Vera


Vera - 01.12.1999, Qupperneq 23

Vera - 01.12.1999, Qupperneq 23
arnefndum 465 mál vegna meints kynferðislegs ofbeldis gegn börnum og vörðuðu málin 560 börn yngri en 16 ára. Áætlað var að 30-40% þessara mála væru kærð til lögreglu eða rúmlega 160 mál, sem vörðuðu þá u.þ.b. 210 börn. Þess ber að geta að ekki fara öll mál til barnaverndar- nefnda, sum þeirra eru kærð beint til lögreglu og kemur fram í svari við fyrir- spurninni að bæta megi 50% ofan á þann fjölda sem kemur frá barnavernd- arnefndum, þannig að gera má ráð fyrir að um 315 börn sé að ræða á þessu tímabili í rúmlega 240 mál- um. Einnig kemur fram að sakfellt hafi verið í a.m.k. 30 þessara mála en nánari upplýsingar liggja þó ekki fyrir. Niðurstaðan virðist því vera sú að u.þ.b. 5% þeirra mála sem koma annað hvort til lögreglu eða barnaverndaryfirvalda enda með sakfellingu, 95% þessara mála fá litla eða enga lausn. Hvað verður þá um málin? Eru 95% ásak- ana um kynferðislegt of- beldi gagnvart börnum upplognar sakir barnanna sjálfra eða annarra? Tæpast dettur nokkrum manni það i hug. Auðvit- að kann að vera að einhver þeirra erinda sem ber- ast barnaverndarnefndum eigi ekki við rök að styðjast við nánari skoðun, en það vekur þó at- hygli hversu lágt hlutfall þeirra mála sem berast barnaverndarnefndum enda með kæru. Ástæða væri til að fá nánari skýringar barnaverndaryfir- valda á þessu. Ekki síður er það alvarlegt að inn- an við 10% þeirra mála sem kærð eru til lögreglu enda með sakfellingu. Hvað verður um þau 90% sem ekki enda með sakfellingu? Hvað verður um börnin? Hvað verður um meintan brotamann? Hvað verður um fjölskylduna? Auðvitað kunna alltaf að vera dæmi um ósannar ásakanir í þess- um málaflokki eins og öllum öðrum, óvandað fólk notar þau meðul sem það telur gagnast best hverju sinni en það er náttúrulega fjarstæðukennt að ætla að 90% kæra um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum sé uppspuni. Fræða þarf lögreglu, saksóknara og dómara Við búum við þá grundvallarreglu I islensku rétt- arfari að ákæruvaldið hefur sönnunarbyrðina fyrir því að maður sé sekur. Takist ákæruvaldinu ekki að sýna fram á sekt viðkomandi er hann sýknað- ur. Þetta er auðvitað mikilvæg regla, sem ég held að enginn vilji afnema, eins og sumir virðast halda. Það kemur hins vegar ekki I veg fyrir að fólk greini á um hversu miklar sönnunarkröfur eigi að gera í hverju máli fyrir sig og mat fólks á því hvenær sekt telst sönnuð er mismunandi eins og umræddur dómur Hæstaréttar sýndi svo vel. I kynferðisafbrotamálum, einkum gagnvart börn- um, eru aðstæður allt aðrar en í mörgum öðrum brotaflokkum. Nánast aldrei er vitni að brotinu. Fórnarlambið, barnið, er mjög oft gert „samsekt" af gerandanum og því talin trú um að það eígi sjálft sök á misnotkuninni og annað hvort hótað eða látið í veðri vaka að eitthvað skelfilegt gerist, segi það frá. Því verður að nota önnur sönnunar- gögn til sakfellingar en vitni að atburðum ef ákærði neitar. Þar reynir því mjög mikið á rann- sóknarlögreglu og saksóknara. Það hefur sýnt sig að sé mikil alúð lögð við rannsókn mála, tekst oft að finna einhverjar vlsbendingar sem síðan er hægt að vinna áfram með og jafnvel finna þannig meinbugi á framburði gerandans sem leiða að lokum til játningar. Til þess að svo megi verða þarf að upplýsa lögreglumenn og saksóknara miklu meira um eðli þessara brota, hegðun brotamanns og fórnarlambs, svo unnt sé að leita að því sem máli skiptir. Ekki síður er fræðsla til dómara mikil- væg og má oft sjá í dómum setningar sem ekki verða skildar öðruvísi en sem vanþekkingu á eðli þessara mála. Dæmi um þetta er ( umræddum dómi Hæsta- réttar þar sem ein af forsendum sýknudómsins er sú að langur tími hafi liðið frá því misnotkun lauk og þar til stúlkan kærði, en hún bar að misnotk- uninni hefði lokið þegar hún var 16 ára og kærði þegar hún var 18 ára. Flestum þeim sem eitthvað hafa kynnt sér þennan málaflokk er Ijóst að mjög algengt er að langur tími líði frá því brotið á sér stað og þar til kært er. Þolandinn á I flestum tilvik- um mjög erfitt með að segja frá því sem gerðist Niðurstaðan virðist því vera sú að u.þ.b. 5% þeirra mála sem koma annað hvort til lögreglu eða barna- verndaryfirvalda enda með sakfellingu, 95% þessara mála fá litla eða enga lausn. Hvað verður þá um málin? og þarf engan að undra, það má vera hverjum manni Ijóst að það er meira en að segja það fyrir 16 ára barn að kæra föður sinn fyrir jafn alvarleg brot og hér um ræðir. Það er nú einu sinni svo að tilfinningar barns til foreldris sem hefur beitt það slíkum órétti eru oftar en ekki blendnar, annars vegar neikvæðar tilfinningar vegna ofbeldisins og hins vegar jákvæðar tilfinn- ingar barnsins, sem þrátt fyrir allt er bundið t.d. föð- ur sínum tilfinningabönd- um og kann að bera að einhverju leyti til hans hlýj- ar tilfinningar. Enda þótt f huga annarra sé það kannski óhugsandi að hægt sé að bera hlýjar til- finningar til þess sem hefur brotið svo gróflega gegn barninu er það nú svo að tilfinningar lúta ekki alltaf lögmálum skynseminnar. Enda má ekki gleyma því að meðan á ofbeldinu stendur hefur barnið vanist því að leika þennan tvö- falda leik, láta sem ekkert sé og lifa „venjulegu" fjöl- skyldulífi á milli þess sem það er beitt ofbeldi. Ég tel því að það eitt að auka verulega fræðsluna til þeirra sem koma að þessum málum af hálfu hins opinbera geti leitt til þess að réttvísin nái fleiri kynferðis-glæpamönn- um en nú er. Sannleiks- og sáttanefndin En jafnvel þótt takist að ná til eitthvað fleiri brota- manna er þó nokkuð Ijóst að mínu mati að það leysir ekki allan vandann og því tel ég nauðsynlegt að endurskoða að einhverju leyti þau úrræði sem til eru í okkar réttarkerfi. Það er öldungis Ijóst að stærstur hluti þeirra barna sem fyrir kynferðisof- beldi verður nýtur ekki réttarverndar. Málin eru kannski kærð til lögreglu en meginreglan er sú að ekkert gerist, undantekningin er sú að gerandinn er sakfelldur eins og fram kemur I tölunum hér að framan. Við svo búið má ekki lengur standa. Rétt- arkerfi okkar er einfaldlega ekki smíðað með þarfir kvenna og barna í huga, grunnur þess á rætur í allt öðrum aðstæðum. Er það endilega rétt að beita sömu málsmeðferð við kynferðislegt of- beldi föður gagnvart barni sínu og búðarþjófnað? Hvað ætlum við að gera fyrir meirihluta þeirra barna sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi og ekkert er gert fyrir ( dag? Fyrir nokkrum árum sat ég norrænt kvenlög- fræðingamót þar sem prófessor Vibeke Vindelov frá Kaupmannahafnarháskóla flutti erindi. Hún hefur sérhæft sig I leit að nýjum lausnum á ýmis konar réttarágreiningi og skrifaði m.a. aldeilis ágæta bók um efnið. Erindi hennar fjallaði um Sannleiks- og sáttanefndina svokölluðu í Suður- Afríku sem komið var á fót eftir hrun aðskilnaðar- stefnunnar. Þá lá fyrir að óendanlega mörg mál vegna misþyrminga, morða og hvers kyns hörm- „ 777 minningar um vitnisburöi sem ekki var trúað," stáð á krönsunum. Dyr Hæstaréttar voru læstar þótt búið væri að tilkynna um komu göngunnar. VER A • 23
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Vera

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.