Vera - 01.06.1995, Side 41
Á haustdögum kom út bókin „Að eignast barn“
eftir Dr. Miriam Stoppard. Ég varfull eftirvænt-
ingar þegar ég fékk bókina fyrst í hendur og
leist strax vel á hana, Mér finnst uppsetningin
góð, myndir og teikníngar faliegar og upplýsing-
ar um efni aðgengilegar.
Þar sem ég hef lesið bækur á ensku eftir
sama höfund átti ég von á því að efnisinnihald
bókarinnar væri gott. En þegar ég fór að lesa
kafla og kafla í bókinni, runnu á mig tvær grím-
ur. Rakst ég þar á nokkrar leiðbeiningar sem í
dag teljast úreltar og standast ekki miðað við
þá þekkingu sem við höfum og þá leiðsögn
sem við veitum fólki I dag. Þess vegna þótti
mér mikilvægt aö fá ensku útgáfu bökarinnar
til samanburðar til að ganga úr skugga um að
misskilnings hafi ekki gætt í þýðingu bókarinn-
ar. Við samanburöinn sá ég að innihald text-
ans er það sama, og er því einungís viö höfund-
inn að sakast.
Þýðandi bókarinnar. Guðsteinn Þengilsson
læknir, hefur að mínu mati ekki náð sömu til-
ftnningunni í frásögninni og maður greinir í
ensku útgáfunni, enda hefur mérfundist mikill
munur á að lesa bækur eftir konur og mæður
um efni sem tengjast meðgöngu, fæðingu og
sængurlegu þar sem eölilega má betur greina
reynslu og skilning höfundar á efninu í frásögn-
inni. Þess vegna finnst mér óskiljanlegt hvers
vegna ekki varfengin kona til að þýða þessa bók.
Það sem betur hefði mátt fara við útgáfu
þessarar bókar er að fagaðilar, Ijósmæður,
hefðu átt að vera með I ráðum við val bókar til
útgáfu á fslenskri tungu um þetta efni, þarsem
slíkar bækur geta haft mótandi áhrif á þróun
við fæöingar hérlendis. Einnig er nauðsynlegt
að fleiri en ein Ijósmóðir og fæðingarlæknir próf-
arkalesi bókina, en þess er ekki getið í þessari
bók að hún hafi verið lesín yfir af fagfólki.
Mikilvægt er aö réttar upplýsingar séu gefn-
arfólki um aðstæöur og aðferðir hérlendis. Þar
sem barnsburður hefur djúpstæð áhrif á þær
manneskjur sem ganga í gegnum þá lífs-
reynslu að eiga barn, tel ég mjög mikilvægt að
vandað sé til þeirrar fræðsiu sem þeim er veitt
og þar meö á útgáfu á upplýsingaritum fyrir
verðandi foreldra.
f framtfðinni vonast ég til að útgefendur
íhugi vandlega val á útgáfu bóka sem tengjast
svo tilfinningalegri upplifun okkar, sem fæðing
barns er, og leiti aðstoðar Ijósmæðra sem
hafa mikia reynslu og þekkingu á þessum mál-
um, svo koma megi í veg fyrir kostnaðarsama
útgáfu á bókum sem erfitt er að mæla með,
þar sem efnisinnihald þeirra er orðið úrelt.
Bókin er langt því frá ab vera alslæm. Eins
og ég kom inn á fyrr er þetta falleg bók sem ínní-
heldur mikið af upplýsingum og gefur væntan-
lega mörg svör við spurningum fólks um meö-
göngu, fæðingu og tímann fyrst þar á eftir.
Hrefna Egilsdöttir Ijósmöðir
ÖRYGGISSIMI MEÐ ÞRAÐLAUSUM NEYÐARHNAPPI
LANGÞRÁÐ LAUSN Á VIÐKVÆMU VANDAMÁLI
KVENNA SEM BÚA VIÐ OFBELDI OG EINELTI
„...eins og að hafa verndarengil..."
„...hjálpaði mér að lifa lífinu á ný..."
eru umsagnir kvenna sem hafa öryggissima.
Áður óþekkt öryggi og þægindi
með öryggissíma fró VARA
VÖRUR&
ORYGGIS
QEHHHHM3Í
„Þegar öryggid skiptir öllti “
SKIPHOITI 7 • SÍMI 552 9399 ■ OPIÐ 10-18 MÁNUD. - FÖSTUD.