Neisti - 30.05.1970, Blaðsíða 1
2. tölublað.
Laugardagur 30. maí 1970.
38 .árgangur.
I
Stuðningsfólk A-listans
Kaffiveitingar að Borgarkaffi
á kosningadaginn frá kl. 3.
Verið velkomin.
A-LISTINN
Ályktun Alþýduflokksins um bœjarmál
Atvinnumál:
Það er álit Alþýðuflokksins, að á næsta kjörtímabili
þurfi að eiga sér stað stórfelld atvinnuuppbygging, svo að
bærinn okkar geti blómgast á ný, og bæjarbúar geti búið
við örugga afkomu árið um kring og tryggt sér og sínum
fjárhagslega afkomu. Þessi atvinnuuppbygging þolir ekki
lengur nokkra bið, og því hefur flokkurinn beitt sér fyrir
því, að gerð verði sérstök áætlun um uppbyggingu at-
vinnulífsins til 4—5 ára, og er unnið að slíkri áætlunar-
gerð. Við samningu áætlunar þessarar mun Alþýðuflokk-
urinn leggja megin áherzlu á eftirfarandi:
1. Hráefnisöflun til hraðfrystihúsanna.
Alþýðuflokkuriim fagnar fyrirsjáanlegri aukningu út-
gerðar hér með framtaki Togskips h. f. og Hafnar h. f.
og TJtgerðarfélag Siglufjarðar h. f. og eflingu smá-
bátaútgerðar frá Siglufirði. Aiþýðuflokkurinn telur að
betur verði að gera, t. d. að hraðfrystihús S. R. eignist
sitt eigið skip, og að frekari aukning smábátaútgerðar
eigi sér stað.
2. Endurbygging og stækkim hraðfrystihúss S. R.
Alþýðuflokkurinn lýsir yfir stuðningi við fyrirhugaðar
endurbætur og stækkun frystihússins og hvetur fyrir-
tækið til að stefna að því, að reisa hér stórt og ný-
tízkulegt ihraðfrystihús.
3. Eflingu niðursuðu og niðurlagningariðnaðar.
Gera þarf þeim feðgum Agli Stefánssyni og Jóhannesi
Egilssyni kleift að byggja fyrirtæki sitt betur upp.
Sigló-verksmiðjuna þarf að gera að stórfyrirtæki, er
starfi allt árið, með því að stækka hana og auka fram-
leiðslugreinar með eftirfarandi:
1. Framleiðsla sjólax. 2. Reykingu þorskflaka. 3. Niður-
lagningu grásleppuhrogna. 4. Aðstöðu til niðursuðu.
4. Aultin starfræksla T. R.
Öll tunnusmíði hérlendis fari fram í verksmiðju T. R.
á Siglufirði. Athugað verði hvort ekki sé hægt að koma
við annarri umbúðaframleiðslu í húsakynnum verk-
verksmiðjunnar.
5. Eflingu smáiðnaðar.
Leggja þarf ríka áherzlu á að fá hingað nýja fram-
kvæmdaaðila, sem reisi hér ný iðnfyrirtæki, sbr. fyrir-
ætlun Vigfúsar Friðjónssonar um plastumbúðaverk-
smiðju. Nýta ber til fullnustu möguleika þá, sem Norð-
urlandsáætlim og Atvinnujöfnunarsjóður gefa í þessu
sambandi.
Fjármál:
1. Fyllsta aðgát verði höfð á fjármálum bæjarins. 1 því
sambandi verður að gæta ýtrasta sparnaðar og endur-
skipuleggja þarf rekstur og viðhald á vinnutækjum
bæjarins.
2. Nánari verkaskipting verði gerð um starfssvið ríkisins
og sveitarfélags hins vegar. Þar komi til greina, að
Siglufjörður taki að sér rekstur bókasafns og skóla,
en ríkið hins vegar sjái um löggæzlu og tryggingakerfi.
3. Þá vill Alþýðuflokkurinn halda áfram að fylgja þeirri
kröfu eftir, að enn fleiri fyrirtæki, sem annast þjónustu
við almenning s. s. bankar, tryggingafélög, flugfélög,
Skipafélög) greiði landsútsvör til Jöfnunarsjóðs, til
þess að Jöfnunarsjóður verði fær um að hækka fram-
lög sín að verulegu leyti og stefnt verði að því með
fulltingi sjóðsins, að útsvör séu hin sömu um allt
land.
Hafnarmál:
Alþýðuflokkurinn leggur áherzlu á að:
1. Siglufjarðarhöfn verði viðurkennd aðalhöfn kjördæmis-
ins og njóti réttinda, sem því fylgja.
2. Hraðað verði uppbyggingu Dráttarbrautarinnar.
3. Ýtarleg athugun verði gerð um á hvem hátt sé hægt
að nýta aðstöðu og húsakost Rauðkuverksmiðjunnar
til atvinnuuppbyggingar.
4. Áherzlu ber að leggja á endurbyggingu Öldubrjótsins
og verður þar að koma til stórframlag ríkisins, svo
framkvæmdum s é lokið á næstu 2 árum.
5. Bæta aðstöðu smábátaútgerðarinnar í samráði við sjó-
menn.
Orku- otr veitumál:
1. Varmaveita.
Eitt af stærstu málum, er varðar framtíð bæjarins, er
varmaveita. Alþýðuflokkurinn beitti sér fyrir því, að
gerð var áætlun af fyrirtækinu Verrni s. f. í Reykjavík
um varmaveitu fyrir Sigluf jörð. Aiþýðuflokkurinn fagn-
ar þeim framkvæmdum, sem fóru fram á varmasvæð-
inu í Skútudal á s. 1. sumri og þeim framhaldsfram-
kvæmdum, sem ákveðnar eru í sumar.
Alþýðuflokkurixm heitir þessu máli fullum stuðningi,
svo sem alla tíð hefur verið.
2. Raforkumál.
Alþýðuflokkurinn telur, að aldrei komi til mála að ljá
máls á sameign ríkisins og Siglufjarðarkaupstaðar á
Skeiðsfossvirkjun. Hins vegar beri að fylgjast nákvæm-
lega með, hvenær hagstætt sé að ráðast í viðbótarvirkj-
un í Bljótaá, til þess að tryggja Siglfirðingum og nær-
sveitum næga raforku.
3. Skipuleggja þarf rekstur Vatnsveitu Siglufjarðar og
vinna að endurbótum á veitukerfinu.
Samgöngumál:
Aiiþýðuflokkurinn beitti sér fyrir því á sínum tíma, að
hér var gerð 700 m flugbraut. 1 framhaldi af því vill Al-
þýðuflokkurinn beita sér fyrir, að flugbrautin öll 1200—
1400 m á lengd, verði fullfrágengin sem allra fyrst, og
mundi slíkt verða hin mesta samgöngubót.
Húsbyggingamál:
Alþýðuflokkurinn telur, að kaupstaðurinn eigi að gerast
aðili að byggingu verkamannabústaða, samkv. endurskoð-
uðum lögum um Húsnæðismálastjóm, en lánað verður
80% af kostnaðarverði íbúða þessara.
Stefna ber að "því, að byggðar verði 3—4 íbúðir árlega
samkvæmt lögum þessum.
íþrótta- og æskulýðsmál:
Alþýðuflokkurinn heitir stuðningi sínum við eflingu
íþróttalífs í bænum, og hvetur íþróttafélögin til að endur-
skipuleggja starfsemi sína og gera raunhæfar itillögur um
endurbyggingu nauðsynlegra íþróttamannvirkja. Flokkur-
inn heitir stuðningi við æskulýðs- og menningarmál, á
sama hátt og flokkurinn hefur ætíð gert. Má þar til nefna
æskulýðsheimili, bamagæzlu, tónlistarstarfse'mi og önnur
menningarmál. Það er álit Alþýðuflokksins, að með stuðn-
ingi við slík málefni sé unnið að því að skapa betra og
farsælla þjóðfélag.
Upplýsinga- og bílasími er 7-14 02
Félag ungra
jafnaðarmanna
stofnað
Fyrir nofckm var stofnað
her Félag ungra jafnaðar-
manna og hafði unga fólkið
sjálft fomstu í því.
1 stjórn félagsins vom
kosin:
Viktor Þorkelsson, form.
Kristján L. Möller, ritari
Guðm. Pálsson, gjaldkeri
Stefanía Skarphéðinsdóttir,
meðstjómandi
Erla Ölafsdóttir, meðstj.
Varastjórn:
Ari Jónsson
Sigfús Jónsson
Sigurður Steingrímsson
Starfsnefnd:
Guðm. Ingólfsson, form.
Guðjón Magnússon
Jóhann Skarphéðinsson
Varamaður:
Jónas Bjömsson
I fulltrúaráð Alþýðuflokks-
ins vom kosnir:
Arnar Ólafsson
Viktor Þorkelsson
Erling Jónsson
Guðmundur Pálsson
Guðmundur Ingólfsson
Endurskoðendur:
Þorsteinn Jóhannsson
Sigurbjöm Jónsson
Neisti árnar unga fólkinu
heilla og býður það velkom-
ið til baráttu fyrir hugsjón-
um jafnaðarstefnunnar und-
ir merki frelsis, jafnréttis
og bræðralags.