Vera - 01.05.1996, Síða 33
RAGNHILDUR HELGADOTT
TUyuTTquT
að netföngum
Margir vilja nýta sér þann nýja mögu-
leika tölvusamskipta að senda tölvu-
póst sín á milli í stað þess að senda
símbréf eða hringja. Notkun tölvupósts
hefur rutt sér til rúms og fjöldi einstak-
linga, fyrirtækja og stofnana nota
tölvupóst reglulega. Tölvupósturinn á
það sameiginlegt meö símbréfinu að
boðin berast til viðtakanda á örfáum
sekúndum. Kostir tölvupósts umfram
símbréf er einkum sá að texta eða
tölvugögn sem send eru með tölvu-
pósti er hægt að nýta beint inn í aðra
tölvuvinnslu, s.s. ritvinnslu. Einnig er
hægt aö senda margmiðlunarefni eins
) og Ijósmyndir og videomyndir eða
tölvugögn eins og gagnaskrár með
tölvupósti.
Forsenda þess að tölvupóstur geti orðið
almenn samskiptaleið er að fyrir séu víðnet
sem almenningur hefur aðgang að saman-
ber Internetið og net X.400. Tölvupóstur er
stílaður á netfang viðtakanda ogtil þess að
hægt sé að nýta sér þennan möguleika er
nauðsynlegt að hafa greiðan aðgang að net-
föngum. Það sem helst hefur staðið hagnýt-
ingu tölvupósts fýrir þrifum er hve erfitt get-
ur verið að komast að því hverjir nota
tölvupóst og þá hver netföng þeirra eru. Á ís-
landi bjóða þó nokkur fyrirtæki upp á að-
gang að Internetinu og þar með dreifingu
^ netfanga. Þar sem internetið er „anarkí", án
yfirvalds, erdreifing þess ekki miðstýrð og á
allan hátt mjög ólík því sem þekkist á veit-
ingu símanúmera. Engin allsherjar net-
fangaskrá sambærileg símaskránni hefur
komið út á íslandi og hefur auglýsing net-
fanga algjörlega verið komin undir handhöf-
um þess. Hver notandi hefur þvl sjálfur þurft
að safna saman númerum sem hann fær
uppgefin eftir hendinni. Nokkrir aðilar hafa
haldið saman íslenskum netföngum en
hvergi er þó til tæmandi listi. Hér á eftir
verða netföng þessara aðila birt ásamt fleiri
gagnlegum uþþlýsingum. Gangi ykkur vel.
Netfangaskráín
Skráin hefur að geyma fjölda netfanga fyrir-
tækja, stofnana og einstaklinga. Hægt er
að nálgast skrána í pappírsformi hjá Miðlun
Handbækur ehf eða á Internetinu.
Netfang: http://www. midlun. is/netfang
Vefþjónar á íslandi
Listi og upplýsingar um nokkra opinbera vef-
þjóna á íslandi s.s Háskóla íslands, Alþingi,
Reykjavíkurborg, Kennaraháskólann og tón-
listarvefinn Bong, svo eitthvað sé nefnt.
Netfang: http://www. isnet. is/www/thjon-
ar.html
Skima
Hér er hægt að finna póstfangaskrá, fyrir-
tækjasíður og aðrar gagnlegar upplýsingar.
Netfang: http://www. skima. is/isgatt/
Islandia
Félag áhugamanna um alþjóðleg tölvusam-
skipti hefur það að markmiði að koma Inter-
neti á sem hagkvæmastan hátt til almenn-
ings. Hér eru upplýsingar um þjónustusíður
fyrirtækja á íslandi, sjónvarpsdagskráin,
fréttir, veður, strætóferðir og hagkvæmar
leitir á Internetinu.
Netfang: http://www. islandia. is/
Kvikmyndahús borgarinnar
Hér má finna gagnlegar upplýsingar sem
unnar eru í samræmi við öll kvikmyndahús
Reykjavíkur, þar sem fram koma hvaða
myndir verið er að sýna og hvenær þær eru
sýndar
Netfang: http://www. vortex. is/is-
lenska/Thjonustur/Bio/
íslenski fyrirtækjavefurinn
Upplýsingar um rúmlega 130 fyrirtæki, félög
og stofnanir s.s. verslun, bóka- og blaöasöl-
ur, hótel og veitingahús, happdrætti- og get-
raunir og fl.
Netfang: http://www. mmedia. is/fv/
Netfangalistinn
Hér er að finna upplýsingar um: fyrirtækja-
síður, vefi og vefþjóna á íslandi, íslendinga
búsetta erlendis, Internet þjónustuaðila,
stjórnsýslustofnanir svo eitthvað sé nefnt.
Netfang: http://www. treknet. is/nafnl. htm
Uppfletting á netfangaskrá ISnet
Hér má leita að netföngum þeirra sem hafa
aðgang að ISnet.
Netfang: http://www.isnet.is/cgi-bin/whois-is
Strætisvagnaferðir
Netfang: http://www. rvk. is/www/stofn-
an/svr/svr.htm
Almenningsvagnar
Netfang: http://www. rhi. hi. is/Uppl/Stra-
eto/av.html
Kjgnexgote KjrmexQote Kymexjjote Kymex[jote Kymex[Hote K^mex^ote Kjrmex^ote
W
404 012
LÍTIL LOSUN MENGUNAREFNA
VIÐ FRAMLEIÐSLU
Prentað á umhverfisvænan
ÓLAFUR
ÞORSTEINSSON & Co HF.
VATNAGARÐAR 4, PÓSTHÓLF 551, 121 REYKJAVÍK, SÍMI 568-8200, FAX 568-9925
X
I
ó
á n tinu