Neisti - 16.05.1970, Blaðsíða 1

Neisti - 16.05.1970, Blaðsíða 1
1. tölublað. Laugardagur 16. maí 1970 38 .árgangur. 1. Kristján Sigurðsson 4. Jón Dýrfjörð 2. Jóhann G. Möller 5. Hörður Arnþórsson 3. Sigurjón Sæmundsson 6. Viktor Þorkelsson 7. Kristján Sturlaugsson 8. Regína Guðlaugsdóttir 9. Skarphéðinn Guðmundsson Framboðslisti Alpýöuflokksins í Siglulirði xA-íisí 1. Kristján Sigurðsson, verkstjóri. 2. Jóhann G. Möller, verkamaður. 3. Sigurjón Sæmundsson, prentsm.stjóri 4. Jón Dýrfjörð, vélvirki. 5. Hörður Arnþórsson, skrifstofumaður 6. Viktor Þorkelsson, iðnnemi. 7. Kristján Sturlaugsson, kennari. 8. Regína Guðlaugsdóttir, fiml.kennari 9. Skarphéðinn Guðmundsson, kaupf.stj. 10. Arnar Ólafsson, rafvirki. 11. Óli Geir Þorgeirsson, verzlunarmaður 12. Sigfús Steingrímsson, verkamaður 13. Stefán Þór Haraldsson, vélstjóri. 14. Hólmsteinn Þórarinsson, loftsk.maður 15. Herdís Guðmundsdóttir, frú. 16. Friðrik Márusson, verkstjóri. 17. Þórarinn Vilbergsson, bygg.meistari. 18. Einar Ásgrímsson, verkamaður. 1 Kosningaskrifstofa | Alþýöuflokksins, A-lista | 1 ss j| s er að Borgarkaffi. — Skrifstofan er opin alla daga 3 frá kl. 15—19 og kl. 20—22. Alþýðuflokksfólk og annað stuðningsfólk A-listans^ er kvatt til þess að hafa samband við skrifstofuna ^ og gefa þar upplýsingar er að gagni kunna að koma í kosningunum. Hugleiðingar um bæjar- stjórnarkosningarnar Það er engum vafa undir- orpið, að úrslitin í bæjar- stjómarkosningunum hér i Siglufirði verða mjög tvísýn og spennandi. Almenningur í bænum er enn ekki kominn í reglulegt kosningaskap, en einstakir menn og hópar era farnir að spá í spilin um þessi tvísýnu úrslit og er ekki nema gott eitt um það að segja. Það virðist sem sagt aðeins vera að hitna í glóðunum. Von- andi verður þetta til þess að áhugi almennings á þessum kosningum sé að aukast og er þá vel farið. Hér á eftir verður lítillega rætt um stöðu flokkanna hér við þessar kosningar. Sjálfstæðisflokkur. Eins og fyrr segir verða kosningaúrshtin tvímæla- laust mjög tvísýn, sem stafa af tvennu: í fyrsta lagi vegna þess, hve lítill munur er í raun og veru á flokkun- um og svo hinu, hversu Sjálf stæðisflokkurinn stendur höllum fæti, að fá sinn 3ja mann kosinn aftur. Fyrir og eftir síðustu kosningar kröfðust Sjálf- stæðismenn að bæjarstjórinn yrði úr þeirra röðum, og var þar fremstur í flokki Knútur Jónsson bæjarfulltrúi, þrátt fyrir það að Sigurjón Sæ- mundsson hafði verið mjög ötull og duglegur bæjar- stjóri og þeir iSjálfstæðis- menn stutt hann tvö kjör- tímabil á undan. Innan Sjálf- stæðisflokksins var hvergi nærri eining um þessa kröfu bæ j arfulltrúans. Eh þegar neyðin er mest er hjálpin næst og Fram- sóknarmenn komu þeim Sjálfstæðismönnum til hjálp- ar og lýstu yfir stuðningi við Stefán Friðbjarnarson sem bæjarstjóra. Er fullséð var að Alþýðuflokkurinn gat ekki fengið meirihlutastuðn- ing við Sigurjón Sæmunds- son sem bæjarstjóra áfram, féllst hann á að styðja Ste- fán, enda var þrautreynt að meirihluti fékkst ekki fyrir neinum öðrum bæjarstjóra. Stefán Friðbjarnarson hef- ur reynzt lipur maður í starfi en sterkt framkvæmdavald hefur hann vantað og er það ekki fyrst og fremst honum að kenna, heldur aðgerðar- litlum meðbæjarfulltrúum hans, ágætisfólki að - öðru leyti, og að hann hefur ekki haft fullt traust sinna flokks manna. Af þessum sökum og fleirum stendur Sjálf- stæðisflokkurinn mjög höll- um fæti í þessum kosning- um með að fá sinn þriðja mann kosinn. Alþýðubandalagið: Við síðustu kosningar fékk Alþýðubandalagið 312 atkv. og tvo menn kjörna. Þeir Alþýðubandalagsmenn höfn- uðu algerlega öllu sam- starfi og ■ hafa sleitulaust undanfarin kjörtímabil ver- ið eða kallað sig minnihluta. Þeir hafa alls ekki gert sér Ijóst, að það er engu síður vandi að vera ábyrgur minni hluti, en ábyrgur meirihluti. Að vísu hafa þeir við af- greiðslu fjárhagsáætlana haft í frammi tillöguflutning um breytingar, en þær hafa verið harla veigalitlar og ekki verið fylgt eftir með nokkurri sannfæringu. Þeir hafa oft á stundum haldið uppi máiþófi og verið með þras og gjarnan flutt yfir- boðstillögur, sem þeir hafa h’aldið að gengi í augun á fólki og nytu vinsældar, en áhuginn að öðru leyti eng- inn verið. Þeir hafa á engan hátt verið þeim vanda vaxn- ir, sem hvílir á herðum manna, sem vilja kallast á- byrgir gjörða sinna, enda þótt þeir Benedikt Sigurðs- son og Kolbeinn Friðbjarnar- son séu um margt hinir nýt- ustu menn. Þegar þetta á- bvrgðarleysi er haft í huga, þarf engan að undra, þótt Alþýðubandalagið hafi ekki viljað taka þátt í minnihluta- samstarfi til lausnar á erf- iðum vandamálum bæjarfé- lagsins, því að þeir vita gjörla, að oft og tíðum þarf að taka ákvarðanir, sem eru óvinsælar í bili. Slíkar á- kvarðanir hafa þeir ekki vilj- að taka og þarf enginn að ætla, að þeirra hugsunar- Framhald á 2. síðu

x

Neisti

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neisti
https://timarit.is/publication/848

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.