Vera - 01.05.1996, Síða 40
ujoq wiaj.
INGIBJÖRG SIGFÚSDÓTTIR
ofvirkni og námstregða
afleiðing rangrar nœringar
Það brá mörgum í brún þegar greint
var frá því í bandarískum fréttaþætti
aö þar í landi væri ofvirkum börnum
gefið lyfið Ritalin, en það er skylt Am-
fetamíni. í kjölfarið fóru íslenskir fjöl-
miðlar á stjá og komust að því að
þetta lyf er einnig gefið einhverjum
hópi ofvirkra barna á íslandi.
Ofvirkni (hyperacitvity) eða óeðlilegur
óróleiki, er sjúkdómur sem fer sífellt
vaxandi meðal barna. Hann lýsir sér
þannig að barnið getur vart verið kyrrt
andartak, það á erfitt með að einbeita
sér að nokkru stundinni lengur og al-
gengt er að því fylgi vandamál í skóla.
Námsárangur er lítill eða enginn, í
flestum tilfellum langt undir getu, sé
miöaö við greind barnsins. Oft eru
þessu samfara alvarleg hegðunar-
vandamál, bæði heima og í skóla, og
það er einmitt i þeim tilvikum sem
gripið er til Ritalinsins. Ýmsir telja þó
að óþarft sé að grípa til svo stórtækra
aðgeröa og segja aö gera megi ýmis-
legt annað til að draga úr einkennun-
um og jafnvel leysa vandann.
Líkamleg einkenni sem oft fylgja eru m.a.
þurr og hreistruð húð, asmi, óþol af ýmsu
tagi, eyrnabólga, höfuðverkur, nefrennsli,
bólur og stöðugur þorsti, sem ekki hverfur
þó að drukkið sé.
í sumum tilfellum kemur eitthvað af
þessum einkennum í Ijós strax eftirfæðingu
og jafnvel er talið að merkja megi þau
meðan á meðgöngu stendur, eða svo segja
rannsóknir frá Bretlandi.
Ekki má rugla ofvirkni saman við eölilega
athafnasemi eða óþægð. Mörg börn eru
ótrúlega fjörmikil og athafnasöm í eðli sínu
og getur það borið vott um gáfur og eðlilega
forvitni.
Á síðastliönum 15-20 árum hefur ýmis-
leg vitneskja komið í Ijós sem getur hjálpað
órólegum börnum. Nú er vitað að það sem
hefur verið skilgreint sem ofvirkni, árásar-
hneigð, heimska eða tornæmi, stafar oft af
fæðuóþoli og má stundum laga með breyt-
ingu næringar, hreyfingu, teikningu og ýms-
um meðferðum, sem til skamms tíma hafa
verið óþekktar.
í Bretlandi er starfandi félagsskapur und-
ir nafninu „Hyper- Active Children’s Support
Group” (Stuðningshópur fyrir ofvirk börn),
sem hefur það að markmiði að safna sam-
an niðurstöðum rannsókna og gera eigin
kannanir á þessum vanda. Þau segja að
það hafi hjálpað þúsundum barna að breyta
um mataræöi og benda á eina af mörgum
rannsóknum sem ameríski læknirinn Willi-
am G. Crook, MD gerði á börnum er haldin
voru taugaveiklun, ofvirkni eða námsörðug-
leikum. Rannsökuð voru 136 börn árið
1979 og kom þá í Ijós að:
77 þeirra höfðu óþol fyrir sykri,
48 fyrir litar- og bragðefnum,
38 fyrir mjóikurafurðum,
30 fyrir maís,
28 fyrir súkkulaði,
20 fyrir eggjum,
15 fyrir hveiti,
13 fyrir kartöftum,
12 fyrir sojasósu,
11 fyrir sítrusávöxtum,
10 fyrir svinakjöti,
9 eða færri fyrir kjúklingum, nautakjöti, epl-
um, hnetum, lauk, ananas, tómötum, gulróf-
um, höfrum, hrís og saiti.
Til að ganga úr skugga um hvort um
fæðuóþol sé að ræða bendir dr. Crook á að
í fyrstu sé best að byrja á að taka út úr fæði
barnsins algengustu ofnæmisvaldana, einn
af öðrum. Oft dugi það eitt að taka út sykur-
inn og verði þá barnið eölilegt aftur. Dugi
það ekki, sé næst að taka út mjólkina og öll
litar- og bragðefni, síðan koll af kolli.
Þegar barnið hefur verið einkennalaust I 48
klst. er einni tegund matar bætt aftur í fæði
þess og fýlgst vel með viðbrögðunum. Hafi
barnið óþol fyrir þessari ákveðnu fæðuteg-
und sem bætt er við kemur það fljótlega
fram hvort sem ástæöan var taugaveiklun,
ofvirkni eða skortur á einbeitingu.
í upplýsingum H.A.C.S.G. kemur fram að
fimm sinnum fleiri drengir en stúlkur eiga við
þennan vanda að striða og rannsóknir hafa
sýnt fram á að ofvirkni getur stafað af skorti
á efni sem heitir prostaglandin, sem verður
til úr gamma-línólensýru með dihomo-
gamma-línólensýru sem millistig. Meira er
Ekki má rugla ofvirkni saman við eðlilega
athafnasemi eða óþægð. Mörg börn eru
ótrúlega fjörmikil og athafnasöm í eðli
sínu og getur það borið vott um gáfur og
eðlilega forvitni.
um vangetu drengja til að mynda GLA á eðli-
legan hátt. Nútímafæði inniheldur yfirleitt
verulegt magn trans-fitusýra og mettaöra
fitusýra, en neysla þeirra kemur í veg fyrir
myndun gamma-línólensýru úr Cis- Itnólsýru.
Það skýrir hvers vegna breytt mataræði
læknar oft þessi börn. H.A.C.S.G. hópurinn
ráðleggur foreldrum að gefa ofvirkum börn-
um kvöldvorrósarolíu og styðst þá við rann-
sóknir sem framkvæmdar voru í Bretlandi,
Kanada, U.S.A. og Suður-Afríku og sýndu að
ofvirkum börnum sem gefin var kvöldvorrós-
arolía, B3, B6 og C vítamín ásamt zinki,
batnaði ofvirknin í tveimur þriðju tilfella.
Kvöldvorrósarolía inniheldur 8-10 hluta af
gamma-línólensýru og afganginn að mestu
Cis-línólsýru, en engar transfitusýrur. Kvöld-