Vera - 01.06.1995, Page 18
ungling r i vímu
Hassneysla hefur aukist mikiö meöal unglinga og er greinilegt aö nú eru unglingar yngri
en áöur þegar þeir kynnast hassinu. Viöhorfiö til hassins hefur breyst og viröist nú vera
svipaö því sem þaö var á hippatímanum, þegar þaö var taliö allt aö því hollt. Nútimaung-
lingarnir segja aö þaö sé „ekkert svo hættulegten vímuefnaneysla þeirra hefst sem
fyrr á áfengisdrykkju.
Þaö vakti mikla athygli þegar greint var frá því ný-
lega aö stúlkurværu! meirihluta þeirra sem koma
í meöferö á Tindum, meðferðarstöö rikisins fyrir
unglinga. Stúlkunum hefur farið fjölgandi þar ár
frá ári, voru um þriðjungur áriö 1993, 55% í fyrra
og frá áramótum hafa stúlkur veriö 70% þeirra
sem dvelja á Tindum. VERA ræddi viö nokkra aö-
ila sem starfa viö vímuefnameöferö fyrir unglinga
og þeir voru sammála um þaö aö stelpurnar byrj-
uöu fyrr á vímuefnaneyslunni en strákarnir vegna
þess hve bráöþroska þær væru. Fólk fer yfirleitt
aö neyta vímuefna í kringum kynþroskaaldurinn
og hann erfyrr á ferðinní hjá stelpum en strákum.
Sigrún Magnúsdóttir forstööumaöur Tinda tel-
ur að auk þess sé skýringin á því aö stelpur séu í
meirihluta á Tindum sú aö foreldrar taki fyrr í
taumana þegar um stelpur er aö ræöa því enn sé
þaö svo að þeir þoli strákunum meiri fjarvistir frá
heimilinu. Þaö sé einniggreinilegt aö foreldrar viö-
urkenni miklu fyrr en áöur aö barniö sé fariö aö
neyta vímuefna. Foreldrar fái nú meiri fræöslu um
vímuefni og vímuefnaneyslu en áöur var og séu
því fljótari að átta sig á því aö barnið sé komið í
neyslu, auk þess sem foreldrar séu nú hvattir til
aö setja börnum sínum ákveönar reglur um úti-
vist. Hún nefnir hortugheit viö foreldra og skróp úr
skóla sem vísbendingar um þaö aö unglingurinn
sé farinn aö neyta vímuefna en segir aö strákarn-
ir virðist eiga auðveldara með aö halda sig viö
skólann en stelpurnar eftir að neyslan er hafin.
Hún segir ennfremur aö stelpur sem séu farnar
að neyta vímuefna eigi á hættu kynferöislega mis-
notkun, bæöi af hálfujafnaldra sinna ogeldri karl-
manna.
Einelti algeng orsök
Sigrún segir aö ekki sé hægt að kenna heimilis-
aöstæöum sinna skjólstæðinga um vanda þeirra.
Um helmingur þeirra býr með báðum kynforeldr-
um sínum, þriöjungur býr meö móöur sinni og
stjúpfööur en einungis 20% með einstæðri móð-
ur sinni. Hún segir aö foreldrarnir eigi þaö sam-
merkt aö vera hörkuduglegt fólk sem taki á mál-
„Ég hef verið viðvarandi neð-
anjarðarkúltúr í Reykjavík og
verð var við það að fíkniefna-
heimurinn er orðinn grimmarí
og götubörnum hefur fjölgað
gífurlega."
(Bubbi Morthens í Morgun-
póstinum 18. maí sl.)
inu og þori að sækja hjálp. Hún segir hins vegar
áberandí aö þeir unglingar sem koma í meöferö
hafi veriö lagöir í einelti einhvern tíma á sinni
skólagöngu og einnig aö búferlaflutningar viröist
vera 12-13 ára krökkum mjög erfiðir. Sigrún segir
þaö mikinn misskilning að ekki þýöi aö senda
unglinga I meöferð, það hafi oft sýnt sig aö meö-
ferö geti breytt heilmiklu fyrir 13-14 ára ungling.
I bæklingi sem SÁÁ sendi nýlega frá sér, og
ætlaöur er foreldrum, kemur fram að vímuefna-
neysla íslenskra unglinga sé aö aukast, enda hafi
framboö vímuefna Itklega sjaldan veriö meira. Þar
segir að neysla pilta á aldrinum 16-19 ára hafi
aukist mest, eöa um 80% frá fyrri rannsóknum,
en SÁÁ vitnar í rannsóknir Rannsóknastofnunar
uppeldismála meöal grunn- og framhaldsskóla-
nema.
Flestir krakkar komast nokkurn veginn
óskaddaöir út úrvímuefnaneyslu unglingsáranna,
en sumir bera vímuefnavandann meö sér langt
fram eftir ævinni og stundum bindur hann endi á
líf þeirra. Þeir sem eru í sérstakri hættu þegar
kemur aö áfengissýki eru, samkvæmt upplýsing-
um SÁÁ, í fyrsta lagi afkvæmi áfengissjúklinga, þá
unglingar sem eiga félaga sem drekka mikiö og
loks unglingar sem byrja snemma aö nota áfengi.
Brotin sjálfsmynd
1 könnun sem Ingibjörg Kaldalóns geröi nú í vet-
ur, kemur fram aö þeir unglingar sem lenda í
vímuefnavanda hafa lélega sjálfsmynd ogfinna
sér ekki tilgang meö lífinu. Þar kemur einnig
fram að skólakerfiö bregst þessum unglingum,
því í staö þess aö bregðast viö vanda þeirra á
jákvæöan og uppbyggilegan hátt þá eru þeir
reknir úr skólanum.
Skólinn gegnir mikilvægu hlutverki f lífi ung-
linga og því kemur stór brestur í sjálfsmynd
þeirra þegar þeir eru reknir úr skóla. Þaö er því
spurning hvort ekki sé kominn tími til að skóla-
menn veröi sér úti um fræöslu til þess aö þeir
verði færir um að taka á vímuefnavanda ung-
linga þegar hann kemur upp. Einnig mætti
hugsa sér aö nú, þegar íslendingar „neyðast"
til aö hlýta evrópskum lögum sem banna
barnaþrælkun, veröi kennslustundunum fjölg-
aö aöeins og einhverjum þeirra variö til aö
fræöa börn og unglinga um vímuefni og afleiö-
ingarnar af neyslu þeirra. Hér á landi er nú til
heilmikil þekking á þessum málum, m.a. hjá
SÁÁ og Meðferöarstöð ríkisins fyrir unglinga.
Reynum nú aö byrgja brunninn áöur en fleiri
börn detta ofan í hann.
Sonja B. Jónsdóttir