Vera - 01.06.1995, Page 26

Vera - 01.06.1995, Page 26
fminisminn i - Drífa Hrönn Kristjánsdóttir, starfsmaöur á Skrifstofu jafnréttismáia, skrifar um feminisma á krossgötum Þótt finna megi þess merki víða I sögunni aö konur hafi verið með uppsteyt gegn þeim að- stæðum sem þær búa við veröur skipulögö kvennabarátta ekki til fyrr en með vaxandi borgarsamfélagi. Allar götur síðan hafa fem- inistar á Vesturlöndum veriö helstu gagn- rýnendur ríkjandi heimsmyndar og stjórn- skiþulags. í grófum dráttum er hægt að segja aö þessi gagnrýni beinist annars veg- ar að því hvernig konum er kerfisbundið gert erfitt fyrir að nýta sér full borgaraleg réttindi til jafns við karla. Hins vegar hafa konur löngum verið skeptískar á hina hlutlægu vís- indalegu hugsun sem hefur ráöið ríkjum á Vesturlöndum undanfarin árhundruð og hefur meira en nokkuð annaö mótað þann veruleika sem við búum við. Konur hafa bent á að þær séu viðföng vísindalegra rannsókna en hafi ekki að sama skapi tekið þátt I að móta þær, og því hafi vísindamenn, sem flestir eru karlmenn, tilhneigingu til þess að líta á sálarlíf og líkamsstarfssemi kvenna sem frávik frá hinu eölilega. Feminisminn og stjórnmálin í grófum dráttum er hægt aö segja að gagn- rýni feminista á ríkjandi hugmyndafræði hafi fram eftir öldinni rúmast á vettvangi hefö- bundinnar stjórnmálabaráttu. Feministar sem aðhylltust marxisma litu svo á aö und- irrót kúgunar kvenna mætti rekja til samfé- lagsgerðarinnar og einungis með öreigabylt- ingunni yrðu konur jafningjar karla. „Líberal feministar" líta hins vegar svo á aö ójafn staða kynjanna sé til komin vegna misskiln- ings eða mistaka, þaö sé einungis tíma- sþursmál hvenær uppgötvað veröi að hæfi- leikar og dugur kvenna sé ómissandi við uppbyggingu samfélagsins. Konur þurfi bara að koma sér á framfæri og fá tækifæri til þess að sanna sig. Öflug kvennabarátta sjöunda áratugarins skilaöi konum sífellt fágaðri kenningum um undirrót kvennakúgunar og hvað þyrfti að gera til þess að brjóta hana á bak aftur. Á þessu tímabili voru kenningar „sósíal fem- inista" og „róttækra feminista" að mótast en þessir tveir meginstraumar hafa síðan verið mjög áberandi bæði I kvennafræðum og í pólitískri baráttu kvenna á Vesturlönd- um. „Sósíal feministar" leggja út frá skipt- ingu samfélagsins upp t einka og opinbert svið og störf og stöðu kynjanna inni á heim- ilinu annars vegar og á vinnumarkaðnum hins vegar, meðan „róttækir feministar" leggja megináherslu á konuna sem kynveru. Á þessum tíma voru konur á Vesturlöndum eölilega mjög uppteknar af frelsi kvenna til þess að ráða yfir eigin líkama, frjálsum fóst- ureyðingum og aögengi að getnaðarvörnum. „Róttækir feministar" beina spjótum sínum m.a. að klámiðnaðinum og segja að orsakir kynferðislegs ofbeldis gegn konum og börn- um megi rekja til þess hversu brenglaða mynd klámiönaðurinn dragi uþp af því hvern- ig ástarlífi konur vilja lifa. Of þröngur kenníngarrammi Inntakiö í gagnrýni vestrænna feminista hef-

x

Vera

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.