Vera - 01.06.1995, Síða 37
- um karlaráöstefnuna í Stokkhólmi
27. og 28. apríl söfnuöust um 500 manns saman á ráöstefnu á Nacka
Strand í Stokkhólmi sem bar yfirskriftina: Norrænir karlmenn: ólíkir einstak-
lingar - áþekk reynsla. Frá Islandi fóru 35 þátttakendur, þar af voru 4 konur.
Konur voru annars nálega þriðjungur ráöstefnugesta.
Þetta mun vera fyrsta opna og almenna ráðstefnan af þessu tagi sem
haldin hefur veriö 1 Evrópu. Frumkvæðiö er komiö frá ýmsum grasrótarsam-
tökum og einstaklingum, einkum og sér í lagi frá sænska rithöfundinum Evu
Moberg og Bengt Westerberg, fyrrum jafnréttisráðherra Svía. Það var sföan í
tengslum viö Nordisk Forum f Ábo aö norrænu jafnréttisráöherrarnir og Nor-
ræna ráðherranefndin ákváöu aö halda ráðstefnuna. Skipuö var 5 manna
undirbúningsnefnd þar sem undirritaöur sat fyrir íslands hönd. Markmiöið var
að halda jafnréttisráöstefnu um og fyrir karla, sem tæki m.a. á eftirfarandi
þáttum:
- Hinu jákvæða í karlhlutverkinu
- Kynferöi og föðurhlutverki
- Ofbeldi karla
- Karlafræðum
Þeir sem aö ráöstefnunni stóöu voru sammála um aö til þess aö jafnréttisum-
ræöan þróaðist frekar væri nauösynlegt aö bæöi kynin kæmu aö henni og litu
á jafnréttismálin sem sameiginlega hagsmuni og bæru á þeim sameiginlega
ábyrgö.
Dagskrá ráðstefnunnar bar þess merki aö hún var hin fyrsta sinnar teg-
undar; reynt var aö spanna sem flest svið. í sameiginlegu fyrirlestrunum var
m.a. fjallað um þá mynd sem dregin hefur veriö upp af karlmönnum í auglýs-
ingum frá 6. áratugnum til dagsins í dag;
gjald karlmennskunnar, eins og þaö birtist
í tölfræöilegum staöreyndum; og þau efni
sem karlar ættu aö leggja mesta áherslu á
í nánustu framtíð. Jafnframt var frumsýnd
kvikmynd sem leitaöist viö að skilgreina
karlmanninn meö stuttum viðtölum viö
fjölda fólks frá Norðurlöndunum og Pocket-
leikhúsiö sýndi bráðsmellið spunaverk
sem geröist á biðsal ungbarnaeftirlits.
Auk sameiginlegu fyrirlestranna bauðst
þátttakendum aö velja á milli 18 smærri
málþinga. Ég nefni heiti á nokkrum mál-
þingum af handahófi: Ólétti pabbinn - Árásarhvöt, strfö og karlmennska - Of-
beldi karla, ábyrgö karla - Villtir strákar f prúöum skóla - Flugur karla til heim-
ilisstarfa - Þegar strákar veröa aö mönnum - Iþróttir og karlmennska -
Karlleg umönnun - Einstæöir feöur - Nýir karlar, gamlar fjölskyldur.
Þaö veröur fyrst hægt aö meta ráðstefnuna almennilega þegar útdrættir
úr öllum erindunum eru aögengilegir á bók, og þess er ekki langt aö bíða, þvf
ráöstefnuskýrslan verðurgefin út á skandinavísku f lokjúní og hún veröur auk
þess þýdd á ensku og kynnt á kvennaþingi S.Þ. í Pek-
ing, sem sameiginlegt framlag Norðurlandanna. Ég get
samt leyft mér aö fullyröa að þátttakendur voru almennt
”Það eru vissulega karlar sem trjóna í
toppstööunum og hafa peningana og
völdin, en karlarnir eru líka uppistaöan
1 tapliöinu í samfélaginu - á geödeild-
unum, í fangelsunum, sérkennslunni
og ekki síst meöal þeirra sem deyja
fyrir aldur fram. Þessi gögn gagnast
vonandi til aö sannfæra karlmenn al-
kiennt um aö samféiag feöraveldisins
þarfnast ýmissa lagfæringa. “
mjög ánægöir og þegar er Ijóst að eitthvert framhald verður af þessu starfi.
Mér virtist íslensku þátttakendurnir einkum hafa hrifist af fyrirlestri Görans
Wimmerströms um ólétta pabbann, feðrafræðslu og þaö starf sem unnið hef-
ur veriö á þvf sviöi í Svfþjóö. Þess vegna er gaman að geta sagt frá því aö
Wimmerström er væntanlegur hingað til lands í september n.k. á vegum
Karlanefndar Jafnréttisráös.
fslensku lyrirlesararnir stóöu sig allir einstaklega vel ogfengu góöa dóma.
Ásþór Ragnarsson, sálfræöingur, hélt fyrirlestur yfir öllum hópnum og haföi
dregið saman sláandi tölfræði sem vakti sterk viðbrögö. Gögnin frá Ásþóri
staðfestu rækilega aö karlmenn eru „kyn öfganna": það eru vissulega karlar
sem trjóna í toppstöðunum og hafa peningana og völdin, en karlarnir eru líka
uppistaöan í tapliðinu í samfélaginu - á geödeildunum, í fangelsunum, sér-
kennslunni og ekki síst meðal þeirra sem deyja fyrir aldur fram. Þessi gögn
gagnast vonandi til aö sannfæra karlmenn almennt um aö samfélag feöra-
veldisins þarfnast ýmissa lagfæringa. Margrét Pála Ólafsdóttir, leikskóla-
stjóri, lýsti leikskólauppeldi sfnu á Hjalla á fjölmennu málþingi og hlaut mikla
og veröskuldaöa athygli og Bragi Skúlason, sjúkrahúsprestur, fjallaöi á
skemmtilega persónulegan hátt um þaö hvernigdrengirverða að mönnum og
hafði mikil áhrif á sinn hóp.
Mér fannst sjálfum aö ráðstefnan færi kannski óþarflega hikandi af staö,
en hún magnaðist eftir þvf sem á leiö. I upphafi var Ijóst að margir voru aö
fara inn á nýtt sviö, „kunnu" hreinlega lítt aö tjá sig um þessi mál á karlleg-
um forsendum. Ráöstefnustjórinn oröaði þetta skemmtilega í innganginum:
„Viö höfum engin svör, og eiginlega ekki neinar spurningar heldur. Við erum
hingaö komin til að móta spurningarnar." Og það tókst aö vissu leyti, en það
bíður næstu ráöstefnu aö glfma viö svörin.
I lok ráöstefnunnarvarstillt upp sjö atriöum sem menn vildu veita forgang
og lögö voru fyrir jafnréttisráöherra Noröurlandanna (Páll Pétursson var þó
fjarri góðu gamni) í stuttum pallborösumræöum:
1. Ógiftir foreldrar í sambúð fái sjálfkrafa sameiginlega forsjá barna
sinna. Skoða þarf ítarlega stjórn yfirvalda á forsjármálum.
2. Réttur til foreldraorlofs á að vera einstaklingsbundinn, þ.m.t. launarétt-
ur. Foreldraorlof þurfa að verða sveigjanlegri en nú er.
3. Bæði kyn skuli gegna herþjónustu, en enginn sæta fangelsisdómi sem
víkst undan herskyldu.
4. Karlmönnum þarf að fjölga í störfum á dagvistarstofnunum og í yngstu
bekkjum grunnskóla.
5. Rannsaka þarf aðstæður drengja í skólum á Norðurlöndunum.
6. Rannsaka þarf ofbeldi karla og leiða ofbeldishneigða karlmenn til ráð-
gjafar og meðferðar.
7. Rannsaka þarf áhættuhegðun karla, t.d. eins og hún birtist í vinnuslysum.
Ég lýk þessari stuttu greinargerð meö vísun í orö Monu Sahlin, jafnréttisráð-
herra Svía, sem setti ráöstefnuna. Hún sagöi að jafnréttisumræöan snerist
um peningana eða lífiö; karlarnir hefðu peningana og völdin en greiddu fyrir
þaö meö drjúgum hluta af lífinu; konurnar liföu lengur og tengdust lífinu nán-
ar en væri haldiö frá völdum og peningum. Ef þessum þáttum væri deiit á kyn-
in I meira jafnræði, myndu allir hagnast á því: karlar jafnt sem konur.
Siguröur Svavarsson:
Nauösynlegt aö bæöi
kynin líti á jafnréttis-
málin sem sameiginlega
hagsmuni og beri á
þeim sameiginlega
ábyrgö.