Vera - 01.06.1995, Page 3
Verðsk
Ég var að lesa viðtal við skemmtilega konu. Hún er rithöfundur, mikil málamann-
eskja, sérfróð um heimskautasvæði og er, á níræðisaldri, nýbúin að loka sál-
fræðistofu sinni í New York og gefa út ævisögu sína. Hún geislar af lífsgleði og
áhuga. Það vakti athygli mína, hvað hún þakkaði sjálfstraust sitt, og þar með
frama, því hvað maðurinn hennar hafði byggt hana upp. Það var meira en þrjá-
tfu ára aldursmunur á þeim, hún var ung brúðugerðarkona og hann var heims-
þekktur landkönnuður og fræðimaður. Þetta hefði getað farið illa. En hann trúði
á hana, kenndi henni, vann með henni, treysti henni. Naut þess að sjá hana
vaxa og eflast, - sendi hana í sinn stað, lagði nafn sitt við hennar. Vertu ekki
hrædd, stígðu feti framar, - þú getur það. Nú grunar mig að einhverjum lesenda
Veru muni finnast fátt um. Konur eigi að vaxa af sjálfum sér, en ekki þiggja lof
eins og ölmusu af allsnægtaborði eiginmanna sinna. Þeim vil ég segja, að mér
er sama hvaðan gott kemur, - jafnvel frá eiginmanninum. Það sem er aðalatrið-
ið í mínum huga, og ég vil gera að umræðuefni, er mikilvægi þess að trúa á og
treysta þeim sem maður vill vel. Hvort sem það er maki manns, börn, nemend-
ur, foreldrar eða aðrir sem maður kann að hafa áhrif á. Ég þekki mörg dæmi
þess, að menn hafi átt bágt með að þola frama konu sinnar. Og fjölmarga for-
eldra sem halda að börn hafi ekki gott af hrósi: Jú, jú, það getur vel verið að
hann sé duglegur greyið, - en vertu ekki að láta hann finna það, hann tútnar
bara út á því. Eina vinkonu á ég sem sigraði hverja hindrunina á fætur annarri t
samkeppnisprófum um inngöngu I erlendan skóla, - og var spurð að því heima
hjá sérí sigurlaun hjá hverjum hún hefði sofið til aö komast inn. Svo leit hún inn
hjá nágrannakonunni, sagði henni að hún væri komin inn ogtaldi upp ótal skýr-
ingar: Hún hefði nú verið mjög heppin með spurningar, nýbúin að lesa réttu hlut-
ina, það væri eflaust kvóti fyrir útlendinga og gott ef ekki langt síðan norður-
landabúi hefði komist að... svona lét hún dæluna ganga og svipuhöggin dynja á
sjálfstrausti sínu, þar til nágrannakonan góða leit á hana þolinmóð og spurði:
dettur þér ekki T hug að þú kunnir að hafa verið best?
Það er mikið talað um lélega sjálfsmynd kvenna. Ég mæli með forvarnar-
starfi: hrósum.
Guörún Pétursdóttir
þema Ástin í sjálfri mér 20-25
fastir liðir Leiðari 2
Pistill 3 ^ ' /
Athafnakonur 4
Frumkvöðullinn 16
Amnesty international 33
Plús og mínus 43
Úr síðu Adams 46
viðtöl
Fay Weldon Páll Pétursson 11 22
greinar
Hvers vegna tapaði Kvennalistinn 6
Sifjaspell 13
Unglingar t vímu 18
Feminisminn 26
Coco Chanel 28
- Pekingráðstefnan 30
Konurnar í París 34
Karlaráðstefnan 37
Stjórnarskráin 38
Útivist 40
menning o
Kvikmynd um heimilisofbeldi 42
Vorsveifla Kvennakórs Reykjavtkur 44
bækur
að eignast barn 41
annað
Orlofsáhyggjur teygjufjölskyldunnar 15
Látum okkur ganga fyrir 32
Húsverkur 45
6
fnisyfirlit