Vera - 01.02.1997, Page 47
ára, vera skráöur hjá Vinnumiðlun Reykjavík-
ur og hafa rétt á atvinnuleysisbótum. Því
miður komast mun færri að en vilja. Um-
sóknir á námskeiðið hafa verið um 700 -
900 en aðeins þrjátíu einstaklingar eru
teknir inn á hvert námskeið.
Ég brá mérí heimsókn í Hitt Húsið og hitti
þar Benóný Ægisson atvinnufulltrúa og einn
af skipuleggjendum námskeiðsins. „Verk-
efnið hefur verið í stöðugri þróun frá því það
hófst árið 1992. Árið 1994 var farið meira
út 1 að samtvinna fræðslu og starfsþjálfun
og hefur það gefist vel," segir Benóný. „Það
er lögð mikil áhersla á að þátttakandi hafi
val og eigið frumkvæði um starf. Einnig höf-
um við verið tilbúin að styðja þátttakendur í
að koma eigin hugmyndum um vinnu og
verkefni í framkvæmd.”
Starfsmenn Hins Hússins hafa mikinn
áhuga á að koma til móts við og bjóða þjón-
ustu og ráðgjöf fyrir langtíma atvinnulausa
og ungt fólk sem ekki hefur bótarétt, t.d.
sem er nýkomið úr eða hefur dottið úr skóla.
Það eru því gleðitíðindi að nú hefur Reykja-
víkurborg lýst yfir vilja til að gera eitthvað fyr-
ir þetta fólk.
En hvernig hefur þessu fólki gengið að fóta
sigívinnu eftirað það kemurafnámskeiðinu?
„Yfirleitt hefur þetta gengið mjög vel en
þó vill koma upp misskilningur stundum. Viö
höfum ákveðið eftirlit með fólkinu sem fer
frá okkur af námskeiðinu yfir á vinnustaði.
Bæði til að sjá og finna að það sé að læra
og öðlast reynslu og svo auðvitað hvort það
standi sigí mætingu. Við höfum einnig hald-
ið fundi með vinnuveitendum til að skýra út
fýrir þeim þeirra ábyrgð.”
En svo eru það ungar einstæðar mæður.
Ég hef heyrt að margar hafi viljað taka þátt
en ekki getað.
„Það er rétt. Við reyndum að fá Dagvist
barna til liðs við okkur en það var ekki vilji til
þess. Við ræddum þá hugmynd að hafa
barnagæslu hér í húsinu en réðum ekki við
það fjárhagslega.
Það er mikill áhugi hér í Hinu Húsinu á að
gera eitthvað fyrir einstæðar mæður, hjálpa
þeim og hvetja þær til að komast út I at-
vinnulífið eða í nám. Þennan hóp þarf að
kortleggja og gera eitthvað I málinu”, segir
Benóný, og bætir við að hér með lýsi hann
eftir hugmyndum!
Ég enda þetta stutta spjall mitt við Ben-
óný með því að spyrja hann út í framtíðar-
draumaverkefni Hins Hússins og þar eru at-
vinnumálin honum ofarlega í huga. „Við
viljum efla og styrkja þjónustu við atvinnu-
lausa á sem fjölbreytilegastan hátt, veita
meiri ráðgjöf og stuðning við frumkvæði
þeirra. íslenskt atvinnulíf þarf á fólki með
frumkvæði að halda og því er nauðsynlegt
að efla það hjá ungu fólki”.
Unnur V. Kristjánsdóttir
Ráðgjaf arstöð
Húsnæðisstofnunar
■
Itt þuf greiðsluvanda?
Leitaðu til ráðgjafa
Allir geta lent í erfiðleikum með fjármálin og
fjármögnun íbúðarhúsnæðis. í>ær forsendur
sem voru til staðar í upphafi geta breyst við
óvænt atvik. Mikilvægt er að leita strax til
ráðgjafa Húsnæðisstofnunar áður en vanskil
hlaðast upp. Með hjálp hans getur verið
mögulegt að koma í veg fyrir erfiðleika síðar.
Heildarlausn á einum stað
Ráðgjafarstöðin vinnur í nánu samstarfi með
bönkum og öðrum fjármálastofnunum.
Ráðgjafar leitast við að finna heildarlausn
fyrir umsækjandann með því að semja um
öll vanskil, hvar sem þau kunna að vera.
Úrræði Húsnæðisstofnunar
• Skuldbreytingalán
Mögulegt er að skuldbreyta vanskilum hjá
lántakendum Ilúsnæðisstofnunar.
• Frestun á greiðslum
Unnt er að fresta greiðslum á lánum
(afborgunum, vöxtum og verðbótum)
í allt að 3 ár.
Ekki bíða með vandann!
Komdu í viðtal eða hafðu
samband við ráðgjqfarstöðina
í síma 569 6905.
Viðtalstímar eru alla
virka dagafrá 9-12 og 13-16.
Grænt númer: 800 6969
<
cSo HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: 569 6900 (kl. 8-16) • BRÉFASÍMI: 569 6800