Vera - 01.12.1995, Síða 15
I
c
starfa á sínum eigin vettvangi. „Núna tölum
viö aðeins til kvenna og kvenkennum Guð,“
segirhún. „Við munum alltaf halda áfram að
kvenkenna Guð en höfum aldrei sagt að
Guö sé bara í kvenkyni. Við munum þess
vegna þegar fram í sækir tala bæði um Guð
í kvenkyni og karlkyni. Og enn sem komið er
ávörpum við alla í kirkjunni í kvenkyni. Með
þessu ávinnst tvennt. í fyrsta lagi finna kon-
urnar sem eru komnar í messu Kvennakirkj-
unnar að kirkjan talartil þeirra sjálfra í þeirra
eigin kyni. í öðru lagi geta þau, sem ekki eru
sátt við að við tölum í kvenkyni, séð hvað
það er óréttlátt gagnvart konum að tala
alltaf í karlkyni í almennum messum ís-
lensku þjóðkirkjunnar."
Kvennakirkjan er einnig þekkt að því að
þrydda upp á mörgum nýjungum í messun-
um. Auöur Eir segir þjóðkirkjuna vera bless-
unarlega lausa við fastheldni og íhaldsemi
og því hafi starfandi prestar mikið svigrúm til
athafna. Þetta hefur Kvennakirkjan nýtt sér
í ríkum mæli. Undirrituð bendir lesendum
hér á, að sjón er sögu ríkari. Konur sem
sækja messur Kvennakirkjunnar eru bland-
aður hópur að sögn Auðar. Þær eru á öllum
aldri og úr öllum þjóðfélagshópum.
í upphafi var það ætlun skrásetjara að
inna séra Auði Eir eftir skoðunum hennar á
því hvort kirkjan og boðskapur hennar hafi
reynst konum hið mesta kúgunartæki, eins
og margir femínistar hafa löngum haldið
fram. Það var þó svo augljóst hvert svar Auð-
ar myndi vera, aö spurningin var ekki borin
upp. Lesa má út úr öllum orðum og athöfn-
um sr. Auðar Eir að boðskapur kristninnar er
einhver hin mesta blessun sem nokkur
kvenréttindakona getur orðið aðnjótandi.
Auður minnir undirritaða á kvekarakonurnar
sem stofnuðu kvenréttindahreyfinguna í
Bandaríkjunum um miðbik síðustu aldar og
hrundu af stað hinni víðfeðmu alþjóðlegu
kvennabaráttu. Kvekarar tóku fyrri sköpun-
arsögu Biblíunnar trúanlega og unnu í sam-
ræmi við hana. Konur og karlmenn voru
bæði sköpuð í mynd Guðs og enginn munur
þar á. í samræmi við þetta gat enginn haft
vald yfir öðrum. Sérhver manneskja bar
ábyrgð á eigin samvisku og varö að hlýða
rödd hennartil að verða hólpin. Til þess varð
manneskjan að hafa frelsi. Kvekarar voru og
eru reyndar enn þekktir að því að leggja
áherslu á þau gildi sem löngum hafa verið
kvenkennd: Ástúð, umhyggju, kærleika,
auðmýkt, samúð, friðarvilja, líknarstarf.
Þessi sýn felur í sér að manneskjan hlýtur
að bera fulla ábyrgð á eigin orðum og at-
höfnum, en jafnframt ber hún ábyrgö á öðr-
um. ÞvT er hverskonar umbótastarf mikil-
vægt.
í þessum anda eru lokaorð sr. Auðar Eir
Vilhjálmsdóttur: „Innkomu kvenna í kirkjuna
fylgir nýr og ferskur blær. Við eigum að nota
hann - ekki til þess að ganga inn í þann
heim sem fyrir er, heldur til þess að hugsa
saman frelsishugsjónir."
Biblían
Uppspretta
trúar
siðgæðis
menningar
lista
Hið íslenska Biblíufélag
Guðbrandsstofu, Hallgrímskirkju
Pósthólf 243, 121 Reykjavík
Sími 551 7805
er g. d kona?