmd tillagna
nefndarinnar og að loknum umræðum og umfjöllun um málið í þing-
nefnd var tillögunni vísað til ríkisstjórnarinnar.
Á117. löggjafarþingi, veturinn 1993-94, lögöu þingkonur Kvenna-
listans fram 13 frumvörp til laga. Áður hefur frumvarps um „Jafna
stöðu ogjafnan rétt kvenna og karla" verið getið en að auki má nefna
frumvarp um lengingu fæðingarorlofs, frumvarp til breytinga á lögum
um almannatryggingar sem tók til fæðingarstyrks jafnframt því sem
frumvarp um þingfarakaup alþingismanna varöaði sérstaklega fæð-
ingarorlof þingmanna. Þingsályktunartillögurnar sem Kvennalista-
konur lögðu fram þennan vetur urðu alls 19, en þar á meðal var til-
laga um „Aðgerðir til að draga úr kynjamisrétti" og tillagan um
„Styttingu vinnutíma" var þorin upp að nýju þar sem nefndarálit fé-
lagsmálanefndar hafði ekki skilað sér árinu á undan.
Þegar þing kom saman aö nýju nú eftir áramótin biöu fjölmörg
frumvörp og þingsályktunartillögur umræðu. Sex af átta frumvörpum
Kvennalistaþingkvenna voru komin til nefndar, m.a. frumvörp um
„Fæðingarorlof" og „Leikskóla". Þingsályktunartillögur Kvennalista
voru þá orðnar 13 og aðeins ein sem beið umræöu en þaö var tillaga
um „Réttarstöðu fólks í vígðri og óvígðri sarnbúð". í nefnd var með-
al annars tillaga um „Úttekt á námskrám og kennslubókum með hlið-
sjón af jafnréttislögum" auk tillagna sem ástæða þótti til að bera
fram að nýju þar sem þær höfðu „týnst" í málasúpu ársins á undan,
£■
:g
E
S
t
ra
c
3
i
><
Wl
c
o.
</>
tUD
•O
£
im
ta
116. löggjafarþing 1992-93 Anna Ólafsdóttir Björnsson 1 2 9 1
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 2 2 8
Ingibjörg Pálmadóttir 6 6 1
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir 1 1 8
Kristín Ástgeirsdóttir 2 20 3
Kristín Einarsdóttir 2 5 1
Margrét Frímannsdóttir 3 3 12
Rannveig Guömundsdóttir 1 3
Sigríður A. Þórðardóttir 1 2
Valgerður Sverrisdóttir 3 1
(Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, var flutningsmaður
11 stjórnarfrumvarpa, 2 stjórnartillagna og 1 skýrslu.)
117. löggjafarþíng 1993-94
Anna Ólafsdóttir Björnsson 3 2 17
Guðrún Helgadóttir 1 7
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir 7 6 1
Ingibjörg Pálmadóttir 1 3 11 2
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir 1 4 12 1
Kristín Ástgeirsdóttir 8 14 1
Kristín Einarsdóttir 2 3 2 2
Lára Margrét Ragnarsdóttir 2
Margrét Frímannsdóttir 4 1 13
Rannveig Guðmundsdóttir Sigríður A. Þórðardóttir 1 3 1
Sólveig Pétursdóttir Valgerður Sverrisdóttir 1 11 1
(Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, var flutningsmaður 13
stjórnarfrumvarpa og 4 skýrslna. Einnig má taka fram að Guðrún J.
Halldórsdóttir, varaþingkona Kvennalistans, var flutningsmaður 2
þingsályktunartillagna, 1 þreytingartillögu og 10 fyrirsþurna og Anna
Kr. Siguröardóttir, varaþingmaður Alþýðubandalags, barfram 6 fyrir-
spurnir.)
118. löggjafarþing 1994-95
(staða þingmála 30. desember 1994)
Anna Ólafsdóttir Björnsson 3 2
Guðný Guðbjörnsdóttir 1 1 2
Guðrún Helgadóttir 1
Ingibjörg Pálmadóttir 1
Jóhanna Sigurðardóttir 8 4
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir 1 4 1
Kristín Ástgeirsdóttir 1 5 2
Kristín Einarsdóttir 2 1
Margrét Frímannsdóttir 3
Rannveig Guðmundsdóttir 1 1