Vera - 01.02.1997, Qupperneq 48
fAuglýsing um fasteignagjöld, sérstakan
fasteignaskatt og brunatengd gjöld.
Álagningarseðlar fasteignagjalda í Reykjavík árið 1997 verða sendir út næstu daga ásamt gíróseðlum
vegna fyrstu greiðslu gjaldanna og umsóknareyðublaði vegna greiðslu gjalda með boðgreiðslum á
greiðslukortum. Gjöldin eru innheimt af Gjaldheimtunni í Reykjavík, en einnig er hægt að greiða
gíróseðlana í næsta banka, sparisjóði eða pósthúsi.
Fasteignagjöldin skiptast í fasteignaskatt, lóðarleigu, tunnuleigu/sorphirðugjald, vatnsgjald, sérstakan
fasteignaskatt og holræsagjald.
Tekjulágir elli- og örorkulífeyrisþegar sem fengu lækkun á fasteignaskatti á liðnu ári hafa fengið
hlutfallslega lækkun fasteignaskatts og holræsagjalds fyrir árið 1997. Framtalsnefnd mun yfirfara framtöl
gjaldenda þegar þau liggja fyrir, væntanlega í mars- eða aprílmánuði. Úrskurðar hún endanlega um
breytingar á fasteignaskatti og holræsagjaldi m.a. hjá þeim sem ekki hafa þegar fengið lækkun en eiga rétt
á henni samkvæmt þeim reglum sem borgarstjórn setur, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna
sveitarfélaga og breytingu á vatnalögum sem samþykkt var 15. desember 1995. Verður viðkomandi
tilkynnt um breytingar, ef þær verða.
Viðmiðunarreglur vegna fasteignaskatts og holræsagjalds fyrir árið 1997 eru eftirfarandi:
100% lækkun
Einstaklingar með (peninga) tekjur allt að
Hjón " " " "
80% lækkun
Einstaklingar með (peninga) tekjur
Hjón
kr. 670.000
kr. 940.000
kr. 670.000 til kr. 740.000
kr. 940.000 til kr. 1.025.000
50% lækkun
Einstaklingar með (peninga) tekjur
Hjón ...............
kr. 740.000 til kr. 830.000
kr. 1.025.000 til kr. 1.170.000
Til að flýta fyrir afgreiðslu geta þeir, sem ekki fengu lækkun á s.l. ári, sent framtalsnefnd umsókn um
lækkun ásamt afriti af skattaframtali 1997.
Framtalsnefnd er til viðtals alla miðvikudaga kl. 16.00 til 17.00 á II. hæð Aðalstrætis 6, frá 12. febrúar til
28. maí. Sími 552-8050 - bréfsími 562-4666
Vegna álagningar sérstaks fasteignaskatts á fasteignir sem nýttar eru við verslunarrekstur eða við
skrifstofuhald, ásamt tilheyrandi lóð, sbr. 1. nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga með síðari breytingum
skulu eigendur fasteigna í Reykjavík senda skrá yfir eignir sem falla undir framangreint ákvæði, ásamt
upplýsingum um síðasta heildarfasteignamatsverð þeirra eða eftir atvikum kostnaðarverð. Ennfremur
skal skrá þar upplýsingar um notkun þeirra svo og upplýsingar um rúmmál eigna sem einnig eru notaðar
til annars en verslunarreksturs og skrifstofuhalds.
Upplýsingar skulu sendar til Skráningardeildar fasteigna, Skúlatúni 2, Reykjavík.
Sérstök eyðublöð til að nota í þessu skyni munu liggja frammi hjá Skráningardeild fasteigna, en þau hafa
einnig verið send til allra eigenda verslunar- og skrifstofuhúsnæðis í borginni sem vitað er um.
Vanræki húseigandi að senda skrá yfir eignir, sem ákvæði þetta tekur til, er sveitarstjórn heimilt að nota
aðrar upplýsingar til viðmiðunar við álagningu, þar til húseigandi bætir úr.
Með fasteignagjöldum eru ennfremur innheimt brunatengd gjöld þ.e. iðgjald brunatryggingar þeirra
húseigna sem vátryggðar eru hjá Húsatryggingum Reykjavíkur h.f., svo og viðlagatryggingargjald fyrir
Viðlagatryggingu Islands, brunavarnargjald sem innheimt er fyrir Brunamálastofnun ríkisins og
umsýslugjald sem innheimt er fyrir Fasteignamat ríkisins og forvarnagjald sem innheimt er fyrir
ofanflóðasjóð.
Skráningardeild fasteigna, Skúlatúni 2, Reykjavík, veitir upplýsingar um álagningu gjaldanna, sími 563-
2520.
Gjalddagar ofangreindra gjalda eru 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl, I. maí 1. júní og I. ágúst.
Borgarstjórinn í Reykjavík,
8. janúar1997