Vera - 01.06.1995, Blaðsíða 28
Fatahönnun, sem gerbreytti ímynd kvenna,
hefur haldiö nafni Coco Chanel á lofti í rúm
sjötíu ár. Þó tengja margir nafniö núorðiö
fyrst og fremst við ilmvatnið hennar, Chan-
el no 5. Chanel átti litríkan æviferil og hafði
sterkan persónuleika og með þrautseigju
tókst henni að hasla sér völl sem einn
helsti fatahönnuöur heims. Hún klæddi
konur í einfaldan og þægilegan fatnað, f
takt við breyttan tíöaranda.
Gabrielle Bonheur, en það var hið rétta
nafn Chanel, fæddist þann 19. ágúst
■
1883, en sagan
segir að hún hafi
komið í heiminn í
járnörautarlest í
suður Frakklandi.
Hún var fátæk,
missti ung móður
sína og fór þá á
munaðarleys-
ingjahæli, en faðir
hennar hélt sína
leið. Snemma fór hún að vinna fyrir sér f
hattabúö og síðar með
dansi f kabarett. Þar tók
hún upp nafnið sem við
þekkjum. Hún varö hjá-
kona nokkurra efna-
manna, en það var ekki
óalgengt meðal kabarett-
kvenna. Það var enskur
milljónamæringur Arthur
„Boy“ Capel sem kom
Chanel á sporið f tísku-
heiminum, með fjárstuðn-
ingi, en hann var einnig
ástmaður hennar. Árið
1914 tókst henni því aö
koma á fót verslun í Parfs
sem enn stendur f blóma
og ber nafn hennar.
IMokkrum árum síðar,
þegar Coco var orðin auö-
ug og vel þekkt í tísku-
heiminum kynntist hún
auðugasta manni Eng-
lands, sir Hugh Grosven-
or, hertoga af Westminst-
er. Hann hreifst af henni
og vildi ganga að eiga
Þessi dragt er í
stíl Coco Chanel.
Gabrielle „Coco“ Chanel - frægasta konan I sögu tískunnar - klædd svörtum
kjó11 þeim einfalda stíl sem hún var þekkt fyrir.
hana en hún kvað hafa afþakkað pent:
„Nei takk, þaö eru til margar hertogaynjur
af Westminster en það er aðeins til ein
Coco Chanel." Þær sögur fara af Coco að
hún hafi verið hörkutól hið mesta, stolt,
Það hefur veríð sagt um Coco Chanel að
hún hafi sjálf viljað ganga í þægilegum fatn-
aði sem líktist fatnaði sterku, sjálfstæðu
karlmannanna sem hún þekkti, því þeir höfðu
þá stöðu og völd sem hana dreymdi um.
Sjálf hafði hún verið of lengi háð fjárstuðn-
ingi þeirra og þeirri niðurlægingu sem því
fylgdi.
sérvitur og metnaöargjörn, en líka fjörmikil
og uppfinningasöm. Hún studdi við bakið á
ýmsum listamönnum í vinahópi sínum (t.d.
Stravinsky og Ijölskyldu hans) með rausnarleg-
um fjárframlögum.
Á millistríðsárunum áttu sér stað félags-
legar og tæknilegar breytingar sem leiddu
til umskipta f tískuheiminum. Eftir fyrri
heimsstyrjöldina varð róttæk breyting á út-
liti kvenna. Þungur, skreyttur og óþjáll fatn-
aður fór úr tísku en léttari og þægilegri föt