Vera - 01.06.1995, Síða 28

Vera - 01.06.1995, Síða 28
Fatahönnun, sem gerbreytti ímynd kvenna, hefur haldiö nafni Coco Chanel á lofti í rúm sjötíu ár. Þó tengja margir nafniö núorðiö fyrst og fremst við ilmvatnið hennar, Chan- el no 5. Chanel átti litríkan æviferil og hafði sterkan persónuleika og með þrautseigju tókst henni að hasla sér völl sem einn helsti fatahönnuöur heims. Hún klæddi konur í einfaldan og þægilegan fatnað, f takt við breyttan tíöaranda. Gabrielle Bonheur, en það var hið rétta nafn Chanel, fæddist þann 19. ágúst ■ 1883, en sagan segir að hún hafi komið í heiminn í járnörautarlest í suður Frakklandi. Hún var fátæk, missti ung móður sína og fór þá á munaðarleys- ingjahæli, en faðir hennar hélt sína leið. Snemma fór hún að vinna fyrir sér f hattabúö og síðar með dansi f kabarett. Þar tók hún upp nafnið sem við þekkjum. Hún varö hjá- kona nokkurra efna- manna, en það var ekki óalgengt meðal kabarett- kvenna. Það var enskur milljónamæringur Arthur „Boy“ Capel sem kom Chanel á sporið f tísku- heiminum, með fjárstuðn- ingi, en hann var einnig ástmaður hennar. Árið 1914 tókst henni því aö koma á fót verslun í Parfs sem enn stendur f blóma og ber nafn hennar. IMokkrum árum síðar, þegar Coco var orðin auö- ug og vel þekkt í tísku- heiminum kynntist hún auðugasta manni Eng- lands, sir Hugh Grosven- or, hertoga af Westminst- er. Hann hreifst af henni og vildi ganga að eiga Þessi dragt er í stíl Coco Chanel. Gabrielle „Coco“ Chanel - frægasta konan I sögu tískunnar - klædd svörtum kjó11 þeim einfalda stíl sem hún var þekkt fyrir. hana en hún kvað hafa afþakkað pent: „Nei takk, þaö eru til margar hertogaynjur af Westminster en það er aðeins til ein Coco Chanel." Þær sögur fara af Coco að hún hafi verið hörkutól hið mesta, stolt, Það hefur veríð sagt um Coco Chanel að hún hafi sjálf viljað ganga í þægilegum fatn- aði sem líktist fatnaði sterku, sjálfstæðu karlmannanna sem hún þekkti, því þeir höfðu þá stöðu og völd sem hana dreymdi um. Sjálf hafði hún verið of lengi háð fjárstuðn- ingi þeirra og þeirri niðurlægingu sem því fylgdi. sérvitur og metnaöargjörn, en líka fjörmikil og uppfinningasöm. Hún studdi við bakið á ýmsum listamönnum í vinahópi sínum (t.d. Stravinsky og Ijölskyldu hans) með rausnarleg- um fjárframlögum. Á millistríðsárunum áttu sér stað félags- legar og tæknilegar breytingar sem leiddu til umskipta f tískuheiminum. Eftir fyrri heimsstyrjöldina varð róttæk breyting á út- liti kvenna. Þungur, skreyttur og óþjáll fatn- aður fór úr tísku en léttari og þægilegri föt

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.